Úrval - 01.12.1974, Qupperneq 24
22
ÚRVAL
erfið. Leiðtogarnir í Peking neyta
allra bragða, heiðarlegra og óheið-
arlegra, til að senda fleira „mennt-
að ungt fólk“ út á landsbyggðina,
nota svik, þrýsting, lýðskrum og
ýmis loforð.
Kínverskir leiðtogar virðast hafa
alvarlegar áhyggjur af réttmætri
óánægju æskufólks, sem á undan-
förnum árum hefur verið sent úr
borgunum út á land. Til þess að
draga úr þessari óánægju hafa ver-
ið gefnar út margar leynitilskipan-
ir, samþykktar af Maó. Sú stefna
hefur verið tekin upp nýverið að
„mennta verkafólkið“ meðal hinna
brottreknu æskumanna með því að
senda suma þeirra til náms við
æðri skóla, fela þeim verkstjórn
og leyfa sumum að kenna við barna
skóla, aðstoða á sjúkrahúsum, skrif
stofum og við stjórnun véla.
Þrátt fyrir þetta veitir meiri-
hluti þjóðarinnar brottrekstrar-
stefnunni andspyrnu. Jafnvel þeir
kínverskra embættismanna, sem
hollastir eru leiðtogunum, að ekki
sé talað um óbreytta skrifstofu-
menn, leggja sig fram um að reyna
að vernda börn sín frá því að verða
send út á landsbyggðina, með því
að notfæra sér aðstöðu sína. Hjálpa
þeir börnum sínum til að fá að-
gang að æðri skólum og reyna að
fá leyfi handa þeim til að dveljast
í borgunum. Sýnir það, hve þetta
vandamál er brýnt, að kínverskir
áróðursmeistarar hafa neyðst til að
rita um það opinberlega.
Unga fólkið, sem er slitið frá
fjölskyldum sínum og knúið til að
lifa ömurlegri ævi, svipt öllum
framtíðarmöguleikum, er smátt og
smátt farið að sjá í gegnum lýð-
skrum Maós og skynja hið raun-
verulega ástand. Það hefur aukið
óróleika þessa unga fólks, að æðri
menntastofnanir eru nú aftur tekn-
ar til starfa.
Æ fleiri leggja leið sína aftur til
borganna. Samkvæmt kínverskum
heimildum hurfu yfir 3000 ung-
menni ólöglega aftur til Shanghai
og um þúsund til Kwangohow árið
1971. Jemmin Jihpao skýrir frá
því, að haustið 1973 hafi þúsundir
manna úr hinum svonefndu land-
varnarsveitum í Shanghai verið
sendar til úthverfa borgarinnar til
þess að leita uppi illræðismenn, er
þar földust, einkum ungt fólk, er
flúið hafði úr sveitunum. Segir
blaðið, að 480 manns hafi fundist.
Þetta eina dæmi nægir til að sýna
flótta ungs fólks úr sveitunum. í
janúar 1974 voru gerðar svipaðar
aðgerðir í úthverfum Peking.
Sumir ungir menn synda yfir
Perlufljót og flýja til Hong Kong.
Að því er yfirvöld í Hong Kong
segja, eru þar um 100 þúsund
flóttamenn frá Kínverska alþýðu-
lýðveldinu, og fjöldi þeirra fer vax-
andi. Sumt af þessu unga fólki hef-
ur stofnað með sér neðanjarðar-
samtök i líkingu við „Samband
æskufólks, sem sent hefur verið út
á landsbyggðina“, sem starfar í
Kwangtung.
Ungu fólki í Kína er að verða vel
ljós hættan sem felst í stefnu Maó-
ista. Brottrekstur ungs fólks úr
borgunum til fjarlægra landshluta
er eitt dæmið um þetta.
APN.
☆