Goðasteinn - 01.09.1968, Page 72
reynsla er það í nútímanum að standa þar við hlóðasteínana og líta
upp í sótuga rótina, sem sauðaföll margra kynslóða hafa hangið í.
Hérna var aldrei svelta í búi. Já, merkileg reynsla fyrir mig, sem
þó hafði séð eld loga í hlóðum fyrir eina tíð, hvað þá fyrir ungu
frúna utan úr heimi, sem hér gat lifað inn í kjör íslenzku sveita-
konunnar, sem verndaði eldinn og lífið og færði okkur fram á
þennan dag.
Hann Bergur Kristófersson á Keldunúpi var svo góður að leyfa
mér að velja að vild úr gömlu kláfunum og hripunum, sem til voru
í búi hans: kýrkláfur, tveggja hesta hrip, tuttugu lamba hrip. Einar
Pálsson á Hörgslandi gaf Bergi lambahripið í búið og sagðist á-
byrgjast að það tæki fóður tuttugu lamba í mál. Góðar heimildir
um gjafalag. Á einn kláfinn voru markaðir bókstafir, MK. Líka
merk heimild. Þetta var í viðlögum ullarkiáfur, gcymdi um sinn
ull af kindum heimasætunnar, Margrétar Kristófersdóttur, frá rún-
ing og fram að kauptíð. Þannig leiða þessir gömlu búshlutir í ljós
þekkingu á daglegum háttum heimilis og sveitar.
Það er drjúgur krókur að fara um Meðallandið í heimferð, en
það að eiga í vændum að hitta Eyjólf á Hnausum vinnur töfina vel
upp. Hann kann skil á fleiru en strönduðum skipum, hann Eyjólfur.
Ætli það sé ofsagt, að hann viti meira um líf og hætti gömlu Meðal-
lendinganna en nokkur annar nútímamaður? Hvenær skyldi hann
fá tóm til að stinga niður penna svo um munar? Líklega aldrei.
Leiðinlegt að mega ekki vera að því að koma við hjá Svein-
björgu á Syðri-Fljótum. Þangað er þó ekki langur krókur. Ég man
enn, hvað kjötsúpan hennar Steinunnar systur hennar var góð
hérna um árið og hvað hún Sveinbjörg gladdi hjarta mitt með fórn,
sem gerði safn mitt auðugra og betra. Blessuð veri hún fyrir það.
Margt eftirsóknarvert er að sjá og heyra á Hnausum. Húsfreyjan,
Sigurlín Sigurðardóttir frænka mín, hafði munað til mín. Það
sýndi hún í gamla, trégirta strokknum hans Stefáns á Hnausum,
sem hún dró fram í dagsljósið, og stönguðu beizlistaumunum hans
Eyjólfs í Botnum. Og úr því ég minnist á beizlistauma, er ekki úr
vegi að geta þess, að Eyjólfur kenndi mér að bregða blöðkukóng,
sem er með sama verklagi og starkóngurinn, sem prýddi oft gömlu
beizlistaumana.
70
Goðasteinn