Úrval - 01.06.1976, Page 74

Úrval - 01.06.1976, Page 74
72 URVAL því, að nýr Messías mundi fæðast í Kóreu innan viss tímabils, en á þessu tímabili var einmitt fæðingarár Moons sjálfs, árið 1920. Hann kenn- ir, að Eva hafi verið tæld af Satani og hafi upp frá því spillt mannkyninu. Jesús, hinn fyrsti Messías, átti að giftast hinni fullkomnu brúði og leggja þannig grundvöllinn að hreinu, óspilltu mannkyni, en hann var hindraður í að gera slxkt, þar eð hann var krossfestur. ,,Nú er ,,nýr Messías”, Moon sjálfur, kominn fram á sjónarsviðið til þess að veita slíka líkamlega hjálp og frelsun og gera mannkynið fullkomið. TRÚBOÐ HINS GUÐLEGA LJÓSS. Þessi söfnuður var stofnaður í Indlandi af föður Maharaj Ji. Árið 1966, þegar drengurinn var 8 ára, dó faðir hans, eftir að hann hafði lýst yfir, að sonur hans væri nú ,,hinn fullkomni meistari”, sem halda skyldi safnaðarstarfinu áfram, Mah- araj Ji stofnaði bandaríska trúboðið árið 1971. I söfnuðinum er nú 50.000 Banda- ríkjamenn, en 2.000 þeirra vinna í sérstökum miðstöðvum í 185 borg- um. Aðrir 575 félagar sem búa í hópfjölskyldum, sem nefnast „ashram”, eru grænmetisætur og kynbindindisfólk. Umsóknin um inngöngu í „ashram” er samtals 4 blaðsíður, en 2 þeirra eru eingöngu tengdar upplýsingaöflun um fjármál umsækjandans, bankainneignir, arfs- von, hluta- og skuldabréfaeignir, líftrygginarskírteini, fasteignir og hvers konar aðrar eignir. Þeir, sem ganga í „ashram”, afhenda söfnuð- inum allar tekjur sínar, en söfnuður- inn rekur fjöldann allan af fyrirtækj- um, sem velta milljónum dollara, þar á meðal útgáfufyrirtæki, kvikmynda- og hljómplötuframleiðslufyrirtæki, leikflokka og dansflokka, matvæla- samvinnufélag og hinar fjölmörgu dýru bifreiðir Maharaj Ji. En helsta „framleiðsluvara” safn- aðarins er samt „þekking”, sem er ekki opinberuð þeim, sem utan safnaðarins standa, því að þeir eru álitnir ófærir um að skilja hana, heldur er henni miðlað til áhangenda safnaðarins á löngum leynifundum í dimmum herbergjum, þar sem leyndir helgisiðir eru viðhafðir. Til slíkrar þekkingar má telja aðferð til þess að sjá innri , ,ljós”, sem er fólgin í því, að þrýst er á hliðar augnstein- anna, aðferð til þess að heyra „tónlist” utan úr geimnum með því að stinga þumalfingrunum í eyrun, aðferð til þess að fá að bragða á „lífsvökva” Guðs með því að sveigja tunguna aftur fyrir góm og aðferð til þess að fá að reyna guðlegan titring, sem kallaður er „Orðið” með því að einbeita athyglinni að eðlilegum öndunarhljóðum og reyna að við- halda þeim ómenguðum. Þessar aðferðir eru æfðar daglega, ásamt „satsang”, en þar er um að ræða trúarlegar samræður, sem standa í tvo tíma eða lengur. Ætlast er til, að hugleiðslan sé stöðug og órofin, og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.