Úrval - 01.12.1976, Blaðsíða 57
MARGTER SKRÍTIÐIRÍKINÁTTÚRUNNAR.
55
þessum nýja, ókunnuglega ilmi af
hvítu fólki.
En einhverstaðar í eðli mannsins
leynast eftirstöðvar af samskonar
tilfinning fyrir sama ilminum og
laðar moskushjartarhindina. Bæði
menn og konur notuðu moskus
fyrrum eins og það kom af skepn-
unni, en nútíma ilmvatnsframleið-
endur fara kænlegar að: nú er það
þynnt út og blandað blómailmi. En
moskus er enn mikið notaður, og það
er enn veigamesta efnið í æsandi
ilmvötnum, sem (eins og auglýsing-
arnar segja) ,,gera karlmenn óða!!
Nútíma veiðar
Þar sem framboð á moskus hefur
aldrei getað fullnægt eftirspurninni,
hafa framleiðendur stöðugt leitað að
staðgengilsefnum. Þeir hafa upp-
götvað, að mörg dýr hafa moskus-
lyktandi lokkunarkirtla. Kirtlar
bjórsins gefa frá sér kastorefni, sem er
mikið notað í ilmvötn, sömuleiðis
ilmsterk desdýraangan. Ilmvatns-
framleiðendur veittu því athygli, að
margt fólk hefur ekkert á móti
þefdýrslykt í fjarlægð á frostköldum
morgnum. En efnafræðingar urðu að
gefa þefdýrið upp á bátinn: Þefur
. þeirra er í eðli sínu fyrst og fremst
varnarvopn fremur en kynlokkandi
efni. Moskusrottu kirtilefni, ódýrt
aukaefni, sem fæst úr loðskinnum,
gerði sitt gagn. Ilmur af moskus-
rottuefni er í rauninni ekki þægilegur
en heppinn efnafræðingur upp-
götvaði, að hægt var að kljúfa
mólekúlin í tvennt, og af því varð
efni, sem minnti mjög á moskus.
Þefur af moskusnautum er allt annað
en þægilegur.
Mesta árangri náði dr. Wallace
Carothers hjá Du Pont. Þegar hann
var að reyna að finna upp silkilíkan
þráð, henti það að hann fann óvart
upp efnasamband með furðulega
moskuslíkum ilmi. Undir nafninu
Astrotone er það mikið notað sem
staðgengill moskus. En hvað dr.
Carothers snerti, gerði hann kven-
fólkinu ennþá meiri greiða með því
að finna upp nylon, og sennilega Du
Ponthringnum sömuleiðis.
Ilvatnsframleiðendur harma það,
að fleiri karldýr skuli ekki gefa af sér
moskusilmefni. En einhvernveginn
er eins og karlmennirnir hafi haft
endaskipti á hlutunum, því náttúran
ætlaði þessum töfrailmi það hlutverk
að gera kvendýr óð. Ef karlmenn
gerðu sér þessa staðreynd ljósa,
mundi eftirspurnin á ilmvatnsmark-
aðinum efalaust vaxa stórlega. Til
þess að bjarga litla moskushirtinum
frá útrýmingu, yrðu efnafræðingar að
leggja fastar að sér og ná skjótum
árangri.
Við veljum okkur vini; og sköpum okkur óvini; en guð velur okkur
nágranna. G.K.