Læknaneminn - 01.04.2010, Síða 103
2. og 3. kynslóða kefalóspórína jukust á
tímabilinu (p<0,05). Hinsvegar lagðist notkun
klóramfenikóls alveg af á seinna tímabilinu,
Ályktanir
Penicillín lyf eru algengust en notkun 2. og
3. kynslóða kefalóspórína jókst marktækt.
Algengasta birtingarmynd þessara sýkinga er
nú lungnabólga og sýklasótt. Hátt nýgengi Hi
í nýburum og dénarhlutfall af völdum ekki Hib
hjá öldruðum vekur athygli. Hib bólusetningin
olli fækkun á Hib sýkingum ekki bara hjá
ungum bðrnum heldur í öllum aldurshópum.
Þrávirk lífræn efni í blóði barnshafandi
mæðra á íslandi
Ragnheiður Martha Jóhannesdóttir
Leiðbeinandi: Kristín Ólafsdóttir
Þrávirk lífræn efni er hópur skyldra efna sem
eru stöðug bæði í náttúrunni og i lífverum.
Efnin skipta þúsundum og hafa ýmist verið
notuð sem skordýraeitur, í iðnaði eða til
eldvarnar. Þau eru mjög fituleysanleg og
berast því auðveldlega inn í lífverur og
eykst magn þeirra eftir því sem ofar dregur
í fæðukeðjuna. Þau berast um heiminn með
loft- og sjávarstraumum og finnast nú nær
allstaðar eins og á íslandi þar sem notkun
flestra efnanna hefur verið sáralitil. Fólk sem
lifir á sjávarfangi, eíns og fólk á norðlægari
svæðum heimsins hefur því safnað miklu
magni þessara efna í sig. Framleiðsla flestra
efnanna hefur verið takmörkuð eða bönnuð
í langan tíma og því hefur magn efna eins
og PCB, DDT og HCH minnkað (náttúrunni
á síðustu árum, en ný efni eins og PBDE
(eldvarnarefni) og PFC (perflúorefni) eru
farin að aukast í staöinn. Flest efnin eru lítið
bráðeitruð, en langtímaáhrif eru talin tengjast
ónæmiskerfinu, hormónabúskap og sum eru
krabbameinsvaldandi. Talið er að fóstur séu
viðkvæmust fyrir áhrifum efnanna,
(þessari rannsókn var athugaður styrkur
ýmissa lífrænna efna í blóði mæðra. Konur á
30.-40. viku meðgöngu gáfu 20 mL blóðsýni
og svöruðu stuttum spurningalista. Blóðið
var greint og styrkur eftirfarandi þrávirkra
lífrænna efna mældur: 18 PCB efni, HCB,
6 PBDE efni, 3 HCH-efni, 4 klórdan-efni, 2
toxafen-efni og 4 DDT-efni og í 10 konum
var mælt magn 2. PFC efna. Markmið
rannsóknarinnar var fylgjast með þróun
mengunar í konum á Islandi. Einníg étti
að athuga hvort styrkur þeirra tengdist
líkamsþyngdarstuðlí, fæðuvenjum, aldri,
barnafjölda og tímalengd brjóstagjafar.
(Ijós kom að frá 2004 hefur verið marktæk
lækkun á magni PCB efna, HCB og þ-HCH,
trans-nónaklórs, oxýklórdans og p,p’-DDE.
í fyrsta sinn var verið að mæla PBDE og
perflúorefni. ísamanburði víð norðlægari
svæði og Kanada erum við nær lægri
mörkunum hvað varðar PFC og styrkur PBDE
er svipaður og í eldri konum í Kanada.
Frá árinu 1995 hefur magn PCB lækkað um
33%, magn HCB lækkað um 36%, þ-HCH
hefur lækkað um 17%, trans-nónaklór hefur
lækkað um 35%, magn oxýklórdans hefur
lækkað um 35% og p,p'-DDE hefur lækkað
um 26%. Þetta gæti þýtt aó styrkur þessara
efna er að lækka í náttúrunni en einnig eru
matarvenjur fólks að breytast, Fólk borðar
minna sjávarfang en áður og meira af
framleiddum mat. Notkun efnanna hefur
einnig minnkað til muna. Sama þróun hefur
sést í nélægum löndum.
Tjáning kolvetna blóðflokka á undirhópum
hvítra blóðkorna ákvörðuð með hjálp
flæðifrumusjár
Rakel Ingólfsdóttir'!, Annika Hult2-3, Martin L
Olsson2'5-
'Læknadeild Háskóla (slands, 2Lund University
Hospital, Sweden, ’Division of Hematology and
Transfusion Medícine, Department of Laboratory
Medicine, Lund University, Lund Sweden,
Inngangur
Það eru >300 þekktir mótefnavakar á rauðum
blóðkornum og eru þeir flokkaðir (blóðflokka
kerfi, samansöfn og raðir eftir erfðafræðilegri
vitneskju um þá. Mótefnavakar ABO
blóðflokka kerfisins og P1/Pk/P tengdir
mótefnavakar hafa allir kolvetna uppbyggingu
og eru þeir meðal klinískt mikilvægustu
mótefnavaka blóðflokkanna. Suma blóðflokka
mótefnavaka er hægt að finna í seytum
líkamans, (öðrum vefjum, i blóðvökva og á
yfírborði hvítra blóðkorna (HBK). Tjáning
blóðflokka mótefnavaka á HBK hefur þó verið
þrætuepli i mörg ár.
Efniviður og aðferðir
Flæðifrumusjér var notaður til þess að
magngreina gróflega tjáningu A, B, Pk, P og P1
mótefnavaka á mismunandi undirhópum HBK:
T-hjálpar fruma(CD4), T-dráps fruma(CD8), B
fruma, kleifkirninga, náttúrulegra dráps(NK)
fruma og hnattkjarnaátfruma. HBK voru
einangruð úr blóðprófum og merkt með
einstofna mótefnum. Eftir það voru frumurnar
lesnar af FACS Calibur flæðifrumusjá og
niðurstöðurnar greindar með Cellquest
hugbúnaðinum. í heildina voru 37 blóðpróf frá
heilbrigðum sjálfboðaliðum með ákjósanlega
svipgerð notuð í rannsóknina. Þar af voru 12
blóðpróf úr A blóðflokki: 3 A, seytar, 3 A, ekki
seytar, 3 A2 seytar og 3 A2 ekki seytar, 6 úr
B blóðflokki: 3 seytar og 3 ekki seytar og að
lokum 19 úr 0 blóðflokki.
Niðurstöður
T próf fyrir einn hóp var notað til bess að
ákvarða hvort tjéning A, B, Pk, P and P1
mótefnavaka á hverjum undirhópi HBK, var
tölfræðilega marktæk. Prósent jákvæðra
frumna voru notuð sem próf breyta og próf
gildin voru neikvæðu viðmiðunar gildin (t.d.
blóðflokkur 0 fyrir A/B mótefnavaka). A/B
mótefnavakar voru marktækt tjáðir á öllum
rannsökuðum undirhópum HBK(P<0.05).
Að aukí sýndu B- og T-frumur tilhneigingu
til sterkari tjáningar A/B mótefnavaka hjá
seytum en ekki seytum. Pk mótefnavakar voru
marktækt tjáðir á T frumum(CD4 og CD8)
og kleifkirnungum. Tjáning P mótenavaka
var marktæk á öllum HBK undirhópunum
að undanskildum NK frumunum. T- og B
eitilfrumur sýndu tilhneigingu til sterkari
tjáningar P mótefnavaka (P1+ blóðsýnum
en Pl- sýnum. B frumur, kleifkirningar og
hnattkjarnaátfrumursýndu veika tjáníngu P1
mótefnavaka(5-13% frumna jákvæðar) en þar
sem einungis 3 Pl+ próf voru rannsökuð var
tjáningin ekki marktæk(P>0.05).
Ályktun
Tjáning kolvetna mótefnavaka á HBK var
ákvörðuð með hjélp flæðifrumusjá og
niðurstöðurnar voru að einhverju leyti
frábrugðnar niðurstöðum fyrrí rannsókna,
Það sem kom mest á óvart var A/B
mótefnavaka tjáning á eitilfrumum úr
blóðprófum ekki seyta. Áður fyrr var þvi
haldið fram að einungis seytar tjáðu A/B
mótefnavaka á HBK og að mótefnavakarnir
kæmu frá plasma og því væri tjáning þeirra
undir stjórn seyti genasætisins(FUT2). Að
auki hefur ekki fyrr verið greint frá tjéningu
A/B mótefnavaka á kleifkirnungum og
hnattkjarnaátfrumum. Tjáningarmynstur P/
Pk/P1 er einnig að einhverju leyti frábrugðið
niðurstöðum fyrri rannsókna en krefst frekari
greiningar.
Lykiiorð
Blóðflokkar, hvít blóðkorn, mótefnavakar,
flæðifrumusjá
Clostridium difficile sýkingar á Landspitala
- háskólasjúkrahúsi 1998-2008
Rúnar Bragi Kvaran', Elsa Björk Valsdóttir1'2,
Helgi Kjartan Sigurðsson2 og Magnús
Gottfreðsson''3
’Læknadeild Háskóla fslands; 'Landspitali
- háskólasjúkrahús, skurðdeild og
3smitsjúkdómadeild.