Bændablaðið - 21.09.2023, Síða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 2023
Úrgangsstjórnun dýraleifa hefur
lengi verið vandamál hérlendis.
Fyrirmynd er fyrir hendi á Norður-
löndum sem vel mætti styðjast við.
Þar er urðun nánast óþekkt.
Athygli vakti þegar forsvarsmenn
handverkssláturhúss að Seglbúðum í
Landbroti sögðu í frétt í Bændablaðinu
7. september að svör þyrftu að fást við
fjölmörgum spurningum um förgun
á sláturúrgangi, þar sem ekki mætti
urða lífrænan úrgang lengur. Farveg
vantaði fyrir úrganginn, annan en 200
km dýran og varasaman flutning til
kjötmjölsverksmiðju í Flóahreppi.
Áður hefðu þau greitt fyrir flutning
tíu km vegalengd að Stjórnarsandi þar
sem sveitarfélagið sá um förgun. Fleiri
eru í sömu eða svipuðum sporum.
Í Flóahreppi rekur Orkugerðin
ehf. kjötmjölsverksmiðju og Molta
ehf. í Eyjafirði moltugerðarstöð
og á báðum stöðum m.a. nýttur
svokallaður áhættulítill slátur- og
kjötvinnsluúrgangur.
EFTA fylgist með
Í minnisblaði Environice um
ráðstöfun dýraleifa, þ.m.t. um
ábyrgð sveitarstjórna og mögulegar
úrvinnsluleiðir, sem Stefán Gíslason
umhverfisráðgjafi vann fyrir Samtök
sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)
og kom út í vor, segir að mikið af
fyrrnefndum úrgangi sé enn urðað
enda þótt engin heimild sé til þess í
lögum. Þá fari mikið af áhættulitlum
slátur- og kjötvinnsluúrgangi ómeð-
höndlaður til urðunar þrátt fyrir að
hvorki Orkugerðin né Molta hafi verið
keyrðar á fullum afköstum síðustu ár.
Stafi það að einhverju leyti af lágri
gjaldskrá urðunarstaða sem og því að
yfirvöld hafi ekki fylgt eftir reglum
um forvinnslu.
Í kjölfar ítrekaðra aðfinnslna
Eftirlitsstofnunar EFTA sl. áratug,
kvað EFTA-dómstóllinn í fyrra
upp úr með að Ísland hafi ekki
staðið við skuldbindingar sínar
gagnvart samningnum um Evrópska
efnahagssvæðið um meðferð
dýraleifa. Er þá átt við að ekki hafi
verið komið á viðeigandi kerfi til
að meðhöndla dýraleifar með þeim
hætti sem mælt er fyrir um í lögum,
né eftirlitskerfi til að tryggja að þeim
lagafyrirmælum sé fylgt.
Þá hafi íslensk stjórnvöld látið hjá
líða að koma í veg fyrir að dýrahræ,
sláturúrgangur af áhættuflokki 3 og
úrgangur frá heimaslátrun séu urðuð
á viðurkenndum urðunarstöðum án
undangenginnar meðhöndlunar, svo
og að koma í veg fyrir að dýrahræ og
úrgangur frá heimaslátrun séu grafin
á staðnum án þess að uppfyllt séu
skilyrði reglugerða.
Sveitarfélög og einstakir
rekstraraðilar bera þó ábyrgð
á framkvæmdinni innanlands í
samræmi við fyrirmæli stjórnvalda
og eftirlitsstofnana.
Sitthvað í farvatninu
Stefán segir í skýrslu sinni að enn
sé verið að urða dýrahræ og fleiri
dýraleifar sem óheimilt er að taka við
á urðunarstöðum.
„Ég leyfi mér að trúa að minnisblaðið
sem ég vann fyrir SSV hafi aukið
skilning á því hversu óviðunandi
núverandi ástand er og hvaða aðilar
beri öðrum fremur ábyrgð á að koma
þessum málum í ásættanlegt horf,“
segir Stefán. „Ég veit að í framhaldi
af minnisblaðinu fór af stað mikil
umræða, bæði innan sveitarstjórna, hjá
landshlutasamtökum, sorpsamlögum,
í ráðuneytum og í stofnunum ríkisins.
Það tekur óhjákvæmilega einhvern
tíma að koma upp aðstöðu og öðrum
innviðum sem þurfa að vera til
staðar, en ég gæti nefnt einhverja
fjóra möguleika sem hafa verið til
umræðu. Eitthvað af því er komið
vel af stað í undirbúningsferli – og
vonandi verður einhver einn af
þessum möguleikum að veruleika
innan þriggja ára eða svo. Svo er líka
unnið að bráðabirgðalausnum sem er
líklega ekki langt í að hægt verði að
nýta,“ segir Stefán jafnframt.
Hin síðari ár hafa komið fram
hugmyndir um rekstur sérhæfðra
brennsluofna fyrir dýraleifar af
áhættuflokki 1 og 2. Annars vegar
á Strönd á Rangárvöllum, fyrir
Suðurland og mögulega stærra
svæði, og hins vegar í Stekkjarvík við
Blönduós, fyrir Norðurland. Hvorug
þessara hugmynda mun vera komin á
framkvæmdastig. Þá hefur undanfarin
misseri verið unnið að hugmyndum
um líforkuver á Dysnesi norðan
við Akureyri, í samvinnu Samtaka
sveitarfélaga og atvinnuþróunar
á Norðurlandi eystra og Vistorku,
einkahlutafélags í eigu Norðurorku,
með fulltingi umhverfis-, orku og
loftslagsráðuneytis.
Í fyrsta fasa verkefnisins er horft til
móttöku og vinnslu dýraleifa (hræja
og áhættuvefja úr afurðastöðvum)
til orkuvinnslu í kjötmjöl og fitu
fyrir lífdísil.
Kalka gæti brennt meira
magni dýraleifa
Sorpbrennslustöðin Kalka í
Helguvík í Reykjanesbæ er eina
sorpbrennslustöð sem starfrækt er
hérlendis. Hún má annast meðferð
og brennslu dýraleifa en það er
gífurlega orkufrekt, einkum vegna
hás vatnsmagns í slíkum úrgangi.
Skv. úrgangsmælaborði Umhverfis-
stofnunar voru um 1.550 t af
dýrahræjum urðuð án leyfis á
viðurkenndum urðunarstöðum árið
2021 en sama ár brenndi Kalka 313 t
af dýrahræjum og 85 t sláturúrgangs.
Meðhöndlun dýraleifa er þannig
augljóslega í miklum ólestri á Íslandi.
Fram kemur í skýrslu Environice
að urðun hafi til þessa dags verið
ein helsta ráðstöfunarleiðin fyrir
dýraleifar hérlendis, bæði fyrir
áhættuminni úrgang úr áhættuflokki
3 og áhættuúrgang úr áhættuflokkum
1 og 2. Engu að síður hafi fullnægjandi
ráðstöfunarleiðir í raun verið tiltækar,
annars vegar brennsla í Kölku og
hins vegar vinnsla í Orkugerðinni og
Moltu. Sláturleyfishafar reka sumir
hverjir smærri brennsluofna til eigin
nota fyrir aukaafurðir úr áhættuflokki
1, þá mest heila- og mænuvefi, þ.e.a.s.
höfuð sauðfjár og nautgripa sem falla
til í hverju sláturhúsi fyrir sig.
Til skoðunar er hvort Kalka geti
tekið við meiru af dýrahræjum og
hvort þar mætti finna leið til að farga
dýraleifum í áhættuflokkum 1 og
2 frá í það minnsta Suðvesturlandi
og Vesturlandi. Dýraleifar í
áhættuflokkum 1 og 2 teljast til
áhættuvefja sem gætu borið riðusmit
eða sem grunur leikur á að beri
smitsjúkdóma sem geta borist í menn
eða önnur dýr, sem og sjálfdauð dýr.
„Kalka uppfyllir að mínu mati
öll skilyrði til að vera viðunandi
bráðabirgðalausn fyrir áhættuflokk 1
og þann hluta af áhættuflokki 2 sem
ekki eru til aðrar leiðir fyrir,“ bendir
Stefán á. „Ég er þó ekki viss um að
hægt sé að sinna öllu landinu þar.
Til að hægt sé að nýta Kölku í þetta
þarf þó að gera ráðstafanir varðandi
flutning og geymslu dýrahræja, auk
þess sem Kalka getur ekki bætt þessu
á sig án þess að draga úr afköstum
í annarri brennslu. Að mínu mati er
Kalka eini aðilinn á landinu sem er í
stakk búinn að sinna þessu hlutverki
eins og staðan er í dag án þess að það
kosti algjöra uppstokkun á starfsemi
á viðkomandi stað.
Hins vegar sé ég Kölku ekki fyrir
mér sem framtíðarlausn, aðallega
vegna þess að þar er ekki aðstaða
til að nýta dýraleifar á nokkurn hátt.
Brennsla án orkunýtingar samræmist
almennt ekki hugmyndafræði
hringrásarhagkerfisins.“ Hins vegar
geti Kalka verið góð bráðabirgðalausn
og síðan varalausn.
Módelið að finna á Norðurlöndum
Stefán leggur til að „gripið
verði til aðgerða til að tryggja
að í stað urðunar verði öllum
dýraleifum komið í vinnslu sem
uppfylli lagakröfur og sé í anda
hringrásarhagkerfisins. Í þessu skyni
þurfi í fyrsta lagi að byggja upp kerfi
fyrir söfnun, frágang og flutning
dýraleifa frá búrekstraraðilum og
vinnslustöðvum. Í öðru lagi að
haga gjaldtöku þannig að hún fæli
aðila ekki frá þátttöku og feli í sér
flutningsjöfnun. Í þriðja lagi að
byggja upp innviði sem afkasta því
magni sem til fellur og samræmast
áherslum hringrásarhagkerfisins.
Í fjórða lagi að laga gjaldskrár og
móttökuskilyrði urðunarstaða að
þessu nýja fyrirkomulagi.“
Lagt er til að byggt verði á reynslu
Norðurlandanna í þessum efnum. Þar
sé söfnun, frágangur, flutningar og
úrvinnsla dýraleifa í öllum aðalatriðum
á höndum eins fyrirtækis í hverju landi
og þau að mestu í eigu sláturleyfishafa
og búrekstraraðila. Sveitarfélög virðast
þar ekki koma að málum með beinum
hætti, svo sem tengt eignarhaldi eða
söfnun. Urðun sé á Norðurlöndum
hart nær óþekkt og dýraleifum ekki
fargað með brennslu nema í algerum
undantekningartilfellum. Efni úr
öllum áhættuflokkum sé þó nýtt
til framleiðslu fitu og mjöls með
mismunandi svið notkunar í samræmi
við áhættu.
„Góðu fréttirnar eru að mínu mati
þær að flestir aðilar sem að þessu koma
virðast vera búnir að átta sig á því í
grófum dráttum hvað þurfi að gera,
enda auðvelt að sækja fyrirmyndir til
Norðurlandanna. Ég vona að aðilum
málsins takist að koma sér saman
um eina lausn sem þjónar landinu
öllu. Þarna þarf að forðast hrepparíg,
þetta er fámennt land – og það kallar
á náið samstarf til að tryggja sem
besta niðurstöðu með sem minnstum
tilkostnaði,“ segir Stefán að lokum.
/sá
Úrgangur:
Ýmsar hugmyndir en minni framkvæmdir
– Úrgangsstjórnun dýraleifa í algerum ólestri
Stefán Gíslason.
Í DEIGLUNNI
Förgun dýraleifa, einkum úr áhættuflokkum 1 og 2, er viðvarandi vandamál. Ýmsir aðilar leita lausna og áform að
mótast meðan Eftirlitsstofnun EFTA fylgist með í kjölfar dóms í fyrra. Mynd / ÁL
Dalvegi 10-14
sími 414-2700
idnvelar@falkinnismar.is
www.idnvelar.is
allt fyrir iðnaðinn....
trésmíðavélar, bílalyftur, loftpressur, bílavörur, verkfæri, dælur, súluborvélar, lyftibúnaður, rennibekkir, bandsagir
rakatæki, sogbúnaður, legupressur, slönguhjól, 3d prentarar, sagarblöð, járnsmíðavélar, suðuborð, handverkfæri