Úrval - 01.12.1974, Blaðsíða 6

Úrval - 01.12.1974, Blaðsíða 6
4 in áttu ekki annars úrkosta en að hlaupa út. Nú rann upp fyrir þeim sá skelfilegi sannleikur, að dreng- irnir þrír voru enn uppi á loftinu og engin leið að ná til þeirra. An- drew Turner þaut til að ná í slökkviliðið. Það kom, innan fárra mínútna — en of seint. Slökkvi- liðsmennirnir náðu líkum drengj- anna ofan af loftinu, en þeir höfðu kafnað af banvænum reykefnum. Hinn beiski sannleikur er sá, að í sorgarsögu Turners endurspeglast grundvaliaratriði svo margra heim- ilisbruna: Sérkennilegt aðdráttar- afl, sem eldspýtur hafa á börn; rangt mat á því hvað á að gera fyrst — sem ætti í öllum tilfellum að vera að reyna að koma fólkinu út. Framar öllu öðru sýnir þessi saga hve tilgangslaust það er að reyna sjálfur að berjast við nokkuð nema örlítinn eld. Það, sem Turn- ershjónin hefðu átt að gera, var einfaldlega að loka setustofudyrun- um. Sagan sýnir líka, hve skelfi- lega hratt reykur, hiti og skaðvæn- legar lofttegundir af brennandi efnum geta náð banvænu stigi í herbergjum, sem eru langt frá hin- um raunverulega bruna. Eldur brýst út á breskum heimil- um einu sinni á hverjum 14 mínút- um og kveikir í 50.000 húsum og íbúðum á hverju ári. Hann eyði- leggur verðmæti fyrir um 7% milljarð króna og veldur um 800 dauðsföllum. „Það er hægt að koma í veg fyrir næstum öll þessi dauðsföll,“ segir Norman Stroker Smith, forstjóri breska eldvarnareftirlitsins, „ef að- eins hver einasta fjölskylda vildi ÚRVAL gæta nokkurra einfaldra varnaðar- atriða.“ Öryggi þarf ekki að hvíla á sér- stökum búnaði. Það mætti fækka dauðsföllum af völdum elds á heim- ilum um helming, aðeins með því að setja viðeigandi varnarhlífar á öll eldstæði og þær tegundir upp- hitunar, sem geta kveikt í út frá sér. Eldvarnaeftirlitið breska legg- ur áherslu á, að þótt hita- og reyk- skynjunarkerfi (áreiðanlega kerfi af því tagi sem kosta þar í landi um 70.000 kr.), brunastigar og brunakaðlar (kostnaður áætlaður um 15.000 kr. á hús), geti verið nyt- samlegir hlutir, sé slíkur búnaður númer tvö í varnarlínunni. Slökkvi- tæki geta reynst beinlínis hættu- leg, nema þau séu undir stöðugu eftirliti og standist kröfur, sem gera verður til slíkra tækja. Einn eftir- litsmanna eldvarnaeftirlitsins orð- aði þetta þannig: „Afgerandi sek- úndum er eytt í að fuma við slökkvi tæki, þegar önnur slökkviáhöld eru miklu nær hendi. Vatn úr blóma- vasa getur drepið sígarettuglóð, sem er á frumstigi í stól. Teppi eða gólfmotta getur slökkt eld í fötum eða öðru viðlíka." Reyndin varð sú, að allir fimm sérfræðingarnir, sem ég ræddi við, ráðleggja öllum húseigendum að fara eftir fimm nauðsynlegum grundvallarreglum, áður en þeir fjárfesta í nokkrum tækjum. 1) LEGGIÐ STRANGAR REGL- UR UM MEÐFERÐ ELDS. Gálaus meðferð eldspýtna, sígarettna og annarra reykingatækja valda u. þ. b. fimmtungi allra dauðsfalla af völdum elds á heimilum. Að reykja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.