Bændablaðið - 21.09.2023, Page 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. september 2023
Efni:
Einn þráður Þingborgarlopi í
sauðalit og einn þráður Hörpugull,
sem er litaður Þingborgarlopi. Eins
má nota Slettuskjótt sem er litaður
tvöfaldur Þingborgarlopi. Hægt er
að nota nánast hvað sem er sem er
svipað að grófleika og tvöfaldur
lopi, t.d. einn þráð lopa og einn þráð
Love Story eða Gilitrutt frá Helene
Magnússon, Lambaband frá Gilhaga
og einn þráð af Love Story. Jurtalitað
Dóruband (Þingborgarband) og einn
þráður lopi er líka frábært saman.
Möguleikarnir eru óendanlegir, allt
eftir því hvað hentar hverjum og
einum.
Tillögur:
100 g Þingborgarlopi og 100 g (2
dokkur) Hörpugull.
200 g (4 dokkur) Slettuskjótt
100 g plötulopi og 50 g (2
dokkur) Love story. Þessi blanda er
mjög fíngerð og létt.
100 g plötulopi og 100 g (4
dokkur) Gilitrutt
100 g plötulopi, 100 g (2 hespur)
Dóruband
Svo er hægt að nýta afganga
sem til eru og hægt að blanda ýmsu
saman og útkoman getur orðið mjög
skemmtileg.
Áhöld:
6 mm prjónar, þægilegast er
að prjóna þennan trefil á 80 sm
hringprjón, en líka hægt að nota
bandprjóna.
Aðferð:
Trefillinn er prjónaður með
garðaprjóni fram og til baka. Kantur
er tveggja lykkju snúrukantur
(I-Cord) og er gerður svona: Prjónið
þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóninum,
takið bandið fram fyrir prjóninn og
takið þessar tvær lykkjur sem eftir
voru óprjónaðar á hægri prjóninn.
Á Skáney hefur sama ættin búið frá 1909.
Lengst af var blandaður hefðbundinn
búskapur. Hross, kýr og kindur. Hrossarækt
hefur verið markviss frá því um 1940 en
til eru skráðar ættir hrossa frá því fyrir
aldamótin 1900. Kúabúskap var hætt fyrir
rúmum 2 árum.
Býli: Skáney í Reykholtsdal í uppsveitum
Borgarfjarðar.
Ábúendur og fjölskyldustærð: Haukur
Bjarnason og Randi Holaker ásamt dætrunum
Kristínu Eiri, 14 ára og Söru Margréti, 7 ára.
Ásamt því að foreldrar Hauks, þau Bjarni
Marinósson og Birna Hauksdóttir, búa þar
einnig. Á bænum eru 2 hundar og 2 kettir.
Stærð jarðar: Skáney og það sem tilheyrir er
um 1.000 hektarar.
Gerð bús: Á Skáney er rekið allsherjar
hrossaræktarbú með öllu því sem tilheyrir,
ræktun, þjálfun, sala, stóðhestahald og
reiðkennsla en bæði Randi og Haukur eru
útskrifaðir tamningamenn og reiðkennarar
frá Hólaskóla. Randi er auk þess menntuð
hjúkrunarfræðingur og starfar sem verkefnastjóri
Reiðmannsins hjá LbhÍ. Einnig eru fáeinar
kindur til gamans.
Fjöldi búfjár: Tæplega 100 hross og um 90
kindur.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur
fyrir sig: Vaknað milli kl. 7–8 og börnum
komið af stað í skólabílinn sem kemur kl. 8.00.
Skepnum gefið og hirt um þær. Hross þjálfuð
allan daginn og snúist í því sem þarf hverju sinni.
Reynt að ljúka dagsverkum ekki mikið seinna
en milli kl. 19 og 20 á kvöldin.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin:
Skemmtilegast að sjá ungviðið komast heilbrigt
á legg og springa út. Leiðinlegast: óhöpp og
uppákomur hjá dýrum þegar ekkert er hægt að
gera fyrir þau og eins þegar vélar og tæki bila.
Hvernig sjáum við búskapinn fyrir okkur eftir
5 ár: Við sjáum hann fyrir okkur með svipuðu
sniði en með betri úrvinnslu á hrossum í keppni
og sýningar, jafnvel með aukinni hestatengdri
ferðaþjónustu og reiðkennslu.
Hvað er alltaf til í ísskápnum: Epli og
tómatsósa.
Hver er vinsælasti maturinn: Ærfille,
lambalæri og folaldasteik.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin: Nú
í seinni tíð þegar nýtt hesthús og reiðhöll var
tekið í notkun 2013.
Skáney
BÆRINN OKKAR
HANNYRÐAHORNIÐ
Vetrartrefill
– Uppskriftin er í einni stærð en auðvelt er að breyta bæði breidd og lengd
Þingborg
Þegar prjónað er til baka er bandið
fyrir aftan þessar tvær lykkjur. Gerið
eins þegar komið er á hinn endann.
Myndbönd á YouTube sýna þetta
mjög vel.
Trefillinn:
Fitjið upp 50 lykkjur. Prjónið
2 lykkjur, sláið upp á prjóninn og
prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir,
prjónið tvær lykkjur saman og gerið
snúrukant á endann eins og lýst er
að ofan. Prjónið til baka þar til 2
lykkjur eru eftir og gerið snúrukant
þar einnig. Endurtakið þessar
umferðir þar til trefillinn er orðinn
nógur langur og fellið þá af, en hann
má alveg ná 150 sm svo hægt sé að
vefja honum um hálsinn á sér.
Hönnun: Katrín Andrésdóttir
Skaftárhreppur
Auglýsing um skipulagsmál
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 14. september
að auglýsa eftirfarandi deiliskipulag:
Deiliskipulag Hemruhlíðar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Tillagan felur í sér 29 sumarhúsalóðir á bilinu 0,51-0,67 ha.
Aðkoma að svæðinu er frá Hrífunesvegi 209.
Tillagan liggur frammi til kynningar á skrifstofu Skaftárhrepps,
Klausturvegi 4, á skrifstofutíma sveitarfélagsins frá 19. september
til og með 31. október 2023.
Að auki er hægt að nálgast tillögurnar á www.klaustur.is.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu
Skaftárhrepps, Klausturvegi 4, 880 Kirkjubæjarklaustri eða á netfangið
klaustur@klaustur.is.
Sveitarstjóri Skaftárhrepps
Einar Kristján Jónsson