Bændablaðið - 21.09.2023, Side 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
Þröstur Njálsson er fyrrverandi
togarasjómaður sem snapaði
sér sína fyrstu veiðiferð upp úr
aldamótum til að ná endum Visa-
reiknings saman eftir skemmtiferð
til Spánar.
„Mín sjómennska hófst árið 2001.
Ég var þá tiltölulega nýkominn heim
frá Costa Del Sol og stóð uppi með
Visa-reikning sem ég hafði svo sem
ekki endilega efni á nákvæmlega
þá,“ segir Þröstur. Hann afréð því að
falast eftir veiðiferð á frystitogara
og hafði erindi sem erfiði þegar
honum lánaðist að tryggja sér
afleysingapláss á Venus Hf-19.
Skipið var á þeim tíma gert út
frá Hafnarfirði og laut skipstjórn
hins goðsagnakennda skipstjóra og
netagerðarmeistara, Guðmundar
Jónssonar.
„Ég kunni vel við mig á sjó.
Sjómennskan í heild sinni átti vel
við mig, en það sem alltaf stóð upp úr
fyrir mér var mannskapurinn. Þetta
voru, heilt yfir, harðduglegir og
almennilegir karlar,“ segir Þröstur.
Á Venus sigldi hann um höfin blá
í 13 ár, og kunni þá sjómennsku upp
á hár. Eftir að skipið var á endanum
selt, hélt Þröstur yfir á ísfiskarann
Ásbjörn Re-50.
„Ég get bara orðað það með þeim
hætti fyrir þig að þar á bæ kalla
menn ekki allt ömmu sína. Þetta
var hörkustarf og hörkuáhöfn, og
vafalaust ekki fyrir hvern sem er að
klára sig af á þeim bæ,“ segir hann.
„Þar réri ég í 5 ár en bauðst svo
pláss á glænýju fjölveiðiskipi, Engey
Re-1. Þar opnaðist bara hreinlega
annar heimur enda er ég kominn
þar á gríðarstórt skip þar sem allt
er sjálfvirkt í vinnslunni, sem er allt
annað en ég hafði átt að venjast frá
Ásbirninum,“ segir Þröstur.
Eftir að Engey var seld færði
Þröstur sig yfir á Helgu Maríu, þar
sem hann starfaði allt fram til 12.
desember 2022, en þá lauk hann
sínum sjómannsferli.
Að sögn Þrastar eru fjarverurnar
hvað mest krefjandi þáttur sjómanns-
lífsins. „Og brælurnar. Þær eru oft
ekkert lamb að leika sér við,“ segir
hann og meðfylgjandi mynd ber
svo sannarlega vitni um að svo er
alls ekki. Aðspurður að því hvort
eitthvað standi sérstaklega upp úr í
minningunni að sjómannsferlinum
loknum nefnir Þröstur rannsóknarferð
til Grænlands.
„Þar var sjólagið allt öðruvísi en
ég hafði áður átt að venjast. Eins má
nefna ísjakana; þeir eru þarna á víð
og dreif og setja gríðarlegan svip
á landslagið, sem er nú ekki alltaf
mjög fjölbreytt til sjós eins og gefur
að skilja,“segir hann.
Inntur eftir því hvort hann myndi
ráðleggja börnum sínum að gerast
sjómenn er svarið einfalt.
„Nei. Ég myndi ekki gera það,“
segir hann.
NYTJAR HAFSINS
Það er oft fallegt umlits á hafinu. Myndir / Þröstur Njálsson
„Þar kalla menn ekki
allt ömmu sína“
Þorvaldur B. Arnarson
thorvaldur@bondi.is
Þröstur Njálsson í fullum herklæðum.
Raðað í kör í lestinni á Ásbirni. Eins og sjá má er plássið af skornum skammti.
Á sjó er unnið nótt sem nýtan dag.
Sjómenn við störf á dekki.