Goðasteinn - 01.09.1968, Síða 31

Goðasteinn - 01.09.1968, Síða 31
jökulmörkin eru stórir garðar af aur og grjóti, sem jökullinn hefur þokað undan sér og hlaðið upp. Þessir gerðar eru í hringj- um utan um jökultungurnar þær, sem lengst ná niður, og þegar tungurnar minnka, verða garðarnir eftir, en nýir hlaðast upp. Undir þann garðinn, sem næstur er jöklinum, gengur jökulbrún- in eins og plógur og lyftir honum upp á sig. Hún er ekki hvít, heldur blá, helblá, og ætíð leirug, en glerhörð. Langt upp á jökul- inn liggur sandurinn og grjótið, en fer jafnan minnkandi, unz jökullinn verður hreinn. Þegar við gengum á jökulinn, þræddum við sandhryggina eftir megni. Á milli þeirra er jökullinn blár og háll af vatnsrennsli, með djúpum vatnsræsum, en sandurinn hlífir honum við sólbráð, og verða hryggir undir honum. Þessir hryggir eru þó varasamir og illir yfirferðar. Þegar þeir fóru að minnka, lögðum við á hreinar. jökul. Sólin bræðir jafnan nokkuð af snjónum á yfirborði jökulsins, einkum neðan til, og rennur vatnið í lækjum ofan jökulinn. Þess- ir lækir grafa sér gjótu niður í gegnum bláan jökul og falla þar niður. Þessar gjótur voru það viðsjálasta, sem fyrir okkur varð. Vatnið er búið að gera barmana afsleppa, svo að það hall- ar ofan í þær frá öllum hliðum. Og ef maður missir fótanna, á hann á hættu að renna ofan í þessa köldu katla og hverfa þar fyrir fullt og allt, því enginn veit, hve djúpir þeir eru. Við vorum illa búnir til jökulgöngu; þó höfðum við brodd- stafi og band á milli okkar, en okkur vantaði mannbrodda mest af öllu. Jökullinn er æði brattur neðan til, blautur af sólbráð og háll eins og gler. Við fórum þá af skónum og fikruðum okkur áfram á sokkunum, því að þeir voru stamari. Það var kalt,svo að gekk til hjarta. Jökullinn, sem við gengum á, var líkastur bláu gleri, sem brætt er saman úr hálfgagnsæjum, hvítleitum köggl- um, en glært á milli. Þegar við komum lengra upp á jökulinn, fór að koma hvít, snörp skel af snjó ofan á bláa ísnum. Þar höfðu sólargeislarnir unnið minna á. Þá bundum við á okkur skóna aftur. Eftir það skilaði okkur vel áfram. Brattinn varð minni, og héldum við eftir dæld milli tveggja jökulhryggja, sem lágu upp og ofan. Fyrst Gjðasteinn 29
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.