Bændablaðið - 21.09.2023, Page 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
Í júní síðastliðnum samþykkti
framkvæmdastjórn Evrópu
sambandsins sérstakar ráðstafanir
til að bregðast við ójafnvægi á
vínmarkaði víða innan ESB.
Þessar ráð
stafanir eru
grund vallaðar
á sam eigin legri
l a n d b ú n a ð a r
stefnu ESB (e.
Common Agri
cultural Policy,
CAP). Samkvæmt
gildandi áætlunum um stuð ning við
vín fram leiðslu verður nú mögulegt
fyrir aðildarríkin að gera ráðstafanir
til að fjarlægja umfram vín af
markaði. Með öðrum orðum að
stýra framboðinu til að koma í veg
fyrir verðfall á afurðunum. Einnig
var heimilaður aukinn sveigjanleiki
í framkvæmd vínstuðningsáætlana
til að draga úr vínframleiðslu, svo
sem aukinn sveigjanleika til að
fjarlægja berjaþrúgur áður en þær
eru fullþroskaðar til víngerðar,
svokallað „græn uppskera“ eða
„green harvesting“.
Hvað kallar á aukinn
stuðning við vínrækt?
Í reglugerð ESB sem innleiðir
þennan aukna stuðning kemur
fram að víngeirinn hafi orðið fyrir
barðinu á samdrætti í neyslu vegna
mikilla hækkana á verði matvæla
og drykkjarvara, sem auk góðrar
uppskeru 2022 og afleiðingar
markaðsörðugleika í kjölfar
heimsfaraldursins hafa leitt til
birgðasöfnunar.
Framleiðsla á víni Evrópu
sambandsins jókst um 4% á
þessu ári miðað við árið áður en
upphafsbirgðir voru 2% hærri
miðað við meðaltal síðustu 5
ára. Samdráttur í vínneyslu á
yfirstandandi markaðsári er áætlaður
7% á Ítalíu, 10% á Spáni, 15% í
Frakklandi, 22% í Þýskalandi og
34% í Portúgal. Samhliða því hefur
vínútflutningur ESB á tímabilinu
janúar til apríl 2023 verið 8,5%
minni en árið áður, sem stuðlar að
því að birgðirnar aukast enn frekar.
Fyrrnefndar markaðsaðstæður
hafa eins og fyrr segir leitt til
sölusamdráttar fyrir vínræktendur
og framleiðendur í ESB, lækkun
markaðsverðs á víni og þar
af leiðandi alvarlegt tekjutap,
sérstaklega á ákveðnum svæðum
sem helst verða fyrir barðinu á
þessari þróun. Ástandið er þó
breytilegt innan ESB. Mest hafa
áhrifin verið á rauðvín og rósavín
frá ákveðnum héruðum Frakklands,
Spánar og Portúgals, en önnur
vín og/eða aðildarríki gætu lent í
svipuðum erfiðleikum á ákveðnum
framleiðslusvæðum.
Inngrip framkvæmda-
stjórnarinnar nú
Ráðstafanirnar sem framkvæmda
stjórnin hefur samþykkt eiga að
hjálpa greininni til að takast á
við núverandi ójafnvægi á innri
markaði ESB. Framkvæmdastjórn
ESB segir að nauðsynlegt hafi
verið að samþykkja tímabundnar
markaðsráðstafanir til að koma í veg
fyrir að óselda vínið hefði áhrif á allan
innri markaðinn og auk þess sem
framleiðendur gætu átt í erfiðleikum
með nægjanlegt geymslurými fyrir
nýja uppskeru, segir í tilkynningu
framkvæmdastjórnar ESB.
Með ákvörðun fram kvæmda
stjórnarinnar verður heimilt til 15.
október 2023 að eima vínið sem
hefur mest áhrif á markaðskreppuna
samkvæmt stuðningsáætlunum fyrir
vín. Það er tekið af markaði og
áfengið sem fæst má aðeins nota í
öðrum tilgangi en matvælum til að
forðast röskun á samkeppni.
Framkvæmdastjórnin veitti einnig
aukinn sveigjanleika í framkvæmd
og fjármögnun vínstuðningsáætlana
fyrir fjárhagsárið 2023. Þetta mun
gera aðildarríkjum kleift að laga
ráðstafanir sínar betur að ástandi
vínmarkaðarins á yfirstandandi ári
og nýta betur „græna uppskeru“
til að koma í veg fyrir að birgðir
safnist upp. Við núverandi aðstæður
er styrkþegum vínstuðningsáætlana
leyft að aðlaga fyrirhugaða starfsemi
sína og í tilhlýðilega rökstuddum
tilvikum að hrinda upprunalegum
verkefnum sínum í framkvæmd aðeins
að hluta. Samfjármögnunarhlutfall
ESB á aðgerðum sem tengjast
endurskipulagningu, grænni
uppskeru, kynningu og fjárfestingum
verður einnig hækkað úr 50% í 60%.
Nýr stuðningur skerðir ekki
árlegan stuðning við vínrækt
Á vettvangi ESB er víngeirinn
studdur með vínstuðningsáætlunum
í vínframleiðslulöndum ESB.
Þannig er árleg fjárhagsáætlun upp
á 1.061 milljón evrur af sjóðum ESB
tileinkuð stuðningi við fjárfestingu
atvinnulífsins, nýsköpun, kynningu
á vörum sínum, endurskipulagningu
og tryggingu uppskeru þeirra.
Samkvæmt núverandi CAP eru
almennar vínstuðningsráðstafanir
grundvallaðar á sameiginlegu
landbúnaðarstefnunni en stefnan gerir
jafnframt ráð að framkvæmdastjórn
ESB geti gripið til ráðstafana sem
þessara þegar ójafnvægi myndast á
mörkuðum. Þessi nýji og tímabundni
stuðningur mun ekki hafa áhrif
á annan almennan stuðning ESB
við víngeirann og öllum núverandi
styrkhæfum aðgerðum er því haldið
áfram.
Mikilvægi vínræktar í ESB
Eins og hér kemur fram er stuðningur
við vínrækt innan ESB hluti af
sameiginlegu landbúnaðarstefnunni,
CAP. Vínrækt er enda mikilvæg
atvinnugrein og hluti af menningu og
landslagi á stórum svæðum í Evrópu.
Í gamni og alvöru má því segja að hún
sé eins konar „sauðfjárrækt“ þeirra.
Hér er greinilega gripið til
markvissra aðgerða til að forða
alvarlegum áhrifum á bændur á
stórum svæðum innan sambandsins.
Ljóst má vera að sumar af þeim
ástæðum sem tilteknar eru í
ákvörðun ESB um stuðning við
vínbændur (og reyndar einnig aðra
bændur) eiga að sönnu einnig við
hér á landi.
Erna Bjarnadóttir,
hagfræðingur Mjólkursamsölunnar.
Aukinn stuðningur til vínbænda
innan ESB á árinu 2023
Erna Bjarnadóttir.
Miðhrauni 6, 210 Garðabæ, s. 544 8900
m@malmsteypa.is malmsteypa.is
M
yn
d
: B
ö
ð
va
r
Le
ó
s
Rör og fittings
Viðgerðarefni
Þorgrímsfótur
Festihulsur
Ídráttarrör
Topphringir
Trjáristar
Drenrör
Brunnkarmar/lok
Sandföng/ristar
Rennustokkar/ristar
Spindillok
Kerfislok
Tengistykki
Húsbrunnar
Kúluristar
Götubrunnar
Tengibrunnar
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S:551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker 900–1600L
Salt og sanddreifari í tveim
stærðum fyrir stóra pallbíla og
minni vörubíla. Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 380–550L
Salt og sanddreifarari í tveim
stærðum, fyrir minni pallbíla.
Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 600 TR
Rafdrifinn kastdreifari
fyrir dráttarvélar m/öflugum
efnisskömmtunarbúnaði.
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegur í
185–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótönn fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanleg í
165–240 cm breidd.
Hilltip Fjölplógur MVP
Fjölplógur fyrir ameríska
pallbíla t.d. RAM 3500,
GMC 3500 og FORD 350.