Goðasteinn - 01.09.1968, Side 58

Goðasteinn - 01.09.1968, Side 58
Draugur á Brúnatanga Það mun hafa verið um aldamótin 1900, að Þorleifur Þorleifs- son frá Tjörnum undir Eyjafjöllum bjó að Fornusöndum í sömu sveit. Kona hans var Ástríður Eiríksdóttir frá Grímsstöðum í Land- eyjum. Hcyrt hef ég getið um tvö börn þeirra, Kristínu konu Sveins Jónssonar á Landamótum í Vestmannaeyjum og Guðmund tré- smið á Súgandafirði og víðar. Þorleifur var jafnan hlýr og aðlað- andi í viðræðum og dagfari, vaskleikamaður og brá sér ekki við, þó eitthvað óvanalegt bæri fyrir sjónir. Hann hafði sérkennilegt sláttulag. Þegar hann sló slétt tún eða harðvelli, sló hann heldur seint og svo stór högg bæði að breidd og lengd, að teigur hans var jafnan stærri en þeirra, sem óðar báru orfið. Þorleifur var vinnumaður hjá mági sínum, Bergsteini Einarssyni á Tjörnum, síðar bónda á Fitjarmýri. Einhverju sinni bar svo til sunnudaginn fyrir fyrstu byggðasafnsrétt, að Tjarnafólkið fór til Stóra-Dalskirkju. Var Bergsteini þá sagt, að hann ætti dauðan sauð á Ljósárdíla fyrir innan Dalssel. Bað hann Þorleif að skreppa þangað og sækja hann um leið og hann færi heim, hvað Þorleifur líka gerði. Veður var gott og skýjafar, svo að ýmist dró fyrir tungl- ið eða frá því. Þorleifur hirti sauðinn og hélt á leið með hann heim. Hann var kominn suður á móts við Brúnir eða þar um, er hann sá mann ganga niður Brúnatanga. Miðaði þeim líkt áfram og höfðu báðir hæga ferð. Á leiðinni frá Brúnatanganum og niður að brekkunni á hæðinni, sem Tjarnabærinn stóð á, dró fyrir tunglið, en í því Þor- leifur kom upp á brekkubrúnina, dró frá tunglinu. Sá Þorleifur þá, að maður stóð á götunni heim að bænum. Þorleifur ávarpaði hann svo: „Gott kvöld, væni minn.“ Þá tók sá, sem heilsað var, ofan hattinn, og höfuðið fylgdi með. Þorleifur sló þá með sönd- ugri svipuólinni ofan í strjúpann. Hvarf þá sýnin og varð að eld- glæringum, sem flugu víðsvegar út í loftið. Var þeim viðskiptum þar með lokið, og náunginn varð ekki oftar á vegi Þorleifs. 56 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.