Úrval - 01.12.1976, Page 9
,,MESTA KVIKMYND ALLRA TlMA.
7
leik hennar og skilning hennar á
þessum hrífandi, viljasterka persónu-
leika. Loksins, eftir að 1400 umsækj-
endur höfðu verið athugaðir og 90
reynslumyndaðir — kostnaður
92.000 dollarar — var leitinni að
Scarlett lokið.
Taka aðalmyndarinnar hófst þann
26. janúar, 1939- í upphafí mynd-
arinnar — Scarlett á veröndinni í
Tara — jörðin fram undan búgarð-
inum þakin sverum eikum og sedrus-
trjám gerðum úr berki og gipsi,
ný lauf varð að líma á greinarnar
á hverjum degi. Og vaxdúksblóm
voru fest á tugi af tilfluttum epla-
trjám, sem ekki blómstra í suður-
hluta Kaliforníu.
Einn af eftirminnilegustu atburð-
um í Á hverfanda hveli er birgðasen-
an, sem nær hámarki, þegar járn-
brautin er þakin særðum og deyjandi
suðurríkjahermönnum síðla dag
nokkurn ákvað Selznick, að þetta
atriði yrði myndað daginn eftir, og
krafðist þess að fá 2500 aukaleikara
í það. Alla nóttina voru mynda-
tökumennirnir í símanum og kölluðu
menn til vopna. Næsta morgun var
lóðin þakin suðurríkjahermönnum á
ýmsum aldri, af ýmiskonar ætterni
og þjóðerni. Filipseyingar, japanir,
mexíkanar og fleiri, sem sumir hverjir
gátu ekki svo mikið sem borið rétt
fram staðarnöfn hvað þá heldur verið
nothæfír sem umsetnir synir suður-
ríkjanna og voru því settir á lítt
áberandi staði.
Klukkan 11:30 var myndatökunni
lokið og stjórnandinn kallaði
,,matur”. Þá var eins og ósýnileg,
læknandi hönd færi um sviðið, lækn-
andi um það bil helminginn af
mannskapnum, sem spratt á fætur og
hljóp að matarvögnunum, meðan
hinn helmingurinn lá kyrr á jörðinni.
Aðeins 949 af aukaleikurunum voru
lifandi, en yfír 1000 voru brúður. Það
hafði ekki tekist að útvega alla 2500
mennina, sem til þurfti. Svo lifandi
maður var látinn leggjast við hliðina
á hverri brúðu og rugga henni til svo
hún sýndist anda.
Hlutverk Rhett Butler, það lengsta
og flóknasta, sem Clark Gable hafði
nokkru sinni reynt á ferli sínum,
hafði hann alls ekki langað til að
leika. Gable fann, að hlutverkið var
honum í rauninni ofvaxið, og hann
var smeykur við það. En samningur
hans um 7000 dollara á viku gerði
ekki ráð fyrir því, að hann skoraðist
undan hlutverki.
Eitt atriði — þegar Rhett lyppast
niður og grætur við fréttina um
fósturlát Scarlett — skelfdi hann sér
í lagi. Gable var hræddur um, að
áhorfendur mundu hlæja að honum.
Morguninn, scm þetta átti að mynd-
ast, var Gable afar slæmur á taugum
og hótaði að yfirgefa kvikmyndir með
öllu, ,,fráogmeðþessari”.
Stjórnandanum tókst að róa hann
og stakk upp á samkomulagi: atriðið
skyldi tekið í tvennu lagi, fyrst með
Gable með bakið að myndavélinni,
ákaft syrgjandi og svo Gable framan
frá, grátandi. Engum gestum var