Úrval - 01.12.1976, Blaðsíða 105
ÖFRJÖSEMISAÐGERÐ: VINSÆLASTA GETNAÐAR VÖRNIN.
103
ir varðandi aðgerðina sjálfa og afleið-
ingar hennar.
Hvernig er það, að hafa ekki
lengur getu til að fjölga sér? í
meðfylgjandi grein er þcirri spurn-
ingu svarað af hálfu þeirra, sem best
vita: Þeirra, sem hafa látið gera sig
ófrjó, og lækna og heilsugæsluyfir-
valda.
Hvaða áhrif hefur það á kynlíftð
að hafa verið gerðl ur ófrjólr? Kemur
það fyrir, að karlmaðurinn verði
getulaus eftir saðgangaskurð (vasec-
tomy), og geti ekki fengið eða haldið
stinningu?
Sáðgangaskurður á ekki að hafa
nein áhrif á kynorku eða kyngetu
karlsins. Kynfæri karlsins, eistun,
skaufinn og blöðruhálskirtillinn, eru
alls ekki snert við aðgerðina.
Framleiðsla karlhormónanna er á
engan hátt skert. Allt verður eftir
sem áður, nema að í „sáðfalli”
karlsins er ekki eitt einasta sæði
lengur, sem gæti gert konu bam.
Kennari 1 Chicago segir um þetta:
„Þetta færir manni nýja frelsistil-
finningu. Hvorki maður sjálfur né
konan þarf að hafa áhyggjur af
þungun eða baslast með alls konar
aukahluti við samfarir. ’ ’
Raunin er sú, að ófrjósemi af þessu
tagi virðist oftast færa fólki
hamingjusamara kynlíf, sem kemur
fram í meiri kynorku og kynnautn.
Kona nokkurí Kaliforníu segir: ,,Það
var ekki fyrr en ég var laus við verjur,
hverju nafni sem þær nefnast, sem
mér varð Ijóst hvað þær eru trufl-
andi og spilla miklu. ’ ’
Finnst fólki, sem gert hefur verið
ófrjótt, að það sé minna karlmann-
legt eða minna kvenlegt eftir en
áður:
,,Nei,” var samhljóma svar þeirra
karla og kvenna, sem þessi könnun
nær til, á aldrinum 20—50 ára. ,,Mér
finnst ég einmitt karlmannlegri en
nokkru sinni fyrr,” svöruðu margir
karlmannanna. ,,Það hefur mér
aldrei dottið í hug,” var dæmigert
svar hjá konunum.
Rannsókn, sem náði til 276 karla,
sem höfðu verið gerðir ófrjóir á
sjúkrahúsi læknaskólans í Pittsburgh,
leiddi í ljós, að 96 af hundraði
myndu velja sáðgangaskurð sem
getnaðarvörn, ef þeir stæðu á ný
frammi fyrir þvi að velja. Við Kristna
háskólann í Texas voru 110 karlar
spurðir, hvort þeir hefðu fundið til
breytingar eftir aðgerðina. Af þeim
sem svöruðu jákvætt sögðu 94 af
hundraði, að þeir hefðu fundið
,,aukna hugarró og meiri kyn-
nautn.”
Hvernig er sáðgangaskurður
(vasectomy) gerður? Erþað sárt?
Læknirinn sker tvo rúmlega senti-
meters langa skurði í punginn, rétt
ueðan við skaufann, og nær þá til
sáðganganna tveggja, sem flytja sáð-
frumurnar frá eistunum. Hann sker
smástubb úr báðum leiðurunum og
lokar fyrir endana. Aðgerðin tekur
innan við 30 mínútur og er gjarnan
gerð á stofu viðkomandi læknis við