Úrval - 01.06.1976, Síða 32
30
ÚRVAL
kaffihúsið og þá, sem þar voru. Hann
einn komst af.
Antonio Garcia, dýralæknir, missti
þróður sinn og alla fjölskyldu hans,
þegar steinhúsið þeirra skolaðist
þurtu. Læknirinn Andrés Roþles
slapp lífs, þegar hús hans eyðilagðist,
en lést af hjartaslagi, þegar honum
var sagt, að konan hans og börnin tvö
hefðu farist. Minnstu munaði, að líkt
færi fyrir borgarstjóranum í Puerto
Lumbreras, þegarþrjátíu tonna klett-
ur losnaði úr fjallshlíðinni fyrir
norðan bæinn og muldi niður hús
móður hans. Svo vel vildi til, að
gamla konan hafði einmitt rétt í því
skroppið yfir til nágrannans. En ekki
voru allir svo heppnir. Alls fundust
80 látnir og eins var saknað.
Svipaðar sögur bámst víða að. í
Lorca flæddi Gualdalentinfljótið yfír
bakka sína og lagði heilt íbúðarhverfi
í rúst. Sex fómst. í Zurgena, 45
kílómetra frá Puerto Lumbreras,
skolaði flóðið hinum sextuga Agustín
Torrecillas út úr húsi hans. Hann
barst um 100 metra með flaumnum,
en náði þá taki á tré, sem stóð á
torginu. Þar varð hann að horfa á, án
þess að fá nokkuð að gert, hvar kona
hans barst hjá með vatnselgnum og
steyptist ofan í gljúfur. Hún fannst
aldrei
Murcia, Almería og Granada, þessi
hémð, sem vom svo frjósöm, grófust
undir skitugráu leirlagi. Appelsínu-
og sítrónutré þeyttust um koll,
dauðir tómatar héngu og dmsluðust
hvarvetna, og milljónir vínþrúgna frá
bestu vínhémðum Spánar lágu og
visnuðu í sólskininu. Hvers konar
rotnandi hræ lágu eins og hráviði út
um allt.
Þegar ég kom á þessar slóðir næsta
mánudag, var himinninn aftur orð-
inn heiður, og sólarbreyskjan bakaði
Suðurspán. í Puerto Lumbreras
sungu fuglarnir áhyggjulausir í rúst-
um tveggja hæða múrsteinahúss, þar
sem fimm manns hafði farist.
Skammt frá stjórnaði ungur lögreglu-
þjónn með rauð augu og tveggja
daga skeggstubba vinnuflokki, sem
var að moka leir og óhroða út úr
rústum annars húss. ,,Til þessa
höfum við fundið tvo á lífi, en ég
óttast, að þeir verði ekki fleiri,” sagði
hann.
Hjálparstaffið tafðist vemlega við
það, að samgöngur höfðu eyðilagst
að miklu leyti. í marga daga varð
engri utanaðkomandi hjálp við kom-
ið, nema að flytja hana að á sjó eða í
lofti. Þyrlur komu með hjálparlið og
fluttu í burtu þá, sem voru verst á sig
komnir. Sjúkraliðar lögðu nótt við
dag við að bólusetja gegn taugaveiki.
Nauðþurftum var útdeilt og eininga-
hús reist til að hýsa þá heimilislausu.
Samúðarkveðjur streymdu hvaðan-
æva að. Moskvusírkusinn var á
sýningarferð á Spáni og hélt aukasýn-
ingu í Murcia. Ágóðinn, 40 þúsund
pesetar, var sendur til hjálpar á
flóðasvæðinu. Félagar úr Fíl-
harmoníuhljómsveit New York vom
líka í heimsókn á Spáni og héldu
hljómleikaí sama skyni. En spánverj-