Úrval - 01.06.1976, Side 56
54
ÚRVAL
öllum vandamálum í teikningum
Utzons, en ibúum Sydney var talin
trú um, að óperuhöllin gæti orðið
tilbúin árið 1963.
Það var ekki auðgert að finna
verkfræðiiegar lausnir, svo höllin
hryndi ekki saman eins og spilaborg í
fyrsta stormi. Það tók 375 þúsund
vinnustundir við vinnuborð verk-
fræðinganna og 2 þúsund tíma í
reiknitölvum verkfræðifirmans. Af
tæknilegum ástæðum neyddist
Utzon til þess að breyta léttu og
svífandi skálaforminu í upprunalegu
teikningunni fyrir heldur kantaðra,
lóðréttara og hefðbundnara form.
Mjög stórir steypukjálkar áttu að
standa undir ysta byrðinu.
Tíminn leið, og kostnaðurinn jókst
og jókst. 1961 var áætlunin komin
upp í 17,9 milljónir ástralíudollara
(4.002.440.000 ísl. kr.) 1962 í 25
milljónir (5.590.000.000 ísl. kr.).
Ove Arup gaf stuttorða yfirlýsingu:
„Óperuhöllin verður reist eftir
,,leitið og þér munuð finna”-að-
ferðinni.
Árið 1963, þegar átti að vígja
óperuhúsið, var aðeins neðsti hiuti
byggingarinnar tilbúinn. Utzon
hafði oft komið til Sydney, á þessum
tíma, en nú settist hann þar að til
þess að stjórna erfiðasta hiuta verks-
ins: Gerð þaksins. Tæknina varð að
finna upp, jafnóðum og byggingin
þokaðist áfram. Ekki var hægt að
nota venjulega vinnupalla, vegna
þess hvernig þakið svetgðist. Nauð-
syniegt reyndist að verja til þess
miklu fé, að búa til sérstaka vinnu-
palla. Og byrðingshlutana, sem vógu
allt upp í ellefu tonn, varð að láta á
sinn stað með stakri nákvæmni.
Verkamennirnir börmuðu sér yfir
því, að það væri hættulegt að
klöngrast um hála þakfletina í mikilli
hæð, og vildu fá hærri laun. Að
meðaltali var ein vinnustöðvun, verk-
fall eða mótmælaganga á dag.
Arkitektar Utzons og verkfræðingar
Arups áttu stöðugt erflðara með að
tala kurteislega saman. Ný vandamál
skutu stöðugt upp kollinum: Það
voru engin bílastæði, ósamkomulag
um sætafjölda og skiptar skoðanir um
kröfur til hljómburðar. Og það
vantaði rúm bak við sviðið —
veigamikið atriði, þegar ópera á í
hlut. Utzon fann margar snjallar
lausnir, en þegar sviðsvélabúnaður
upp í 600 milljónir króna kom til
Sydney, var hvergi hægt að láta
hann, og enn þann dag.í dag stendur
hann og ryðgar utan við borgina.
Starfið gekk æ nær Utzon. Árás-
irnar á mál óperuhallarinnar urðu að
faraldri. Utzon sagðist óska þess, að
hægt væri að ljúka byggingunni
undir tjaldi, svo enginn gæti séð
hana, fyrr en hún væri fullgerð. En
hann gat ekki fengið sama vinnufrið
og myndhöggvari, allra síst kosninga-
árið 1965, þegar kostnaðaráætlun
óperuhallarinnar var komin upp í
48,3 milljónir ástralíudollara.
Hinn nýkjörni forsætisráðherra
frjálsiyndra, Robert Askin, hélt
þrumuræður um þennan kostnaðar-