Úrval - 01.06.1976, Side 75
D ULSPEKIS ÖFNUÐIR...
73
fyrrverandi meðlimir safnaðarins hafa
skýrt frá því, að stöðugt sé varað við
því, ,að vera á valdi síns eigin huga’ ’.
Það er að beina athyglinni að eigin
vilja löngunum og dómgreind.
Enda þótt félagar ,,ashram” verði
að vinna kynbindindisheit, giftist
hinn ungi ,,guru” (meistari) sjálfur
bandaríska einkaritaranum sínum,
sem er 8 árum eldri en hann. Móðir
hans hefur síðan reynt að fá meistar-
ann unga, .settan af’ ’ sem svikara, sem
hafi fallið fyrir hinum illu siðum
Vesturlanda. Maharaj Ji býður henni
birginn af fullri einurð. „Enginn
skaparguru,” segirhann, „heldurer
hann bara ,,guru” vegna eigin
tilveru. ’ ’
ALÞJÓÐLEGT FÉLAG
KRISTNAVITUNDARINNAR.
Þessi söfnuður, sem hefur nú
aðalbækistöðvar sínar í Los Angeles,
var stofnaður af Swami Prabhupada í
New Yorkborg árið 1966. Nú hefur
hann um 7.000 áhangendur í 80
borgum. Þeir fara á fætur klukkan 4 á
morgnana, og eftir að hafa fengið sér
kalt steypibað, eyðaþeir 2—3 tímum
í dans og ,,Hara Krishna”-söngl.
Síðan halda þeir oft út á strætin,
lemjandi trumbur og sönglandi, í leit
að fjárframlögum og til þess að selja
reykelsi, sem ber heitið „Andlegur
himinn” og framleitt er í aðalbæki-
stöðvunum í Los Angeles, og einnig
mánaðarrit safnaðarins, en það heit-
ir „Snúið aftur til uppsprettu
Guðs.” Rannsóknir hafa leitt í ljós,
að margir áhangendurnir eru fyrr-
verandi eiturlyfjaneytendur. ,,Nú
ljóma andlit þeirra,” segir Prabhu-
pada, ,,Þeir neyta ekki kjöts. þeir
neyta ekki örvunarmeðala. Þeir spila
ekki fjárhættuspil. Þeir hafa ekki
ólögleg kynmök.” Hann segir, að
hann álíti sig vera „frelsara” banda-
rískrar æsku.
GUÐSBÖRN.
Þessi söfnuður, sem er minnstur
þessara fjögurra, var stofnaður árið
1969 á þann hátt, að tveir litlir
söfnuðir í Kaliforníu voru sameinaðir
undir stjórn Davíðs Bergs. Söfnuður-
inn hefur nú teygt arma sína víða um
heim, og innan vébanda hans eru um
120 hópfjölskyldur í 65 löndum með
samtals 3.500 áhangendur. Þeir eru
ekki í neinu starfí, heldur afla þeir
fjárframlags frá foreldrum og frá
kaupmönnum og með því að fara
fram á framlög fyrir bæklinga, sem
þeir dreifa og skrifaðir eru af Berg og
nefnast „Mo-bréf”. Það er litið á
hann sem spámanninn Móses, og býr
hann nú í Englandi.
Söfnuðurinn trúir á yfirvofandi
heimsendi og álítur heiminn og öll
hans kerfí vera rotin og einskis virði,
enda bíði hans og þeirra ekkert annað
en eyðilegging innan skamms. Stjórn
Bergs á söfnuðinum er alger. „Full-
komin, tafarlaus hlýðni er algert
skilyrði,” er félögunum tilkynnt í
viðvörunartóni. „Þið verðið að hlýða
leitogum Drottins, yfírmönnum ykk-
ar, undantekningarlaust, algerlega,