Úrval - 01.12.1974, Blaðsíða 75
NÝJA FORYSTAN í BANDARÍKJUNUM
sjálfur, fremur en að fela það öðr-
um. Óhugsandi er, að hann mundi
nokkurn tíma láta þekkingu sína á
mikilvægum málum takmarkast við,
hvað nokkrir nánir ráðgjafar
mundu segja honum. f stað þess er
ég handviss um, að hann mun leita
til stjórnvalda á öllum sviðum þjóð-
félagsins og reyna að komast að
sannleikanum með persónulegum
fundum og símtölum.
Jerry Ford dregur hlutina ekki
á langinn, þegar hann glímir við
alvarleg vandamál og ábyrgðar-
störf. Hann varð ekki hræddur um
að geta ekki gegnt skyldum sínum,
þótt hann yrði forseti óvænt og
skyndilega. Afstaða hans til starfs-
ins kom glöggt í ljós í fyrsta ávarpi
hans til þingsins, er hann sagði
einfaldlega: „Við höfum mikið verk
að vinna. Við skulum hefjast
handa."
Vandfundin eru merkilegri and-
artök í lífi manns en þau, sem Jerry
lifði þetta kvöld, 12. ágúst. Strax
var ræðu hans, sem flutt var á
miklum alvörutímum fyrir banda-
rísku þjóðina, ákaft fagnað. Nýi
forsetinn fagnaði á þann hátt, sem
var einkennandi fyrir manninn.
Hann hafði ásamt konu sinni og
börnum boð fyrir nokkra nána
vini á sínu einfalda heimili í Vir-
giníufylki. Sumir okkar sátu á gólf-
inu í litlu dagstofunni, og Betty
Ford bar fram léttan mat, meðan
við ræddum saman.
Jerry fór úr frakkanum og tók
af sér bindið, aðstoðaði við matar-
tilbúninginn og sá um, að allir væru
„eins og heima hjá sér“. Hann gaf
skoðunum barna sinna jafnmikinn
73
gaum og skoðunum vina sinna.
Spurningar hans sýndu mér og
þeim, með hve mikilli athygli hann
hlustaði á börn sín. Hann var ekki
lengur Jerry. Hann var orðinn for-
seti. Samt sem áður var það enn
sem fyrr hugmynd hans um góðar
stundir og afslöppun að hlusta á
börn sín og aðra.
Jerry Ford hefur verið vel fagn-
að í háskólum, því stúdentarnir
finna , að hann hlustar á þá og
heyrir, hvað þeir hafa fram að
færa. Ég hef séð hann breyta skoð-
unum barna minna með því að
hlýða með athygli á þau og bera
síðan fram spurningar, sem fengu
þau varfærnislega til að endur-
skoða afstöðu sína. Ég hef einnig
séð hann breyta eigin skoðunum, af
því að hann hlustaði á aðra.
Hann tekur til greina bæði skoð-
anir og tilfinningar annars fólks,
einkum í eigin fjölskyldu. Ég
hringdi til hans frá Hvíta húsinu
10. október 1973 og bar fram brýnt
erindi. „Vilt þú segja af þér sem
leiðtogi í fulltrúadeildinni og veita
viðtöku varaforsetastöðunni, ef hún
stendur þér til boða?“
Kosningabarátta, alvarleg, þjóð-
félagsleg viðfangsefni og miskunn-
arlaus streita þingstarfa hafa rænt
Jerry og Betty mörgum árum, sem
fjölskylda, sem stendur vel saman,
hefði viljað verja til einkamála
sinna. Bæði hjónin langaði til að
eiga með börnum sínum nokkur
ár „í friði“. Jerry sagði við mig,
þegar ég hringdi til hans í októ-
ber 1973: „Fyrst verð ég að bera
þetta undir Betty.“
Skömmu fyrir miðnættið til-