Úrval - 01.12.1974, Síða 71
SKAPSTJÓRN — TAMNING REIÐIKENNDA
69
Af því að hún var „bara kona“
og einkadóttir að auki höfðu bræð-
ur hennar þrír eiginlega talið það
sjálfsagt, að hún annaðist þennan
hugstola öldung, sem faðir þeirra
var orðinn.
Þegar hún sannfærðist um þessa
orsök skapofsa síns, talaði hún um
þetta hreinskilnislega við bræður
sína. Eftir að þeir tóku þátt í að
annast föðurinn, batnaði sambúð
hennar við bekkinn að sama skapi.
3. BYRGÐU EKKI REIÐINA INNI.
Margir leyna reiði sinni vand-
lega með hatursfullri þögn. En sé
reiðin látin í ljós, veldur það létti
—■ jafnvel ákvörðun. Margir góðir
foreldrar kenna börnum sínum að
tjá reiði sína, venjulega með for-
dæmi á eðlilegan en þó hljóðlátan
hátt. Það sýnir, að htiðarleg tján-
ing skapæsingar verkar líkt og
þrumuveður, sem hreinsar loftið,
svo að sólin fer aftur að skína.
Ekki er langt síðan ég hafði til
meðferðar mann, sem var svo al-
varlega þunglyndur, að starfsorka
hans var skert og minnkaði stöð-
ugt. Vandamál hans átti rót sína
samskiptum við ungan yfirmann,
sem tók uppástungum þessa eldri
manns annnað hvort með yfirlætis-
legu brosi eða algjöru tómlæti.
Innhverfur og alvarlegur dró mað-
urinn sig alveg í hlé, .varð leiður
og neikvæður.
Ég hvatti hann til að ræða málið
við forstjórann eins hreinskilnis-
lega og hispurslaust og mögulegt
væri. Hann féllst að lokum á uppá-
stungu mína og gerði fullkomlega
grein fyrir angri sínu, en þó án
beiskju. Sem betur fer tók sá yngri
honum vel og skildi hann, og um-
gekkst hann með nýrri virðingu
eftir það.
Þessari reynslu lýsir William
Blake skáld á þennan hátt:
„Við eina vin minn í mig fauk,
ég um það ræddi, og brátt því lauk.
Við óvin minn ég æsast réð,
og alltaf þögnin brýndi geð“,
Innibyrgð reiði er eins og tíma-
sprengja. Sé hún ekki eyðilögð,
getur hún eyðilagt vináttu, ást og
líf heillar fjölskyldu.
4. LOSAÐU ÞIG VIÐ REIÐINA.
Margar orsakir, stórar og smáar,
hafa safnast í eitt til að skapa eld-
heitt reiðibál.
Hver mundi æpa gegn ranglæti
reiðilaust?
Á fyrri hluta þessarar aldar leið
Clifford Beers margs konar skip-
brot sem ungur geðsjúkur stúdent.
Hann setti vel á sig, í frumstæðu
umhverfi, allar auðmýkingar og
allt ranglætið, sem hann varð að
þola. Eftir að hann hafði náð sér,
aðstoðaði hann við stofnun margra
geðheilsuhæla, og reiði hans yfir
meðferð þeirri, sem hann hafði
hlotið, varð til þess, að samin var
ný löggjöf og öryggi aukið á allan
hátt gegn því, að grimmd og skiln-
ingsleysi væri beitt við andlega
vanheilt fólk.
En þegar ekki er unnt að losa
sig við gremju og reiði á svo já-
kvæðan hátt, er samt unnt að finna
aðrar aðferðir. Oft getur verið
heppilegt að velja nýtt umhverfi.