Úrval - 01.06.1976, Page 73
DULSPEKISÖFNUÐIR...
71
En ,,Tunglbúarnir” (eins og þeir eru
kallaðir), hafa tölvumatað hana,
þannig að hún er aðeins dauð
eftirmynd hinna.”
,,Slíkar ásakanir eru ekki á rökum
reistar,” segir Neil Salonen, hinn
þrítugi forseti útþensluáætlunar
Moons í Bandaríkjunum. ,,Við eig-
um sterka trú og bjóðum upp á
öfluga hópstarfsemi, sem miðar að
því að styrkja trúna og hollustuna við
söfnuðinn. En þar er ekki um neina
,,heilastjórn” að ræða ”
Hvor aðilinn hefur rétt fyrír sér? Hr
um að ræða heilaþvott á vegum
þessara hóp eða aðeins trúboðr1 Við
skulu leita svara með því að athuga
nánar starfsemi þessa fjögurra aðal-
hópa.
SAMEININGARKIRKJAN.
Sun Myung Moon flutti boðskap
sinn frá Kóreu árið 1972, þegar hann
fór í fyrstu Bandaríkjaferð sína. I
hópnum eru 30.000 Bandaríkja-
menn, og vinna 10.000 þeirra ein-
göngu á vegum hópsins og tilheyra
samtals 120 hópfjölskyldum. Tekjur
safnaðarins í Bandaríkjunum árið
1973 eru álitnar hafa numið um 10
milljón dollurum (um 177 milljón-
um kr ). Þeirra hefur verið aflað af
meðlimunum með sölu á hnetum,
kertum og blómum á borgarstrætum.
Söfnuðurinn hefur eignast fasteignir
í New Yorkborg og nágrenni, og
nema þær samtal? 10 milljón dollur-
um. Hann á búgarð í Kaliforníu og
rekur miðstöðvar við um 130 háskóla,
en hann aflar sér margra félaga
einmitt með hjálp þessara miðstöðva.
Söfnuðurinn rekur einnig þjálfunar-
miðstöð á óðali í Barrytown, um 140
km. fyrir norðan New Yorkborg. Á
fyrstu 17 mánuðunum eftir að
hópurinn settist þar að, hafa fjórir
félagar fengið slæm móðursýkisköst,
og í nálægu sjúkrahúsi hafa „óvenju-
lega margir fengið rneðhöndlun við
andlegu losti,” en þannig skilgreinir
saksóknaraskrifstofa Dutchess-
hrepps sjúkdómstilfelli þessi. Einnig
var um að ræða eina misheppnaða
sjálfsmorðstilraun og eitt sjálfsmorð.
Eitt foreldri bar fram opinbera
kvörtun og hélt því fram, að hann
hefði verið laminn, þegar hann fór
þangað til þess að heimsækja dóttur
sína. Og ein ung kona innan
safnaðarins varð Sjúklingur á gjör-
gæsludeild geðsjúkrahúss t Boston.
(Saksóknarinn hefur síðan hleypt af
stokkunum rannsókn á starfsemi hóps-
ins í Barrytown).
Emkafjölskylda Moons sjálfs býr í
stórhýsi í þjálfunarmiðstöðinni í
Barrytown, en hann rekur 15 milljón
dollara (265,5 millj. kr.) kóreskan
hring iðnfyrirtækja, en í verslunum,
sem selja sumar af vörum hans, starfa
ýmsir áhangendur, sem afhenda
söfnuðinum allt það, sem inn kemur.
Opinberunartexti Sameiningar-
kirkjunnar, sem ber heirið ,,Guðleg-
ar meginreglur”, var saminn og
gefinn út af Moon, eftir að hann
sagðist hafa átt samtöl við Jesú, sem
birtist honum og skýrði honum frá