Goðasteinn - 01.09.1968, Blaðsíða 12
Breiðabólsstað og þá einnig fljótlega prófastur í Rangárþingt.
Páll Eggert Ólason segir, að er Ögmundur fékk Breiðabólsstað,
þá var sá staður eitt hið bezta prestakall á landinu og jókst svo
áð auði á prestskaparárum Ögmundar, að hann varð langbezt
prestakall á landinu og hélzt svo lengi síðan. Talið er að Breiða-
bólsstaður hafi á þeim tíma legið undir erkibiskup í Niðarósi til
veitingar. I frásagnir eru færðir tveir allsérstæðir atburðir, sem
gerðust meðan Ögmundur var prestur á Breiðabólsstað og varða
hann og einkenna nokkuð: Vorið 1508 var hart í ári og harðindi til
matar með alþýðu eystra. Hafði þá verið spennt upp fuglanet á
Breiðabólsstað og stóð það í stilli um páskana. En á páskadiig
var Ögmundi sagt að fugl væri kominn í látrið, en hann bann-
aði að slá fuglinn, með því að þessi dagur væri dagur lífgunar
en ekki dauða. En þá bar svo við að kýr sleit sig upp í fjósinu,
hljóp út og æddi um grundirnar fram og aftur. Kom hún þá
við nettogið, svo að netstöngin skrapp upp, en netið slóst yfir
fuglinn. Fengust þar að tölu 3 hundruð (þ. e. 360) fugla. Var
fuglinn síðan tekinn að boði Ögmundar, borinn heim í stofu
og geymdur þar fram yfir miðdegi á mánudaginn næstan eftir, en
síðan sleginn og honum skipt upp milli manna. Er sagt að Ög-
mundur hafi talið þennan atburð jarteikn gerða af Guði, svo að
Guð hefði nú bjargað mönnum til líkamlegrar fæðu á sama degi,
sem hann hefði bjargað sálum manna og leyst þær frá kvölum.
En síðan er það orðtak haft eftir Ögmundi: „Þá skal grípa
gæs, er hún gefst.“ Hafði allur þessi fugl verið gæsir og hefur
munað um minna í harðindum, en svo mikið af stórfugli. En
þessi saga þykir sýna vel síðavendni og trúrækni sr. Ögmundar.
Hinn atburðurinn er talinn hafa orðið árið 1509 eða 10 og
hefði vel mátt draga nokkurn dilk á eftir sér. Svo er frá sagt, að
umboðsmaðurinn á Bessastöðum, hvort sem verið hefur hirð-
stjórinn sjálfur eða einhver umboðsmaður hans, hafi riðið frá
Bessastöðum austur um sveitir við sjöunda mann. Urðu þá á
vegi förunauta hans heimamenn Ögmundar og var það í grennd
við Breiðabólsstað. Ekki kunna menn frá að segja, hvað til hafi
borið þeirra á milii, en Bessastaðamenn gerðu til Staðarmanna,
slógu þá og hröktu heim að bænum og inn um karldyrnar á
10
Goðasteinn