Læknaneminn - 01.04.2010, Side 92

Læknaneminn - 01.04.2010, Side 92
Áreiðanleiki sjálfvirkrar rúmmálsgreiningar á svæðum í heila með segulómun og klasatölvu Ásdís Egilsdóttir1, Sigurður Sigurðsson2, Ólafur Kjartansson2, Vilmundur Guðnason1'2 ’Háskóli (slands, !Hjartavernd Inngangur I Öldrunarrannsókn Hjartaverndar hefur verið þróaður hugbúnaður sem merkir og rúmmálsgreinir sjálfvirkt einstaka vefi f heila frá segulómmyndum með hjálp klasatölvu. Með aðferðinni er hægt að mæla rúmmál heila- og mænuvökva, hvítavefsbreytinga auk gráa- og hvíta vefs heila (alls 38 svæðum, m.a. blöðungum, botnkjörnum og litla heila. Markmið rannsóknarinnar var að meta áreiðanleika aðferðarinnar. Efni og aðferðir Átta einstaklingar voru valdir af handahófi úr þýði Öldrunarrannsóknar Hjartaverndar. Áreiðanleiki sjálfvirkrar rúmmálsgreiningar á 38 svæðum í heila var mældur með því að bera niðurstöður sjálfvirkrar merkingar þessara svæða saman við handvirka merkingu þeirra. Bæði sjálfvirka og handvirka merkingin var gerð á segulómmyndum einstaklinganna átta. Handvirka merkingin var framkvæmd af einum aðila með aðstoð hugbúnaðar sem gerir notandanum kleift að merkja svæði heilans af segulómmyndum með tölvupenna og tölvuteikniborði. Endurtekningarhæfni notandans við hand- virku merkinguna var metin með því að endurtaka merkingu á ellefu sneiðum frá sjö einstaklingum mánuði seinna. Niðurstöður sjálfvirku- og handvirku merkinganna voru bornar saman með þvf að reikna kappa Dice líkindastuðul auk fylgnistuðuls fyrir hvert þessara 38 svæða. Endurtekningarhæfni not- andans var einnig metin með því að reikna kappa Dice líkindastuðla fyrir svæðin 38. Niðurstöður Ekki var tölfræðilega marktækur munur á rúmmáli svæðanna 38 eftir því hvort þau voru merkt sjálfvirkt eða handvirkt (p=0,99). Meðal kappa Dice líkindastuðull var 0,79+0,12 (meðaltal ± staðalfrávik) og meðal fylgni- stuðull var 0,67±0,20 (meðaltal ± staðalfrávik) fyrir öll 38 svæðin. Kappa Dice Ifkindastuðull fyrir endurtekningarhæfni notandans var 0,91±0,05 (meðaltal ± staðalfrávik). Ályktun Gott samræmi reyndist á milli sjálfvirku og handvirku merkinganna á 38 svæðum f heila. Að auki var endurtekningarhæfni notandans mjög góð. Hafa ber í huga að hvorug aðferðin gefur upplýsingar um raunveruleg rúmmél svæðanna 38 en hinsvegar getur samanburður þeirra gefið vísbendingu um hversu áreiðanleg sjálfvirka rúmmálsgreiningin er. Skimun fyrir áhættuþáttum skyndidauða íþróttamanna. Baldur Þórólfsson1, Axel F. Sigurðsson2, Gunnar Þór Gunnarsson3, Frfða Rún Þórðardóttir4. 'Læknanemi við Háskóla Islands, !Leiðbeinandi - hjartalæknir Landspítala JMeðleiðbeinandi - hjartalæknir Sjúkrahúsinu á Akureyri, lektor Háskóla íslands, 4Meðleiðbeinandi - næringarfræðingur, unglingalandsliðsþjálfari frjálsfþróttasambands íslands. Inngangur Skyndidauði meðal ungs keppnisfþróttafólks er sjaldgæft en vel þekkt fyrirbæri. ( flestum tilvikum má rekja slfk dauðsföll til undirliggjandi hjartasjúkdóms. Rannsóknir benda til þess að draga megi úr hættu á skyndidauða ungs íþróttafólks með reglubundinni skimun. Slík skimun byggir yfirleitt á sjúkrasögu, nákvæmri hjartaskoðun og í sumum tilvikum hjartalínuriti og hjartaómskoðun. Markmið rannsóknarinnar voru að rannsaka fýsileika skimunar á ungum íslenskum keppnisfþróttamönnum í því skyni að móta leiðbeiningar fyrir lækna og íþróttaforystuna til þess að draga úr hættu á skyndidauða. Þessum markmiðum má skipta íþrennt: 1. Að kanna tíðni áhættuþétta í sjúkrasögu, hjartaskoðun og hjartalínuriti. 2. Að skoða í hve mörgum tilvikum þörf er á frekari rannsóknum svo sem þrekprófi, hjartaómskoðun, tölvusneiðmyndatöku eða segulómskoðun. 3. Að meta kostnað og umfang slíkrar skimunar til að geta skipulagt umfangsmeiri skimanir í framtíðinni. Við framkvæmd skimunarinnar var stuðst við ráðleggingar Evrópusamtaka hjartalækna (European Society of Cardiology). Efniviður og aðferðir Þýði rannsóknarinnar var íslenskt íþróttafólk á aldrinum 18-35 ára sem stundar keppnisíþróttir sem fela í sér mikla líkamlega áreynslu. 105 íþróttamenn (70 karlar og 35 konur) voru skimaðir fyrir áhættuþáttum skyndidauða. Skimunin fór þannig fram að tekin var heilsufarssaga íþróttamannsins og nánustu ættingja hans, nákvæm líkamsskoðun varframkvæmd af hjartasérfræðingi eftir gátlista ásamt því sem hjartalfnurit af íþróttamanninum var túlkað eftir gátlista. Niðurstöður Algengustu sjúkdómar sem komu fram í heilsufarssögu voru ofnæmi eða exem hjá 29 (28%) og astmi hjé 25 (24%). Alls töldu 16 (15%) sig hafa upplifað óeðlilega mæði við áreynslu, 13 (12%) lýstu brjóstverk við áreynslu, 7 (7%) höfðu fundið fyrir hjartsláttartruflunum við áreynslu, 11 (10%) höfðu fundið fyrir yfirliðstilfinningu við éreynslu og 40 (38%) höfðu upplifað svima við áreynslu. Hjartaskoðun var eðlileg hjá 84 (80%). Hjartalínurit var greinilega óeðlilegt hjá 22 (21%), vægar breytingar voru til staðar hjá 23 (22%) og línurit var eðlilegt eða nánast eðlilegt hjá 60 (57%) Ályktanir Unnt er að framkvæma einfalda skimun á íþróttamönnum með litlum tilkostnaði. Fremur algengt er að íþróttamenn lýsi sjúkdómseinkennum sem tengja má við hjartasjúkdóma. Einnig er óeðlilegt hjartalínurit algengt meðal ungra íþróttamanna. Þrátt fyrir þetta er ólíklegt að um undirliggjandi hjartsjúkdóma sé að ræða. Búast má við að gera þurfi hjartaómskoðun til frekari kortlagningar hjá fjórðungi hópsins. Stofnfrumur í AML, ALL og CLL hvíthlæðum Birgir Guðmundsson (a), Hekla Sigmundsdóttir (b) (a) Læknanemi við háskóla íslands (b) Rannsóknastofa í stofnfrumufræðum Inngangur Hvftblæði er illvígt krabbamein blóðs og beinmergs sem getur verið erfitt að lækna og þó (ækning virðist hafa átt sér stað kemur það oft upp aftur. Ástæða þess er talin vera að krabbameinsstofnfrumursem liggja í dvala í beinmerg meðan á meðferð stendur komist hjé meðferðinni. Hægt væri að vinna á markvissari hátt gegn sjúkdómnum ef meðferð væri beint betur gegn þessum stofnfrumum. Til að það sé hægt þarf að finna þessar frumur sérstaklega. (þessarri rannsókn var athugað hvort hægt væri að finna frumuhópa í nokkrum hvítblæðum; bráðahvftblæði mergfruma (acute myeloid leukemia/AML), bráðahvítblæði eitilfruma (acute lymphoid leukemia/ALL) og langvinnt hvítblæði eitilfruma (chronic lymphoid leukemia/CLL), m.t.t. þekktra stofnfrumusameinda. Efni og aðferðir Blóð og mergsýni voru fengin frá Blóðmeinafræðideild LSH. Skoðuð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.