Úrval - 01.12.1974, Blaðsíða 10
8
URVAL
fangið ekki nákvæmlega á stund-
inni, þegar eitthvað óvænt kemur
upp á, eins og ef kviknar í. Þegar
skelfing grípur um sig, getur fjöl-
skyldan sjálf ruglast í ríminu.
☆
ÓHREKJANDI SÖNNUN.
Sálfræðiprófessorinn hóf fyrirlestur sinn þannig: „Frumstæður
maður gefur aldrei upp nafn sitt af ótta við, að það verði notað
til þess að ná töfravaldi yfir honum. Hann neitar ekki, heldur
víkur sér undan spurningunni.1 Þegar hér var komið, þagnaði
prófessorinn og hvessti sjónir á einn nemandann, sem var önnum
kafinn að lesa í dagblaði. „Hvað heitir maðurinn, sem situr á aft-
asta bekk og er að lesa í blaði?“ spurði hann svo. Maðurinn með
blaðið kipptist við og spurði í fáti: „Hver? Ég?“
„Dömur mínar og herrar,“ sagði prófessorinn. „Hvað sagði ég?“
B.B.
ÞAÐ ER TUNGUNNI TAMAST . . .
Þegar Anna, síðar kona hins fræga flugkappa Charles Lindberg,
var lítil stúlka, var einu sinni von á margmilljóneranum J. P.
Morgan í teboð heim til foreldra hennar, herra og frú Dwight
Morrow. Morgan hafði sérkennilega stórt og áberandi nef, og frú
Morrow óttaðist, að hreinskilni litlu stúlkunnar kynnu að valda
óþægindum, svo hún talaði alvarlega við Önnu, áður en gesturinn
kom.
„Þú veist, að það er ókurteisi að tala um útlit fólks,“ sagði hún.
„Svo þótt þér þyki nefið á herra Morgan óvenjulegt, verður þú að
lofa mér því að minnast ekki á það einu orði.“
Frá þeirri stundu, að gesturinn frægi var kominn inn fyrir dyr,
gat Anna ekki haft augun af nefi hans. Móðir hennar var eins og
á nálum og reyndi svo lítið bar á að láta telpuna fara eitthvað frá.
Loks fór hún — án þess að nokkuð hneykslanlegt hefði gerst.
Frú Morgan dró andann léttar, hellti tei í bolla gestsins og
spurði brosandi: „Má bjóða yður rjóma eða sítrónu í nefið, herra
Morgan?“
HÚS í HÁLFHRING.
í Kíev hefur verið byggt 600 metra langt hús, sem liggur í hálf-
hring. Húsið er liður í tilraunabyggingum og liggur þannig, að
allir íbúarnir fá sólríkar íbúðir. Það hefur komið í ljós, að ódýrara
er að byggja svona byggingu en 12 aðskilin hús jöfn henni að
stærð. APN.