Læknaneminn - 01.04.2010, Side 95

Læknaneminn - 01.04.2010, Side 95
dvfnun var þó ekki tölfræðilega marktæk og ekki eins afgerandi hér og áður hefur sést. Ekki sást afgerandi samband milli C4B*Q0 og LLT (GOLD-I) en dvínun C4B*Q0 með aldri sást einnig þar. Umræður Þessar niðurstöður sýna að C4B*Q0 er áhættuþáttur fyrir LLT (GOLD-II), líkt og fyrir kransæðasjúkdóm, og í báðum tilvikum virðist um að ræða samverkan C4B*Q0 og reykinga. C4B*Q0-arfberar virðast svo á einhvern hátt vera mun næmari fyrir skaðlegum áhrifum reykinga en þeir sem ekki bera arfgerðina. Þessi næmni endurspeglast í dvínandi tíðni C4B*Q0 með aldri hjá heilbrigðum reykingamönnum. Þessi dvínun varð minni í núverandi rannsókn en búist var við, en benda má á, að fjöldi kransæðasjúklinga er hugsanlega vanmetinn í BOLD-rannsókninni þar sem hann byggir einungís á svari við spurningu um hvort sjúklingur hafi verið greindur með kransæðasjúkdóm, en ekki á skoðun. Þessi hópur verður skoðaður aftur að tveimur árum liðnum og fæst þá úr þessu greint. Ályktun Arfberar með C4B*Q0 eru sérstaklega næmir fyrir skaðlegum áhrifum reykinga, og ef þeir reykja þá eru þeir í verulegri hættu á að fá kransæðasjúkdóm eða LLT (GOLD-II) um miðjan aldur. Breytileiki í genatjáningu L68Q cystatin C arfbera Inngangur Arfgeng heilablæðing er erfðasjúkdómur sem finnst eingöngu á íslandi. Hann erfist rikjandi og ókynbundið. Sjúkdómurinn orsakast af mislestursstökkbreytingu í cystatin C sem leiðir til þess að prótíníð verður óstöðugt, er brotið niður og myndar útfellingar í slagæðum heilans. Útfellingarnar valda þykknun á æðaveggjum, að lokum rofna æðarnar og það blæðir inn á heilann. Blæðingarnar geta valdið skyndilegum dauða eða valdið ýmsum einkennum eins og heilabilun. Meðalllftimi kvenna er 30,2 ár en 32 ár fyrir karlmenn. Skoðuð voru fjögur gen sem voru misjafnlega tjáð milli arfbera og viðmiðunarsjúklinga, L-PGDS, SFRP2, COLIVAl og CTGF. Tvö af þeim, L-PGDS og SFRP2 voru misjafnlega tjáð milli langlífra og ungra arfbera. COLIVAl og CTGF voru skoðuð vegna fyrri athugana þar sem hefur sést að kollagen magn eykst í æðaveggjunum og CTGF getur örvað myndun þess. Efniviður og aðferðir Notaðar voru þrjár aðferðir til þess að staðfesta greininguna é genatjáningu með DNA örflögutækninni. Raun tíma kjarnsýrumögnun var notuð til þess að staðfesta greininguna á genatjáningunni. Ónæmisblettun var notuð til þess að staðfesta að mismunurinn kæmi fram í prótín framleiðslunni. Ónæmislitanir voru til þess að staðfesta prótín framleiðsluna og til að staðsetja prótínið. Aðeins L-PGDS var skoðað með öllum þessum aðferðum. Niðurstöður Raun tíma kjarnsýrumögnunin fyrir L-PGDS, SFRP2, COLIVAl og CTGF samræmdist greininingu DNA örflögutækninnar að nokkru leiti. Aukin tjáning var á L-PGDS hjá langlífum arfberum en sFRP2 var aðeins aukið hjá einum þeirra. Hægt var að sjá smá tilhneigingu til aukinnar tjáningar á COLIVA1 hjá arfberum en engin hækkun var að sjá á CTGF. Niðurstöður úr Western blot fyrir L-PGDS voru ómarktækar þar sem mótefnið sem var notað virkaði ekkiþar sem ósértæk litun kom fram. Ónæmislitanir sýndu að L-PGDS er staðsett í æðaveggjunum í heilasneiður frá arfberum. Með flúrljómun mótefnalitun var hægt að sjá samleitni milli cystatin C og L-PGDS. Þó var einnig litun fyrir L-PGDS í æðaveggjum viðmiðunar-einstaklinga. L-PGDS var einnig staðsett í amy- loid p (A|3) skellum hjá Alzheimers sjúklingi. Umræður Kanekiyo og félagar höfðu áður sýnt fram á að L-PGDS er Af5 bindiprótín og því vaknaði upp sú spurning hvort L-PGDS gæti haft sama hlutverk í arfgengri heilablæðingu. Það gæti þá verið hluti af útskýringunni af hverju sumir arfberar lifa eðlilegu lífi meðan aðrir látast langtfyriraldurfram. Tjáning SFRP2 var aukin í einum langlífum arfbera en greining á tjáningu með DNA örflögutækni sýndi að CC8 hefði líka aukna tjáningu. Óljóst er hvernig á því stendur að CC2 er eini með aukna tjáningu en óvíst er hvort það spili inn í að hann er eini arfberinn sem erfir stökkbreytinguna frá föður. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að kollagen finnst í auknu magni í æðaveggjum arfbera. Þar sem CTGF örvar myndun kollagens og er hluti af TGF-p boðleiðinni er talið hugsanlegt að TGF-(3 hafi hlutverk í meinmynd arfgengar heilablæðingar. Vitað er að cystatin C getur hamlað bindingu TGF-p við viðtaka sinn en ekki er víst að hvort að stökkbreytt cystatin C geti bundist við viðtakann og er magn þess líka bara um þriðjungur þess sem finnst í heilbrigðum einstaklingum. Designing and cloning of short hairpin RNAs into a retroviral vector Guðrún Arna Jóhannsdóttir, Pekka Jaako and Stefán Karlsson Department of Molecular Medicine and Gene Therapy, Lund University hospital, Lund, Sweden Objective RNA interference (RNAi) is a cellular process where double-stranded RNA (dsRNA) intro- duced into cells knocks down expression of a homologous gene with fully or partially complementary sequences. The dsRNA can be either endogenous or exogenous. The main naturally occurring small RNAs are short inter- fering RNAs (siRNAs) and micro RNAs (miRNAs). Over the last three decades RNAi has been a popular research object and it has been increasingly applied as a tool in molecular biology and therapeutics. The aim of the current project was to design miRNA-styled shRNAs against three selected candidate genes that might have an interesting mechanistic role in Diamond-Blackfan anemia, and clone them into a retroviral expression vector. Materials and Methods Six hairpin primers were designed targeting mouse p21, RBl and ALAS2, two hairpin primers targeting each gene. To complete the production of the shRNA oligonucleotide a loop and immediate flanking sequences of miR-30 miRNA were incorporated into the hairpin primers. Polymerase chain reaction (PCR) was used for amplification of the shRNA oligonucleotide. PCR products were digested with Xhol and EcoRI restriction enzymes and ligated into pMSCV-miR30 retroviral expression vectors. After transformation, antibiotic selection was aþþlied to screen insert-positive colonies, which were eventually confirmed by sequencing. Results DNA sequencing of the shRNA-inserts confirmed that the cloning was done successfully with three hairpin primers out of six. Conclusion After a successful cloning, shRNA-carrying retroviruses are going to be produced by transfecting a virus-producing cell line with the created retroviral expression vector. These viruses are then used for transducing bone-marrow cells from a Diamond-Blackfan anemia mouse model in order to study if silencing of these genes can reverse the disease phenotype both in vitro and in vivo.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.