Úrval - 01.06.1976, Side 33
FLÖÐBYLGJANICOSTA DEL SOL
31
arnir sjálfir sýndu mesta fórnfýsi.
Kaupmenn sendu mat, föt, ullar-
teppi og dýnur. Fyrirtæki og einka-
aðilar söfnuðu rúmlega 70 milljónum
peseta. Og eftir aðeins fáar vikur var
furðu- fátt að sjá í þorpunum, sem
minnti á þennan skelfilega sólar-
hring, þar sem fast að 150 manns
höfðu farist en um 20 þúsund höfðu
glatað aleigunni.
En það tekur snöggtum lengri tíma
að lækna sárin eftir það, sem
yftrvöldin kalla ,,vesta efnahagsáfall
Suðurspánar í 35 ár.” Sem betur fer
ent ferðamannatekjurnar tii þess að
rétta héruðin við. Og þótt yfirvöldin
telji, að það taki ,,Fimm til tíu ára
erfiði” að endurrækta landbúnaðar-
svæðin, hefur það ekki drepið kjark-
inn í þeim, sem þarna búa.
,,Við höfum rifið okkur upp úr
allsleysi áður,” segir Garcia, borgar-_
stjóri í Puerto Lumbreras.,,Með guðs’
hjálp gerum við það aftur.”
★
Maður við barinn: „Konan mln skilur mig ekki. En þín?”
Annar maður við barinn: , ,Ég veit það ekki. Ég hef aldrei heyrt hana
minnast á þig.”
Bóndinn og konan hans voru t kaupstaðarferð og ákváðu að fá sér að
borða á nýja veitingastaðnum. Eftir að hafa litið aðeins á matseðilinn
spratt bóndi upp úr sæti sínu þreif t konu sína og þusti út.
,,Hvað á þetta að þýða?” spurði frúin þegar hún loks mátti mæla.
,,Sástu verðið á hamborgurunum?” svaraði hann og steig fastar á
bensíngjöfina.
,Já, 360 krónur. En hvað á...?”
,,Veistu hvað það þýðir? Við eigum 136.000 króna kú sem er alein á
suðurtúninu heima, og enginn til að gæta hennar.”
Við vorum nýflutt frá Seattle til Dallas og glöddumst þegar félagi í
söfnuðinum okkar bauð okkur í mat sunnudag nokkurn eftir
messugjörð.
,,Hvernig finnst ykkur landslag norðursins samanborið við Texas?”
spurði gestgjafi okkar.
,,Það er fagurt,” svaraði ég. ,,En þú veist að Texas er svo fallegt að
Guð fer þangað þegar hann tekur sér frí.”
, Já, þetta datt mér einu sinni r hug líka, þegar ég ók í gegnum
Texas,” svaraði vinur okkar unr leið og hann dró gluggatjöldin frá
stórum gluggavegg svo við okkur blasti dýrlegt landslag með
risastórum furum, glitrandi vötnum og tignarlegum fjöllum, ,,en það
er hérna sem hann vinnur.”