Goðasteinn - 01.09.1968, Page 33
fjallinu. Ef skip sem gengur io mílur á vökunni (4 st.), eins og
„Vesta“, kæmi t. d. að austan og færi þvert gegnum hring þann,
sem yfir sér af Eyjafjallajökli, þá ætti það að vera sýnilegt í
hér um bil 30 klukkustundir.
Við áttum loks skammt eftir upp á einn hæsta hnjúkinn
(Guðnastein), ekki meira en um það bil 3-500 faðma og góðan
veg að því er séð varð, þegar drífuský skall yfir hnjúkinn, svo
að við sáum þann kost vænstan að snúa aftur. Það er munn-
mælasögn, að af þeim hnjúki sjáist norður í haf yfir þvert Is-
land, en það er harla ótrúlegt. En Mælifellhnjúkur kvað sjást
þaðan yfir Kjalveg.“
Hugleiðing
Þegar enginn íslendingur yrkir stöku,
þá er okkar þjóðarsómi
þorrinn mjög að flestra dómi.
Mun þá jafnvel tungan týnd í tímans iðu,
menning vor til grafar gengin,
gleymdur Snorri, Njála engin.
Jónatan Jakobsson
Godasteinn
31