Úrval - 01.06.1976, Síða 27
LÍFKLUKKAN
25
morgninum, þegar öll mestu kerfi
•mannslíkamans eru öflugust.
HVERNIG MÁ STILLA
LÍFKLUKKUNA?
Upp á síðkastið hafa vísindamenn í
mörgum löndum farið að veita því
sívaxandi athygli, hvernig slæmt
ásigkomulag manna á oft rætur að
rekja til snöggra breytinga í hinum
venjulega líftakti. Þetta getur komið
fram sem svefnleysi, þreyta og
vanlíðan. Þetta gerist, til dæmis,
þegar flugfarþegi fer yfir mörg
tímabelti, í ferðalagi sem nær yfir tíu
þúsund kílómetra eða meira. En
óreglusamt líferni dugir til þess að
•rugla lífklukkuna. Þegarmeð fer mik-
, ið andlegteða líkamlegt álager óregla í
svefni og starfi ekki lengi að koma
niður á heilsunni.
Það fer ekki milii mála, að
Iíftakturinn er fjarska sveigjanlegur.
Fólk getur aðlagast margskonar að-
stæðum. Ef þörf krefur, stillir líkam-
inn klukku sína upp á nýtt og skapar
nýjan líftakt. En aðlögunarhæfnin er
ekki takmarkalaus. Verulegt álag á
lífklukkuna leiðir til alvarlegra veik-
inda. Það er staðreynd, að flestir
þeirra, sem þjást af sjúkdómum í
tauga- og æðakerfi, svo og í melting-
arfærunum, haga ekki starfi og hvíld
í samræmi við lífklukku sína.
Það er nauðsynlegt að taka tillit til
lífklukkunnar til þess að ná samræmi
og hnökraiausu starfi líffæranna.
Mikil starfsorka kemur því aðeins til
greina, að starf og hvíld sé í samræmi
við hinn eðlilega takt lífklukkunnar.
Vinna og hvíld, svefn og vaka,
afslöppun og starf — allt ætti að vera
á sínum rétta tíma.
★
RISA HNATTLÍKAN.
Háskólinn í Perm hefur eignast risastórt hnattlíkan sem er nálega
tveir metrar í þvermál og vegur 170 kg. Hnattlíkanið er upphleypt og
fjallakeðjur og hlíðar, sléttur og eldfjöll, höf og fljót eru sýnd mjög
greinilega. Þetta merkilega hnattlíkan er gert af Ivan Osjev. Hann
hefur einnig búið til rafvætt kort af stjörnuhimninum og marga fleiri
frumlega gripi.
Það merkilegasta af öliu er þó að Ivan Osjev er blindur. Hann
missti sjónina af slysi fyrir 25 árum. Hann lærði í blindraskólanum í
Perm, þarsem kennslukonan hansí landafræði gerði kortið „sýnilegt”
með því að hafa fjöllin ísaumuð og láta þræði mynda árnar.
Osjev stundaði síðan bréfaskólanám við kennaraskólan og hélt svo
áfram námi við háskóla. Víðs vegar um landið eru nú í notkun frumleg
kennslutæki fyrir blinda, sem hann hefur búið til.