Bændablaðið - 21.09.2023, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
Í sumum löndum er nokkuð
um að komið sé fyrir sérstakri
kvörn, tengd eldhúsvaskinum
sem malar matarúrgang. Þannig
má losa hann út í fráveitukerfið
og losna við fyrirhöfnina sem
fylgir því að koma honum fyrir
á annan hátt.
Þetta kerfi er eingöngu
mögulegt þar sem fráveitulagnir
borga, bæja og sveitarfélaga
eru sérstaklega hannaðar fyrir
slíka losun. Flestar kvarnir nota
miðflóttaaflsdælur til að mylja
matarleifar og draga til sín fitu og
annan úrgang sem fer þessa leið.
Ókostirnir eru margir
Hér á landi eru þessi tæki sem
betur fer lítið notuð, enda eru
fráveitukerfi engan veginn
hönnuð til að taka við öllu
þessu viðbótarmagni lífræns
efnis. Alkunna er hversu
slælega mörg sveitarfélög hafa
sinnt fráveitumálum enda afar
kostnaðarsamt að setja upp
fullkomnar hreinsistöðvar. Með
réttu verklagi og fullkomnum
búnaði er samt hægt að safna
skólpi og hreinsa það svo vel
að lokafrárennsli stöðvanna
getur farið nokkuð hreint út í
sjó. Mun erfiðara reynist að
losna við afrennsli án neikvæðra
umhverfisáhrifa þar sem þarf að
notast við enn viðkvæmari viðtaka
eins og ár og stöðuvötn. Það hefur
reynst ganga hægt að koma upp
fullkomnum hreinsistöðvum og
almenningur mætti láta betur í sér
heyra um þau mál.
Hvernig sem því er háttað
eru íslensk frárennsliskerfi
hreint ekki til þess fallin að taka
við möluðum matarúrgangi í
viðbót við „hefðbundið“ skólp.
Lagnakerfin eru of þröng og oft
undir allt of miklu álagi nú þegar.
Lausnirnar eru einfaldar
Allur afskurður við matseld ætti að
sjálfsögðu að fara í endurvinnslu.
Sú endurvinnsla gæti sem best
átt sér stað á heimilinu, með
einföldum jarðgerðaraðferðum.
Annar kostur er að notast við
lífrænu ílátin sem ættu, lögum
samkvæmt, að vera við öll heimili
og þjónustuð af viðkomandi
sorphirðufyrirtækjum.
Flokkun lífræns heimilissorps
er einfalt verkefni sem er fæstum
ofviða. Hér er um að ræða
mikil verðmæti í formi lífrænna
efna sem eru notuð ýmist sem
jarðvegs-næringarauki í ræktun í
heimilisgarðinum eða í miðlægum
jarðgerðarstöðvum. Upplýsingar
um heimilisjarðgerð er víða að
finna, bæði hefðbundna loftháða
jarðgerð og loftfirrða vinnslu, sk.
Bokashi-gerjun.
Samfélagslegar áskoranir
Sorpkvarnir eru dýr heimilistæki
sem ganga fyrir rafmagni. Til
að þær virki sem skyldi þarf að
skola efninu niður með miklu
vatni sem að sínu leyti veldur
auknu álagi bæði á vatnsveitur
og frárennsliskerfi. Þær þarfnast
viðhalds og það þarf að skipta
um síur reglulega. Einnig verður
að hafa fyrir því að saxa allan
úrgang þannig að hann komist
niður í gegnum eldhúsvaskinn.
Þá er hætt við að óæskileg efni
eins og fita, plast- og málmagnir
slæðist með og valdi stíflum og
kostnaðarsömum tæknilegum
vandamálum í hreinsunarferlinu.
Myndist stíflur nærri vaski eða
á einkalóð vegna uppsafnaðra
matarleifa úr sorpkvörninni er það
á ábyrgð húseiganda að sjá um
hreinsun, viðhald og hugsanlegar
endurnýjanir lagna, sem getur
verið erfitt að framkvæma svo
vel sé í þeim lagnabúnaði sem
við eigum að venjast.
Í nágrannalöndum okkar
hefur notkun sorpkvarna ekki
náð verulegum vinsældum og í
mörgum sveitarfélögum er
notkun þeirra beinlíns bönnuð.
Er þá horft til verulegs
kostnaðarauka við hreinsanir á
lögnum og tækjabúnaði sveitar-
og bæjarfélaga sem af notkun
þeirra hlýst auk tæringar lagna,
auknum ágangi rotta og músa sem
þarf að verjast og að sjálfsögðu
vegna þess að aðrar leiðir við
losun eru mun skynsamlegri með
tilliti til umhverfisáhrifa.
Þess eru jafnvel dæmi að
sveitarfélög hafi lagt í það átak
að greiða heimilum fyrir að taka
niður sorpkvarnir vegna alls
þessa álags.
Umhverfið
Staðbundin ofauðgun næringar-
efna getur valdið raski á vist-
kerfum strandsvæða nærri skólp-
ræsum og er oftast tengd
frárennsli frá heimilum og alls
kyns mannlegum athöfnum. Ekki
er á bætandi með því að hleypa
í gegnum eldhúsvaskinn auknu
magni lífrænna efna í formi
hakkaðra matarleifa. Það er fyrst
og fremst nitur og fosfór sem
getur valdið ofauðgun en þessi
efni er einmitt að finna í ríkum
mæli í matarleifum.
Molta sem myndast við
jarðgerð er mjög ákjósan legur
næringarauki, bæði í heimilis-
garðinum, á opnum svæðum í
eigu sveitarfélaga, á golfvöllum
og til að bæta jarðveg sem þarf
á lífrænu efni að halda sem
og við landgræðslustörf og
gróðursetningu nýskóga. Önnur
afurð jarðgerðar er lífgas sem
nota má sem orkugjafa.
Þannig má nýta lífrænan
eldhúsúrgang sem verðmætt
efni í stað þess að láta hann
hverfa í gegnum sorpkvörnina,
jafnvel með neikvæðum áhrifum
á umhverfi og vellíðan fólks.
Ingólfur Guðnason
brautastjóri garðyrkjubrauta,
Garðyrkjuskólanum Reykjum/FSu
Sorpkvarnir
– Uppfinning andskotans?
GARÐYRKJA Á FAGLEGUM NÓTUM
Kýr og allir nautgripir hafa afar
sterkar grunnþarfir og eru mikil
vanadýr, svo þegar við vinnum
með þessar skepnur er einn af
lyklunum að góðum árangri að
gera umhverfið og vinnuna í
kringum gripina eins einsleita og
hægt er.
Þetta er best gert með kerfislægri
nálgun með því að útbúa svokallaða
SOP ferla (Standard Operating
Procedure). Því leiðinlegra sem það
er fyrir okkur, því betra er það fyrir
nautgripina. Sama umhverfi, sama
fóður, sama stjórnun, sama rútína
– alla daga, allt árið! Sé þetta í boði
gefur það þann stöðugleika og hina
kerfisbundnu nálgun sem skepnurnar
eru ánægðastar með og það skilar sér
í t.d. meiri vexti og/eða mjólk!
Notkun á SOP á kúabúum víða
um heim hefur farið ört vaxandi
á undanförnum árum og úttekt
á hundruðum kúabúa af ýmsum
stærðum í fjölmörgum löndum
hefur sýnt að þau bú, þar sem
notaðir eru fyrir fram ákveðnir og
fastir verkferlar, eru að jafnaði betur
rekin en hin sem ekki notast við slíka
ferla. Þannig eru þeir bændur, sem
nálgast verkefnin á sínum kúabúum
á kerfisbundinn hátt með notkun á
stöðluðu verkferlaskipulagi, almennt
að ná betri árangri en hinir. Þetta
skýrist fyrst og fremst af því að þó
svo að við séum þaulvön ákveðnum
verkum, þá getur alltaf komið upp
breytileiki í vinnubrögðunum sem
hefur áhrif á gripina.
Aðeins fyrir stóru búin?
En hvers vegna er ekki algengara, en
raun ber vitni um, að sjá bændur nota
SOP við verk á kúabúunum, jafnvel
þótt þeir viti jafnvel að það virki og
bæti rekstur búsins?
Mig grunar að ástæðan sé sú að
flestir bændur gætu nánast séð um
algengustu verkin á sínum búum
með lokuð augun, þ.a. kunna alla
verkþætti svo vel að þegar og ef
þeir lesa um góðan árangur við
notkun á SOP þá sjái þeir ekki beint
tilgang með því. Þeir séu í raun og
veru með staðlaða verkferla, þeir
séu bara ekki skrifaðir niður. Þetta
er a.m.k. mín reynsla og sérstaklega
meðal kúabænda sem eru með færri
en 500 kýr. Afstaða margra þeirra er
að SOP kerfi séu aðallega gagnleg
fyrir „stærri bú“ enda væri það nánast
flokkað sem kæruleysi ef ekki væru
notaðir staðlaðir verkferlar á slíkum
búum. Stærri búin eru nefnilega oftast
mjög fljót að taka upp fasta verkferla
við dagleg störf, ekki síst vegna þess
að á þessum búum eru oftast margir
starfsmenn og þá sjá bændurnir sér
enn meiri hag í því að gera hlutina
eins stöðuga og hægt er á milli vakta.
Þessi nálgun við dagleg og
reglubundin verkefni á kúabúum á þó
ekki síður við um minni kúabúin líka.
Ef það virkar fyrir flugmenn ...
Það er auðvelt að skilja að bændur
séu efins um að það hjálpi að skrifa
niður þá verkferla sem þeir vinna
daglega við, eitthvað sem þeir kunna
utan að!
Það er þó margsannað að þetta
virkar einmitt sérstaklega vel hjá þeim
sem vinna við staðlaða vinnu. Hefur
þú t.d. einhvern tíma velt því fyrir þér
af hverju atvinnuflugmenn nota alltaf
staðlað form? Það hvarflar varla að
nokkrum að þeir kunni ekki að taka
á loft, fljúga og lenda flugvél enda
gera þeir það næstum á hverjum degi,
rétt eins og kúabændur sinna sínum
daglegu og reglubundnu verkum.
En jafnvel með sína mikla reynslu
flugmanna þá styðjast þeir við stöðluð
form sem taka þá skref fyrir skref í
gegnum verkefnið.
Hvers vegna? gætir þú spurt. Jú,
til að minnka líkurnar á því að mistök
verði. Þetta er nákvæmlega það sama
og á við um staðlaða verkferla á
kúabúum, þeir eru gerðir til að minnka
líkurnar á minni háttar mistökum og
því einsleitari sem verkin eru, því
betra er það fyrir skepnurnar.
Hvernig gert?
Þegar kemur að því að útbúa SOP
fyrir algenga verkferla á kúabúum
er oftast byrjað á því að taka
fyrir þá verkþætti sem tengjast
viðkvæmustu hópunum á búinu.
Eftir það er síðan farið yfir önnur
dagleg og reglubundin verk
þar til búið er að ná utan um öll
venjubundin störf búsins.
Reynslan sýnir að árangursríkast
er að útbúa SOP með myndum og
texta en þetta er vissulega misjafnt
eftir bændum, þ.e. hvað hentar
hverju sinni. Aðalatriðið er að ganga
úr skugga um við gerð á SOP að þar
sé verkferlinum lýst á þann hátt að
hver sem er, sem er vanur búskap,
gæti í grundvallaratriðum tekið
sig til og fylgt leiðbeiningunum
án aðstoðar og klárað verkefnið
með sóma. Ef það er hægt, þá hefur
tekist vel til!
Aðeins 5 SOP?
Á hverju kúabúi ættu að vera tugir
mismunandi lýsinga fyrir hina
daglegu og reglubundnu verkferla
Stöðluð vinnubrögð:
Ekki einungis
fyrir stóru búin
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Þrátt fyrir mikla reynslu nota flugmenn staðlaða verkferla til þess að draga
úr hættu á mistökum.
Staðlaðir verkferlar í kringum það hvernig kálfar eru meðhöndlaðir við
fæðingu, s.s. vigtun, eru mikilvægir.