Bændablaðið - 21.09.2023, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
Í síðustu viku kynnti Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fjárlaga-
frumvarp sitt fyrir næstkomandi ár. Fjárlög leggja tóninn fyrir rekstur
ríkisins á komandi ári en þar má einnig sjá pólitískar áherslur hvers
tíma endurspeglaðar í fjárhagslegri forgangsröðun.
Til að mynda koma aukin framlög til heilbrigðisþjónustu og lítils háttar
skattalækkun fyrir þau tekjulægstu með hækkun skattleysismarka og
persónuafsláttar, enda hefur verið mikið ákall um þess háttar aðgerðir í
samfélaginu öllu. Mikið hefur verið rætt og skrifað um ýmsar aðgerðir
sem eiga að vega á móti verðbólgunni og auknum álögum á rafmagnsbíla.
Minna fer hins vegar fyrir stöðu landbúnaðarmála í hinni almennu umræðu
og því brýnt að gera það hér.
Heildarframlag til landbúnaðar árið 2024 verður 22.961,2 milljónir
króna samkvæmt frumvarpinu. Skiptast þau í 21.200 milljónir króna til
Stjórnunar landbúnaðarmála, 741 milljónir í Rannsóknir, þróun og nýsköpun
í landbúnaðarmálum og 1.020 milljónir í Stjórnsýslu matvælaráðuneytis.
0,2% lækkun er á fjármagni til landbúnaðarins á föstu verðlagi, nemur
það um 47,7 milljónum króna. Helstu breytingar frá fyrri fjárlögum eru
192 milljón króna framlag til eflingar kornræktar og sem fellur undir
liðinn Ýmis stuðningur við landbúnað og 100 milljón króna aukning við
Greiðslur vegna varna gegn dýrasjúkdómum. Aukning er einnig í framlög
til Matvælastofnunar en eru þau eyrnamerkt verkefnum tengd fiskeldi.
Framlag til búvörusamninga lækkar um 343 milljónir og er það í samræmi
við fjármagnsliði samninganna.
Í fjárlagafrumvarpinu eru dregin fram þrjú meginmarkmið sem lögð er
áhersla á á næsta ári. Eru þau eftirfarandi:
1. Efla fæðuöryggi og standa vörð um heilbrigði plantna
og dýra, velferð dýra og öryggi matvæla.
2. Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna landbúnaðar
og auka bindingu.
3. Skapa skilyrði til fjölbreyttari landbúnaðarframleiðslu með
sjálfbæra landnýtingu og nýsköpun að leiðarljósi.
Skiptist hvert þessara markmiða í tvö til sex verkefni sem er úthlutað á
viðeigandi ábyrgð aðila innan stjórnsýslunnar. Einnig er tekið fram hvort
þeim verkefnum sé veitt aukið fjárframlag eða hvort þau skuli fjármögnuð
innan rammans. Einu verkefnin sem hlutu aukið fjárframlag að þessu sinni
voru áðurnefnd verkefni tengd eflingu kornræktar og dýrasjúkdómum en
því verkefni er sérstaklega beint að riðuvörnum. /SFB
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Auglýst eftir umsækjendum
um stuðning til söfnunar ullar
Matvælaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning
til söfnunar ullar samkvæmt reglugerð nr. 144/2022
um stuðning við sauðfjárrækt (III kafli).
Umsóknum skal skilað inn á skrifstofu Matvælaráðuneytisins
á sérstökum eyðublöðum sem stofnunin lætur í té eigi síðar
en tveimur vikum eftir birtingu auglýsingar.
Stuðningur til söfnunar ullar er háður því að umsækjandi
uppfylli eftirfarandi skilyrði:
1. Aðili skal vera reiðubúinn að taka við allri vinnsluhæfri ull af öllum
framleiðendum sem þess óska.
2. Aðili þarf að sækja ull heim til framleiðanda eða taka á móti ullinni á
móttökustöð sem ekki er lengra frá hverjum einstökum framleiðanda
ullar en 100 km.
3. Að minnsta kosti 30% allrar ullar sem aðili móttekur skal þvegin
hér á landi og jafnframt unnið úr þessari sömu ull band, lopi eða
samsvarandi vara hérlendis.
Umsóknarfrestur er til 9. október næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Matvælaráðuneytið.
Netfang postur@mar.is
Stjórnarráð Íslands
Matvælaráðuneytið
Markaðir
144,9 kr.
Evra
135,26 kr.
USD
167,97 kr.
Pund
318,8169 kr.
95 okt bensín
315,3026 kr.
Díesel
18,35 USD
Mjólk (USD/100 pund)
5,95 USD
Korn (USD/sekkur)
23,5 EUR
Kartöflur (EUR/100 kg)
1150 AUD
Ull (AUD/100 kg)
1,85 USD
Ostur (USD/pund)
4400 EUR
Smjör (EUR/tonn)
Landbúnaður í fjárlögum
ársins 2024
Ýmis stuðningur við landbúnað
Greiðslur vegna varna gegn dýrasjúkdómum
Fjárlög 2023 með verðbótum (7,4%) Fjárlagafrumvarp 2024 Mismunur
12 Landbúnaður 23.009,1 22.961,4 -47,7
12.10 Stjórnun landbúnaðarmála 21.154,2 21.200,2 46,0
04-234 Matvælastofnun 2.316,9 2.436
101 Matvælastofnun 1.932,3 2039,7 107,4
111 Samningur við dýralækna 348,7 361 12,3
601 Tæki og búnaður 35,9 35,3 -0,6
04-801, 805, 807 - Búvörusamningar
121 Samningur um starfsskilyrði í nautgripaframleiðslu 8.994,9 8876,8 -118,1
121 Samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktar 6.710,5 6484,3 -226,2
121 Samningur um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða 1.102,5 1103,8 1,3
04-811 Búnaðarlagasamningur 1.791,9 1769,4 -22,5
04-851 Greiðslur vegna varna gegn dýrasjúkdómum 132,7 233,3 100,6
04-983 Ýmiss stuðningur við landbúnað 104,7 296,6 191,9
12.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðarmálum 805,6 741,3 -98,5
04-432 Matvælaöryggi 615,5 581,3 -34,2
110 Matvælarannsóknir 503,3 480 -23,3
115 Tilvísunarrannsóknastofur 26,7 24,1 -2,6
120 Sýklalyfjaónæmi 85,6 77,2 -8,4
04-853 Bjargráðasjóður 41,2 8,3 -32,9
04-981 Ýmis framlög í landbúnaði 148,8 151,7 2,9
12.60 Stjórnsýsla matvælaráðuneytis 1.049,3 1.019,9 -58,9
04-101 Matvælaráðuneyti, aðalskrifstofa 1.049,3 1019,9 -29,4
101 Matvælaráðuneyti, aðalskrifstofa 1.043,1 1013,7 -29,4
601 Tæki og búnaður 6,2 6,2 -0,0
*Upphæðir fjárlaga 2023 hafa verið uppreiknaðar viðað við verðlagþróun til að sjá raunbreytingar.