Úrval - 01.12.1976, Blaðsíða 15
ERTÞU VINNUSJÚKLINGUR?
veldara fyrir suma að taka upp frí-
stundaiðkanir sem eins og vinna hafa
eitthvert ákveðið markmið, svo sem
smíðar eða íþróttir.
Vegna þess, að fólk, sem skyndi-
lega breytir um frá erfíðu starfí yfír í
aðgerðarleysi á á hættu að fá alls-
konar líkamlega og andlega kvilla,
væri ráðlegra fyrir það að taka sér oft
stutt orlof, eða venjast lengri orlofum
með því að draga smátt og smátt úr
vinnutímanum. Byrjandi áráttumað-
ur af A-persónugerðinni, ætti líka
að reyna að hægja á sér eftir föngum.
Dr. Friedman, sem sjálfur er hálft í
hvoru A-gerð og hefur fengið hjarta-
áfall, byrjaði með því að klæðast
hirðuleysislega af ásettu ráði, og eyðir
oft töluverðum tíma í lágþrýstiat-
hafnir, eins og það að skoða málaðar
gluggarúður í dómkirkju í nágren-
inu.
Hvernig ert þú á vegi staddur með
vinnuáráttu? Gerðu eftirfarandi próf-
un, sem getur gefíð bendingu um,
hvort þú ert haldinn áráttuvinnu-
siðum. Hafðu í huga, að vel hæft fólk
og vinnuglatt gefur ef til vill sömu
svör og áráttumenn við sumum
spurningunum. En einungis sannur
áráttustarfsmaður með A-persónu-
einkenni er líklegur til að svara
öllum spurningunum eins og
getið er til um hér í greinarlokin:
1. Hringir þú oft til kunningja á
kvöldin, bara til að rabba?
13
2. Hefurðu venjulega skrifstofu-
hurðina læsta?
3. Ef þú ættir að kjósa vildirðu þá
heidur að vinir og samverkamenn
dáðust að þér heldur en að þeim
líkaði vel við þig?
4. Lofarðu yfírleitt fólki að ljúka
því, sem það hefur að segja við þig?
5. Lítur maki þinn (eða nánasti
vinur) á þig sem umgangsþýða
persónu í góðu jafnvægi?
6. Verður þú gramur, a) þegar
bíllinn á undan þér ekur of hægt og
þú kemst ekki fram úr? b) Ef svo er,
berðu gremju þína í hljóði fremur en
láta hana í ljósi við aðra?
7. Ertu til með að hjálpa konunni
við húsverkin?
8. Ferðu oft með verkefni með þér
inní baðherbergið?
9. Ertu stundvís þegar þú átt að
hitta einhvern?
10. Ertu oftast móðgaður, þegar
maki þinn eða vinur lætur þig bíða
lengi eftir sér?
11. Ef þú ert á fundi eða önnum
kafínn við einhvern á skrifstofunni,
neitarðu þá oftast að ansa símanum?
12. Þegar einhver er að tala við þig,
lætur þú þá gjarnan hugann reika að
öðrum efnum?
(1.) Nei. (2.) Nei. (3.) Já. (4.) Nei.
(5.) Nei. (6 A.) Já. (6 b) Nei. (7.) Nei
(8.) Já. (9.) Já. (10.) Já. (11.) Nei.
(12.) Já.
★