Úrval - 01.12.1974, Blaðsíða 76
74
ÚRVAL
kynnti hann mér, að hann væri
reiðubúinn til að taka starfið að
sér, ef honum stæði það til boða,
en hann bætti við ákveðið: „Ég
hef lofað Betty að hætta og setj-
ast að heima í Michigan í árslok
1976.“
Það var ekki fyrr en tíu mánuð-
um seinna, að Jerry komst að þeirri
niðurstöðu, að hann gæti ekki hald-
ið loforð sitt.
SÖNN TRÚ. Enginn varaforseti
getur nokkru sinni algerlega úti-
lokað þann möguleika, að hann
verði forseti. Samt hafði Jerry ver-
ið viss um það næstum allt til loka,
að Richard Nixon mundi sitja út
kjörtímabil sitt. Hann vísaði á bug
uppástungu minni, að hann skyldi
að minnsta kosti fara að hugsa um,
hvað hann mundi gera, ef hann
þyrfti að taka að sér forsetaem-
bættið. Hann áleit, að Nixon hefðu
orðið á einhver mistök í Watergate-
málinu og honum hefði verið illa
þjónað af undirmönnum. Eins og
svo margir okkar hafði Nixon for-
seti persónulega fullvissað hann
um, að forsetinn hefði engan þátt
átt í yfirhylmingu málsins, og hann
hafði ekki séð neinar sannfærandi
sannanir um hið gagnstæða. Þá
gerðist það hinn 4 ágúst, síðdegis
þann sunnudag, að hann fékk ör-
lagaríka upphringingu, þar sem
honum var greint frá sönnunum,
sem brátt yrðu birtar og mundu
lyfta honum í forsetastólinn.
SAMKOMULAG. Nú skildi Jerry,
að nytsemi hans yrði takmörkuð,
ef hann væri bundinn loforði sínu
við Betty um að hætta eftir aðeins
tvö ár. Því bað hann konu sína að
leysa sig undan skuldbindingunni
um afsögn árið 1976, og hún sam-
þykkti.
Gerald Ford hefur alltaf talið sig
verða að standa við orð sín, hvort
sem um var að ræða fjölskyldu
hans, vini eða pólitíska andstæð-
inga. Þau 24 ár, sem hann var á
þingi, naut hann vinsælda bæði
meðal demókrata og repúblikana,
vegna þess að hann sveik aldrei
loforð sín, jafnvel þótt óvæntir at-
burðir gerðu honum stundum örð-
ugt að halda þau. Beiðni hans íil
konu sinnar var meiri en orðin
tóm.
Fá mál, sem hafa verið á döf-
inni á bandaríska þinginu á undan-
förnum árum, hafa verið flóknari
en spurningin um, hvort heimila
skyldi kerfi varnareld.flauga. Sem
varnarmálaráðherra greindi ég leið-
togum þingsins frá tillögum um
þetta. Eftir allar tæknilegu útskýr-
ingarnar um þetta sagði Jerry:
„Aðalspurningin er, hvort við get-
um komist að samkomulagi við
Rússa um að takmarka alls konar
eldflaugar. Við getum ekki komist
að samkomulagi við þá, ef þeir
hafa eitthvað en við höfum ekkert.“
Hann hafði hitt naglann á höfuð-
ið, því að þetta var helsta réttlæt-
ing þess, að áætlunin um varnar-
eldflaugar hlaut staðfestingu. Ford
hafði í byrjun verið kosinn á þing
sem andstæðingur einangrunar-
stefnunnar, og hann var í mörg ár
í undirnefnd þingsins, sem fjallaði
um framlög til varnarmála. Jerry
var því öðrum þingmönnum fróð-
ari um öryggismál. En hann sýndi
margsinnis hæfni sína til að kom-