Læknaneminn - 01.04.2010, Side 98

Læknaneminn - 01.04.2010, Side 98
hjartaskurðaðgerð tengist gáttatifstilfellum. Styrkur ómega-3 FÓFS í himnum RBK á að endurspegla stöðu fitusýra í himnum hjartavöðvafruma. Úrtak rannsóknarinnar sem samanstóð af 35 þátttakendum var fylgt eftir. þar til að þeir fengu gáttatif í meira en 5 mínútur eða lágu á spítalanum í meira en 2 vikur eftir aðgerð. Þátttakendur eru valdir með tilliti til kransæðasjúkdóms og að vera á aldursbilinu 40 - 65 ára. Það er frábending ef einstaklingurinn hefur sögu um gáttatif. þarf að fara í bráða kransæðahjáveituskurðaðgerð eða eru að taka lyfin amíódarón eða sótalól sem markvisst eru notuð við gáttatifi. Þeir einstaklingar sem uppfylla öll skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni eru beðnir um að hætta töku lýsis eða ómega-3 hylkja meðan á rannsókn stendur. Rannsóknin er tvíblind, framsýn, lyfleysustýrð, slembiröðuð samanburðarrannsókn. Þátttakendum er skipt í tvo hópa, lyfjahóp sem tekur 2 hylki af ómega-3 tvisvar á dag og lyfleysuhóp sem tekur 2 ólífuolíu hylki tvisvar á dag. Hylkin eru búin til hjá Lýsi. Til eru svör við spurningalistum frá öllum þátttakendum rannsóknarinnar þar sem meðal annars kemur fram kyn, aldur, þyngd, reykingar, lýsisnotkun og fiskneysla. Ennfremur eru til framvinduskrár fyrir hvern þátttakanda þar sem fram koma t.d. upplýsingar um hvort þeir fengu gáttatif eða ekki og fjölda legudaga á sjúkrahúsi. Blóðsýni eru tekin úr þátttakendum á aðgerðardag, rauðblóðkornasýni skilin frá og geymd í frysti við -78°C. Heildarfituefni RBK er einangrað með lífrænum leysum (klóróform/metanól). Fitusýrur fituefnisins eru metýleraðar og fitusýrumetýlesterarnir siðan aðgreindir í gasgreini. Notað er sérhannað tölvuforrit (HP 3365 Chemstation) sem reiknar út hlut (%) hverrar fitusýru í frumuhimnum RBK. Leitast er við 'að svara þeirri spurningu hvort tiltölulega hár styrkur ómega-3 FÓFS í himnum hjartavöðvafruma minnki líkur sjúklings á að fé gáttatif eftir opna hjartaskurðaðgerð. Niðurstöðurnar benda til að styrkur ómega-3 FÓFS í fósfólípíðum RBK hafa ekki áhrif á tíðni gáttatifs hjá sjúklingum eftir opna hjartaskurð- aðgerð. Enginn marktækur munurfannst þegar aðrar fitusýrur en ómega-3 FÓFS voru kannaðar. (slendingar eru frekar lágir í hlutfalli ómega-6/ ómega-3 FÓFS og virtist vera meiri líkur á gátta- tifi hjá þeim sem höfðu minna hlutfall þ.e.a.s. meira af ómega-3 FÓFS á kostnað ómega-6 FÓFS, en ekki marktækur munur á ferðinni. Það væri áhugavert að gera áfram-haldandi rannsóknir tengt því með fleiri þétttakendum. Hafa skal í huga að meistaranemi tekur við rannsóknarverkefninu og mun klára að vinna úr öllum 170 sýnunum. Áhugavert verður að sjá hver niðurstaðan verður varðandi tengsl ómega-3 FÓFS í RBK og tíðni gáttatifstilfella. Gæði skilunarmeðferðar á íslandi 2003- 2008. Helga Kristín Mogensen1, Runóifur Pálsson12 , Ólafur Skúli Indriðason2. 'Læknadeild Háskóla fslands;2nýrnalækningaeining lyflæknissviðs I, Landspltala. Irmgangur Lokastigsnýrnabilun verður sifellt algengari á Vesturlöndum. Skilun er hornsteinn meðferðar en einnig þarf að hyggja vel að fylgikvillum nýrnabilunar og meðhöndla þá á heildrænan hátt þannig að líf sjúklingsins verði sem farsælast og lengst. Á síðustu árum hafa komið fram klínískar leiðbeiningar og meðferðarmarkmið þar að lútandi. Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna gæði skilunarmeðferðar á Islandi með hliðsjón af þessum leiðbeiningum. Aðferðir Þetta var afturvirk rannsókn sem beindist að öllum sjúklingum sem gengust undir skilunarmeðferð á Landspítala lengur en f 3 mánuði á árunum 2003-2008. Þeir voru fundnir úr (slensku nýrnarbilunarskránni. Upplýsinga var aflað úr sjúkraskrám þessara einstaklinga. Eftirfarandi gæðavfsar meðferðar voru kannaðir: Hemóglóbín, járnmettun, hlutfallsleg lækkun úrea, kolsýra, kalsíum, fosfót, PTH, CRP og albúmín. Rannsóknartímanum var skipt í 2 tímabil 2003-2005 og 2006-2008 og kannað hvort breytingar hafi orðið á ofangreindum þáttum. Niðurstöður Við fundum 173 sjúklinga, af þeim voru 51 í skilun í upphafi tfmabils. 61 voru aðeins á fyrra tímabili, 60 voru aðeins á seinna og 52 voru á báðum tímabilum. 107 voru í blóðskilun, 52 voru f kviðskilun og 14 voru í bæði. Meðalaldur á fyrra tímabili var 62,69+17,98 ár og 62,73±17,66 ár seinna tímabil. Fyrir hemóglóbín voru 62,1% sjúklinga innan meðferðarmarkmiða á fyrra tímabilinu og 61,5% á því seinna en munurinn var ekki marktækur (p=.0,93). Fyrir járnmettun voru 77,9% innan meðferðarmarkmiða á fyrra tímabili og 69,6% en munurinn var ekki marktækur ((p=0,21). (tilviki kalsíum voru 72,4% innan meðferðarmarkmiða á fyrra tímabili og 65,5% á því seinna, en munurinn var ekki marktækur (P=0,35). Aðeins 45,2% sjúklinga voru innan meðferðarmarkmiða fyrir fosfór á fyrra tímabilinu og 53,4% á því seinna, en munurinn var ekki marktækur ((p=0,26). Fyrir PTH voru 26,5% innan meðferðarmarkmiða á fyrra tímabili en 34,7% á seinna, en munurinn var ekki marktækur ((p=0,22). Fyrir CRP voru 33,8% innan með- ferðarmarkmiða á fyrra tímabili en 47,9% á seinna, en munurinn var ekki marktækur (p=0,10). Fyrir kolsýru voru 70,2% innan meðferðarmarkmiðs é fyrra tímabilinu og 64,5% á því seinna, e munurinn var ekki marktækur (p=0,40). Hjá URR voru 80,4% innan meðferðarmarkmiða á fyrra tímabili og 72,6% á því seinna, en munurinn var ekki marktækur (p=0,80). Borin var saman blóð- skilunar- og kviðskilunarmeðferð fyrir allt tímabilið. Fyrir hemóglóbín var marktækur munur (p=0,000) og einnig fyrir járnmettun (p=0,02), fyrir kalsfum var ekki marktækur munur (p=0,52), fyrir fosfór var ekki marktækur munur (p=0,25), fyrir PTH var ekki marktækur munur (p=0,38), fyrir CRP ekki marktækur munur (p=0,54) og fyrir kolsýru var marktækur munur (p=0,000). Ályktanir Þrátt fyrir leiðbeiningar sem gefnar hafa verið út hefur ekki orðið mikil framför á skilunardeild LSH á síðustu árum. Líkt og víða annars staðar gengur ekki nógu vel að mæta gæðastöðlum. Þörf er á sérstökum úrræðum til að bæta úr því og tryggja að klínískum leiðbeiningum og meðferðarstöðlum sé fylgt. Þarf sérstaklega að huga betur að PTH og fosfóri. Robot-assisted laparoscopic prostatectomy at the University hospital in Lund 2005- 2008: A systematic review Helgi Þór Leifsson', Rafn Hilmarsson2 'Faculty of Medicine, University of lceland. aDepartment of urology - Lund University Hospital. introduction Prostate cancer is the most common cancer in men in the western world. Prostatectomy is a well established curative treatment with proven oncological results. Advances in surgical technique over the last decades have improved the outcome of treatments while reducing complications. The newest surgical intervention, is laparoscopic prostatectomy with robot assistance (da Vinci Robot surgical system, Intuitive Surgical). The robot has a three dimensional camera which adds depth into the visual field, offering high-resolution real-time magnification. Itssmall instruments fit well in the pelvis where little space makes it difficult to work, allowing the surgeon to simulate fine human movement. The aim of the study is to explore the outcome of
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.