Goðasteinn - 01.09.1968, Blaðsíða 63
Sigm.undur vann mikið starf í þágu félagsmála. Var lengi einn
af forystumönnum ungmennafélaga á Suðurlandi, starfaði um mörg
ár í samtökum bænda og vann að slysavarnamálum. Eldur fram-
fara og hugsjóna brann glatt hjá honum frá æsku til elli. Mannúð
og mildi voru áberandi þættir í dagfari hans. Gott var að njóta
leiðsagnar hans og gott var að eiga hann að vini. Glaðari og fróð-
ari fór maður jafnan af fundi hans.
Sigmundur naut mikillar hamingju í sambúð við konu sína og
börn, en þau eru: Halldóra Ingibjörg og Sigurður, bæði búsett á
Hcllu. Sigmundur var umboðsmaður Goðasteins síðustu árin, er
hann bjó á Hellu. Telur ritið, að ekki geti það minnzt hans á
annan betri hátt, en að birta nú ávarp það, er sr. Sigurður Einarsson
í Holti flutti Sigmundi og frú Björgu við skólasetningu í Seljalands-
skóla i. okt. 1966, en þá var þar upp sett mynd Sigmundar, steypt í
cir, gerð af Ríkarði Jónssyni myndhöggvara að forlagi cldri og
yngri ncmenda og Ungmennafélagsins Trausta.
Skólastjórahjón kvödd
Sigmundur Þorgilsson var kennari og skólastjóri í Vestur-Eyja-
fjallahreppi frá 1920 til 1958. Hann var skólastjóri barnaskólans á
Yzta-Skála frá 1922, þangað til hann brann, árið 1949. Hann kenndi
áfram við erfiðar ástæður þau ár, sem það tók að koma þessum
skóla upp. Og hann var fyrsti skólastjóri Seljalandsskóla frá stofn-
un hans, 1954, þangað til hann lét af starfi sakir aldurs, árið 1958.
I 38 ár samfleytt, að einu ári undanteknu, var hann kennari og
Jærifaðir þeirrar kynslóðar ungra Eyfellinga, sem hér óx upp í aust-
anverðri sveitinni, og síðustu árin allra. Fyrsti árgangur barnanna,
sem gekk í skóla hjá Sigmundi, er nú töluvert á sextugsaldri. Síð-
ustu árgangarnir eru nú að ganga frá framhaldsnámi sínu í lang-
skóJ.anámi, iðnfræðslu, búnaði og hagnýtum störfum, fóta sig sem
rncnn og ábyrgir borgarar á vettvangi lífsins.
Ef við hugsum okkur árin og kynslóðirnar raðast upp, lag ofan
á lag eins og berglögin hér í fjöllunum undir Eyjafjöllum, þá er
upp undir brúninni, sem við stöndum nú á, þykkur stabbi af dug-
Goðastemn
61