Úrval - 01.12.1976, Blaðsíða 123
121
hús, sýna svipuð viðbrögð og væri þar
geysilegur fjöldi umferðarljósmerkja.
Þau stjórna og hafa eftirlit með
streymi rafstraums með slíkum of-
boðslegum flýti að unnt er að leysa
flókna stærðfræðilega útreikninga á
broti úr sekúndu.
Stærðfræðingur, sem væri t.d. að
reikna út sjö sinnum kvaðratrótina af
15 1 þriðja veldi, og notaði til þess
skriffæri og blað, væri a.m.k. 5
mínútur að finna svarið og sannprófa
það. En með hjálp vasatölvu kemur
svarið (406.66325) eins fljótt og það
tekur mann að ýta á fjóra hnappa.
,,Þetta eru í rauninni allt saman
galdrar,” segir Peter Nelson hjá
Hewlett-Packard, sem er meiri háttar
tölvuverksmiðja. Og hann brosir um
leið og hann segir: „Hefðum við
rekist á vasatölvu fyrir aðeins 20 árum
og tekið hana í sundur, hefðum við
álitið, að silikonplatan („heilinn”)
væri kominn frá Mars. Við hefðum
þá alls ekki verið færir um að komast
að leyndardómum plötunnar. En nú
framleiðum við þær í milljónatali.”
Þetta geysilega framleiðslumagn
og hin mikla framleiðni framleiðslu-
aðferðanna stuðla mjög að því, að
hægt skuli vera að selja vasatölv-
urnar svona ódýrt. Einnig má nefna
hina geysilegu tækni, sem gerir það
mögulegt, að koma þúsundum ein-
stakra hluta fyrir í æ minna rymi.
Margar vasatölvur vinna mjög vel,
enda þótt í þeim séu aðeins fjórir
aðalhlutar, þ.e. silikonplata, „LED”
(„dioda”, sem gefur frá sér ljós),
aflestrarútbúnaður (readout), sem
sýnir tölur í rauðu, talnaborð og
-plastikhylki. Þegar hlutar vasatölv-
unnar verða þannig færri gerir slíkt
möguleika á meiri framleiðsluhraða
og öryggi. „Ef um einhverja raf-
eindagalla er að ræða, munu þeir
koma fram á fyrstu vikum notkunar,
en þá er ábyrgðin yfirleitt enn í
gildi,” segir Michel Ebertin, sölu-
stjóri fyrir tölvur hjá Microelectron-
ics Group (Örrafeindahringnum)
innan Rockwell-samsteypunnar.
„Eftir það ætti vasatölva að endast í
mörg ár, svo framarlega sem henni
er ekki misboðið með rangri
notkun.”
Þessi dásamlegu „örverpi” eru svo
sterk, að það er alveg furðulegt.
„Heilinn” er þakinn lagi úr plasti til
verndar, sem gerirþað að verkum, að
það er næstum ekki hægt að skemma
hann. Vasatölvu einni var blásið í
gegnum snjómoksturstæki í fyrravet-
ur og vörubíll með risastóran aftan-
ívagn ók yfir aðra vasatölvu í
Houston. En báðar var hægt að nota
áfram eftir minni háttar viðgerðir.
Vasatölva, sem hópur landmælinga-
manna tíndi upp á 5.000 feta háum
fjallstindi í Kaliforníu þar sem
sumarhitinn kemst upp fyrir 38°C
og þar sem liggja 10 feta snjóalög
að vetrinum, tók strax til starfa,
þegar veiðimaður einn fann hana þar
hálfu öðru ári síðar.
Það þarf geysilega framleiðslugetu
til þess að framleiða þessi sterku
„galdratæki”. Um 1970 flýttu um
40 fyrirtæki sér að hefjast handa á
þessu nýja sviði, en síðan hafa mörg
þeirra týnt tölunni. „Það tekur heilt
ár að skapa nýtt leiðslukerfi,” segir
Scott Brown, sölustjóri hjá National
Semiconductor’s Novus Division í