Úrval - 01.06.1976, Síða 13
GÁTAN UM HEILAGA LÍKKLÆDIÐ
11
altarinu eftir viðgerðina. Viðgerð-
irnar og ummerkin eftir bruna- og
vatnstjónið leyndu sér ekki, þegar
klæðið var sýnt í sjónvarpinu 1973.
En hvort hresst var upp á afþrykkin
sjálf er ennþá svarlaus spurning.
En það var almúginn, sem tók af
skarið um að hjúpurinn væri ósvik-
inn. Pílagrímar frá mörgum hlutum
Evrópu streymdu til Chambéry til
þess að tilþiðja hann. Róm fylgdi
fjöldanum. Meðal verndara klæðisins
var hinn mikli endurreisnarpáfi,
Júlíus II, velgerðarmaður Rafaels og
Michelangelos. 1578 skipulagði Carlo
Borremeo, erkibiskup í Mílanó og
síðar dýrlingur, pílagrímsferð yfir
Alpana til að biðjast fyrir við hið
helga klæði. Til að auðvelda þessa
hópferð sendi hertoginn, eigandi
klæðisins, það til móts við pílagrím-
ana til Torino, hins nýja höfuðstaðar
fyrir sunnan Alpa.
Nú síðari ár hafa fleiri og fleiri
framámenn kaþólikka orðið þeirrar
skoðunar, að hópur sérfræðinga ætti
að rannsaka klæðið góða. 1970 sagði
til dæmis Peter Rinaldi, sem er
presturog varaformaður ,,Félags hins
heilaga líkklæðis” í Bandaríkjunum
(félagafjöldi 5 þúsund), að það væri
erfitt að skilja andspyrnu kirkjunnar
gegn því að eitthvað væri gert í
málinu, já, meira að segja að tala um
það.”
Það kann meðal annars að hafa
verið svar við þessari óþolinmæði, að
náhjúpurinn var tekinn úr skríni sínu
árið 1973 og sýndur í sjónvarpinu.
Um leið fékk hópur ítalskra sérfræð-
inga, sem tilnefndir vom af erkibisk-
upnum í Torino árið 1969 til að
ganga úr skugga um hvernig færi
um klæðið í geymslunni, það mikla
hlutverk að sannprófa hvort klæðið
væri svikið eða ósvikið. Þótt í þessari
rannsókarnefnd séu flestir kaþólikk-
ar, er þó einn mótmælandi í hópnum
og einn guðleysingi.
Einn hinna elstu í nefndinni,
fyrrverandi prófessor í réttarlækning-
um (en sú fræðigrein fæst einkum við
að sanna dánarorsakir og af hverjum
líkamsleifar séu), er óopinber tals-
maður nefndarinnar. Ég spurði
hann, hvort hann teldi klæðið
ósvikið. ,,Sem kaþólikki verð ég að
segja já,” svaraði hann. ,,En sem
læknir verð ég að segja: ,,viltu aðeins
bíða?”
Sérfræðingarnir hafa nú fengið allt í
hendur, sem þeir þurfa til rannsókn-
ar sinnar, bætti hann svo við.
Efnisprófun svo sem „kolvetni 14”
(sbr. greinina Hófst menningin allt
annars staðar? í maí-hefti Orvals) er
útilokuð, því ,,ef við ættum að gera
þvílíkt próf, yrði að eyðileggja allt of
mikinn hluta klæðisins.”
Hinn opinberi vörður líkklæðisins,
Michele Pellegrino kardináli og erki-
biskup af Torino, maður á áttræðis-
aldri, er virtur vísindamaður, sem í
yfir fjörutíu ár hefur lagt stund á
rannsóknir á bókmenntum frá því 1
frumkristni. ,,Ég þekki enga sönnun
á sambandi milli þessa klæðis og
þess, sem til var í Miklagarði um