Læknaneminn - 01.04.2010, Síða 104
Tilgangur
Að kanna faraldsfræði og alvarleika ristilbólgu
af völdum C. difficile á LSH og meta hvort
meinvirkni sýkingarinnar hafi aukist á íslandi
líkt og víða á Vesturlöndum.
Efniviður og aðferðir
Sýkingar með C. difficiie á LSH árin 1998-
2008 voru fundnar með því að finna jákvæð
eiturefnapróf í hægðasýnum. Klínískar
upplýsingar um sjúklinga sem greindust sjötta
hvern mánuð á rannsóknartímabilinu voru
skoðaðarsérstaklega.
Niðurstöður
Á11 ára tímabili reyndist 1.861 sýni af 11.981
(16%) jákvætt fyrir C. difficile og einstakar
sýkingar voru 1.492. Nýgengi sýkingar
hækkaði um 29% á tímabilinu og var hæst
í aldurshópnum >80 ára í hverjum það var
387 sýkingar. 249 sýkingar greindust á
LSH í janúar og júni árin 1998-2008. Falskt
jákvæð eða ómarktæk mótefnavakapróf
voru 12 (5%). Meirihluti sjúklinga (n = 170,
72%) tók sýklalyf innan þriggja mánaða fyrir
sýkingu og algengasta einkenni sýkingar var
niðurgangur (88%). 173 (93%) þeirra sem
nægar upplýsingar fundust um náðu bata
eftir sýklalyfjameðferð og enginn gekkst
undir aðgerð.
Ályktun
Sýkingum hefur fjölgað undanfarin ár en
ekki jafnmikið og innsendum sýnum. Fáir
sýkjast án þess að hafa einn eða fleiri þekktra
áhættuþátta. Flestum dugði stök meðferð
með metrónídazóli til þess að uppræta
sýkingu. Meinvirkni C. difficile virðist ekki hafa
aukist hérá landi.
Rut Skúladóttir
Inngangur
Skurðaðgerð er helsta meðferðin við
lungnakrabbameini og er langoftast beitt
blaðnámi. Markmið þesssarar rannsóknar
var að kanna ábendingar og snemmkomna
fylgikvilla blaðnéms á íslandi.
Efniviður og aðferðir
213 sjúklingar sem gengust undir blaðném
vegna lungnakrabbameins é árabilinu 1999-
2008. Kannaðar voru ébendingar, fylgikvillar,
æxlisgerð og TNM-stigun. Aðhvarfsgreining
var notuð til að meta áhættuþætti fylgikvilla.
Niðurstöður
85 sjúklingar (40%) greindust fyrir
tilviljun en aðrir vegna einkenna
sjúkdómsins. Kirtilmyndandi (62%) og
flöguþekjukrabbamein (29,1%) voru
algengust. Flestir greindust á stigi I (59,6%)
og stigi II (17,8%), 7% á stigi IIIA og 14,8% á
stigum IIIB-IV. Miðmætisspeglun var gerð
hjá 13,6% sjúklinga fyrir blaðnámið. Meðal
aðgerðartimi var 128 mín. og blæðing í aðgerð
580 ml. Sextán sjúklingar (7,5%) fengu
alvarlega fylgikvilla og 36 (17%) minnihéttar
fylgikvilla, oftast lungnabólgu (6,1%) og
gáttatif/flökt (6,1%). Tólf sjúklingar þurfu
enduraðgerð, tveir vegna fleiðruholssýkingar
og einn vegna berkjufleiðrufistils. Eldri
sjúklingar með hátt ASA skor og langa
reykingassögu voru í aukinni hættu á að fá
fylgikvilla eftir aðgerðirnar. Legutími eftir
aðgerð var 10 dagar (miðgildi). Enginn
sjúklingur lést <30 daga frá aðgerð en fjórir
(1,9%) < 90 daga frá aðgerð.
Ályktun
Skammtímaérangur blaðnámsaðgerða vegna
lungnakrabbameins er góður hér á landi
samanborið við aðrar rannsóknir.
Áhrif oflipurðar á stoðkerfiseinkenni í
ungmennum
Sigurbjörg Ólafsdóttir, Helgi Jónsson1,2.
'Læknadeild Háskóla íslands, 26igtardeild LSH.
Inngangur
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna
sambandið milli oflipurðar og stoðkerfis-
einkenna og áhrif oflipurðar á íþróttaiðkun.
Árið 1997 var gerð rannsókn þar sem 267
tólf ára skólabörn voru metin með tilliti til
oflipurðar og reyndist algengi oflipurðar
mjög hátt hér á landi, einkum hjá stúlkum,
en enginn marktækur munur fannst þá á
hópunum með tilliti til stoðkerfiseinkenna.
Efniviður og aðferðir
163 íslensk ungmenni úr sama hópi, fædd
á árunum 1984 og 1985, voru skoðuð
samkvæmt Beighton skilmerkjum líkt og
gert var i fyrri rannsókninni. Þé svöruðu
23 einstaklingar til viðbótar spurningum
í gegnum síma og voru svör þeirra tekin
með við mat á ofhreyfanleika í liðum
samkvæmt sérhönnuðum spurningalista. Allir
þátttakendur svöruðu spurningum varðandi
verki í liðum, tognanir, liðhlaup, íþróttaiðkun
og fleira.
Niðurstöður
Algengi oflipurðar (Beighton a4) var
33,7% hjá konum og 16,2% hjá körlum.
Þessar niðurstöður eru svipaðar og í fyrri
rannsókninni. Öll Beighton skilmerkin voru
algengari meðal kvenna fyrir utan yfirréttu
í hnjám um a10°, sem var algengari hjé
körlum. Konur sem fengu a2 stig é Beighton
kvaróanum virtust líklegri til verkja (80,3%
vs. 58,6%, x2 P<0,05) og einnig sést aukin
tilhneiging til íþróttameiðsla hjá þessum
hópi. Karlar sem fengu a2 stig höfðu hins
vegar marktækt síður þurft að hætta
íþróttaiðkun vegna meiðsla (9,7% vs. 44,8%;
p<0,01) en ekki var marktækt samband milli
Beighton stigafjölda og liðverkja hjé körlum.
Ofhreyfanleiki i hnjám olli þó marktækt
frekar verkjum á því svæði (61,5% vs. 34,7%;
p<0,01) og tilhneiging sést í sömu átt
varðandi önnur einstök svæði. Samkvæmt
spurningalistanum var algengi ofhreyfanleika
(a2 skilmerki uppfyllt) 66,0% hjá konum
og 33,8% hjá körlum. Konur með &2 stig
á spurningalistanum höfðu oftar þurft að
hætta íþróttaiðkun vegna meiðsla (28,6%
vs. 3,8%; p<0,05) og fengu einnig marktækt
frekar verki í liði (81,4% vs. 61,1%; p<0,05).
Ekki var marktækur munur hjá körlum í þessu
sambandi.
Ályktanir
Algengi oflipurðar er mjög hátt hérlendis
hvort heldur sem notuð eru Beighton
skilmerki sem byggjast á skoðun eða
spurningalisti sérhannaður til mats á
ofhreyfanleika. Algengið breytist lítið á
aldrinum 12 til 24 ára. Heildaráhrif oflipurðar
á stoðkerfiseinkenni og íþróttaiðkun virðast
ekki mjög mikil en þó sást aðeins aukin
tilhneiging til verkja og íþróttameiðsla hjá
konum. Ofhreyfanleiki (hnjám virðist hins
vegar valda auknum líkum á verkjum í hnjám.
Vandamál í kjölfar viðbeinsbrota
Höfundur: Sólveig Sigurðardóttir
Inngangur
Hingað til hafa viðbeinsbrot almennt verið
álitin einfaldur áverki sem lagast með einfaldri
meðferð og án mikilla fylgikvilla. Nýlegar
rannsóknir benda þó til þess að vandamál í
kjölfar viðbeinsbrota geta verið töluverð og
auknar efasemdir eru um að sama meðferð
henti öllum.
Efniviður og aðferðir
Upplýsingum var safnað um alla fullorðna
einstaklinga (16-65 ára), búsetta á höfuð-
borgarsvæðinu sem komu é slysadeild LSH
með viðbeinsbrot á érunum 2003-2007.
Níutíu og fimm einstaklingar á aldrinum 16-
65 ára sem fengu hefðbundna meðferð við
viðbeinsbroti á þessu tímabili svöruðu s.k.
DASH (disability of arm, shoulder and hand)
spurningalista. Þar er spurt um einkenni
síðastliðna viku frá öxl, handlegg éða hendi
og getu einstaklinga til að framkvæma
ákveðin verk. Niðurstöðurspurningalistans
eru á skalanum 0-100, þar sem 0 er engin
fötlun og 100 er hámarks fötlun.
Niðurstöður
Niðurstaða DASH spurningalistans var að
meðaltali 11,7. Konur voru með marktækt
verri útkomu, að meðaltali 17,6 á móti 10,0