Bændablaðið - 21.09.2023, Side 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
FRÉTTIR
2. – 7. desember 2023
Fararstjórn: Marianne Eiríksson
Verð 249.300 kr. á mann í tvíbýli
Bókaðu núna á bændaferðir.is
Í faðmi fjallanna er einstakt að vera á aðventunni og
Tíról í Austurríki er alger ævintýraheimur.
Dvalið verður í bænum Seefeld og haldið í
skoðunarferðir til heillandi borganna Brixen,
Innsbruck og Kufstein sem verða í sérstökum
jólabúningi.
Aðventutöfrar
í Tíról
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2
108 Reykjavík
Ræktun:
Illgresinu sagt stríð á hendur
með umhverfisvænum leiðum
Öflun nýrrar þekkingar
á baráttunni við illgresi í
ræktun er meginmarkmið nýs
samstarfsverkefnis um umhverfis
væna illgresiseyðingu, AGROSUS.
Er um að ræða samevrópskt verkefni og
er Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins (RML)
þátttakandi. Leitast verður við að afla nýrrar
þekkingar í baráttunni við illgresi í ræktun helstu
nytjaplantna í Evrópu og leita umhverfisvænna leiða
við illgresiseyðingu. Hlutverk RML verður m.a. að
afla upplýsinga um aðferðir við illgresiseyðingu hér
á landi og prófa nýjar aðferðir. Mun RML hefja þá
upplýsingaöflun hjá bændum, hagsmunaaðilum og
sérfræðingum á næstu vikum.
Gagnagrunnur fyrir evrópska illgresisstjórnun
Meðal þess sem unnið verður að er gagnagrunnur
fyrir evrópska illgresisstjórnun, skoðaðar hindranir
og tækifæri varðandi illgresi í landbúnaðarvistfræði,
gerðar athuganir á lífrænum illgresiseyðum og
frumgerðaprófanir, unnar ráðleggingar til bænda
og hvernig stuðla má að betra eftirliti.
Að verkefninu, sem hleypt var af stokkunum
í sumar og á að standa yfir í 4 ár, standa 16
samstarfsaðilar frá 11 Evrópulöndum og eru þar á
meðal háskólar, samtök, býli, bændasamtök, spænsk
rannsóknamiðstöð og RML. Vefur verkefnisins er
agrosus.eu. /sá
Lífræni dagurinn haldinn hátíðlegur í Kaffi Flóru
Lífræni dagurinn var haldinn hátíðlegur víðs vegar um landið laugardaginn
16. september. Opin býli voru hjá fjórum framleiðendum í lífrænum búskap
og einn viðburður var á Kaffi Flóru í Grasagarðinum í Reykjavík.
Að sögn Önnu Maríu Björnsdóttur, verkefnastjóra Lífræna dagsins, gekk
hátíðin mjög vel fyrir sig. „Við hjá Lífrænu Íslandi vorum á viðburðinum á
Kaffi Flóru þar sem framleiðendur voru á staðnum að kynna, sýna, gefa smakk
eða selja sínar vörur. Einnig voru sýnishorn frá fleiri framleiðendum. Svo var
lífrænt bingó fyrir börnin og myndir til að lita.“
Nokkur erindi flutt á Kaffi Flóru
Nokkur erindi voru á viðburðinum á Kaffi Flóru. Anna María hélt erindi um
Lífrænt Ísland-verkefnið, sem er samstarfsverkefni matvælaráðuneytisins,
Bændasamtakanna og VORs (Verndun og ræktun – félag um lífræna ræktun og
framleiðslu) um að auka lífræna framleiðslu á Íslandi. Að sögn Önnu Maríu hélt
Stefán Jón Hafstein, höfundur bókarinnar Heimurinn eins og hann er, erindið
Vandinn við matvælakerfi heimsins. Jóhanna Vilhjálmsdóttir, höfundur bókarinnar
Heilsubók Jóhönnu – um áhrif eiturefna á heilsu og umhverfi, hélt erindið Heilsan
og lífrænt mataræði. Eydís Magnúsdóttir og Rúnar Máni Gunnarson, lífrænir
sauðfjárbændur, héldu erindið Af hverju lífrænn sauðfjárbúskapur?
Hliðstæð verkefni
„Hliðstæð verkefni við Lífrænt Ísland eru í gangi á Norðurlöndunum og ekki
að ástæðulausu. Það er gríðarlega margt sem liggur að baki þegar lífræna
vottunarmerkið er á vöru sem skiptir marga neytendur máli, en ekki allir
eru meðvitaðir um. Markmið Lífræna dagsins er að vekja athygli á þessari
tegund ræktunar á Íslandi og leyfa almenningi að kynnast þessu betur, hitta
framleiðendur, fá að smakka afurðir en einnig heyra hvaða máli þetta skiptir
fyrir jörðina, umhverfið og jafnvel heilsu okkar,“ segir Anna María.
Meira verður fjallað um lífræna daginn í næsta tölublaði Bændablaðsins.
/smh
Svava úr gróðurhúsinu í Bjarkarási með smakk.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Anna María Björnsdóttir og Stefán Jón Hafstein. Börn að lita.
Anna María útskýrir af hverju hún
velur lífrænt mataræði.