Úrval - 01.12.1976, Blaðsíða 48
46
ÚRVAL
stafla af fölskum ávísunum í bíl, sem
þeir höfðu lagt ólöglega.
„INNBROT”. Það er ekki alveg
eins auðvelt fyrir óviðkomandi að fá
aðgang að tölvu og upplýsingum
hennar, en stundum heppnast slíkt,
ef snilli er beitt. Banki einn í Wash-
ington gaf út innborgunareyðublöð
fyrir reikningshafa sína, og í stað
undirskriftar reikningshafa var á
þeim reikningsnúmer hans skrifað
með ósýnilegu segulbleki, svo að
tölvan gæti framkvæmt færslur á
réttan reikning. En jafnframt voru
hin venjulegu innborgunareyðublöð
ekki tekin úr umferð, heldur látin
liggja í stöflum á borðum í
bankanum til notkunar fyrir við-
skiptavini, sem höfðu gleymt að taka
með sér sín sérstöku einkainnborg-
unareyðublöð. Þetta var auðvitað
fremur fávíslegt, og dag nokkurn
opnaði líka slunginn náungi reikning
með lágri upphæð og fékk svo tæki-
færi til þess bráðlega að fjarlægja hin
venjulegu eyðublöð í bankanum og
setja sín í þeirra stað. Og næstu daga
hömuðust gleymnir viðskiptavinir við
að skrifa nafn og reikningsnúmer á
eyðublöð þjófsins. Féð streymdi inn í
reikning hans, og á þriðja degi gat
hann tekið út rúmlega 100.000
dollara, sem tölvan hafði lagt inn á
reikning hans, og horfið í skyndi.
I Detroit gerðist það, að tveír
verkfræðingar sem höfðu afnot af
tölvuþjónustu í samkrulli með öðrum
völdu ranga tölu í dulmálsorði sínu
og fengu þannig af tilviljun aðgang
að leyndarupplýsingasafni tölvunnar.
Þeir „stálu” þar verðmætri mötunar-
formúlu og notuðu hana hindrunar-
laust í þrjú ár, þangað til annar not-
andi sömu tölvuþjónustu varð hissa á
því, að þetta samband var alltaf
upptekið á síðkvöldum, og lét hefja
rannsókn á þvTfyrirbrigði.
SIGUR: Það eru allmörg dæmi
þess, að fjársvikarar hafa keypt tölvu-
þjónustu eða fyrirtæki, sem var aðili
að samkrulli um tölvunotkun í þeim
tilgangi einum að nota tölvuna í fjár-
svikaskyni. En mesta hneyksli, sem
orðið hefur á þessu sviði, snerti stjórn
fyrirtækis eins, sem notaði eigið
tölvukerfi til þess að stela úr fyrirtæk-
inu.
Þar var um að ræða tryggingar-
félagið Equity Funding Corporation
of America. Á árinu 1970 tók við-
skiptavinum fyrirtækisins að fækka
ískyggilega, og til þess að bjarga þvi
bjó stjórnin til fjölda falskra líf-
tryggingaskírteina og seldi þau end-
urtryggingafélögum fyrir hlægilega
lágt verð. Peningarnir, sem þannig
fengust, voru síðan notaðir til þess að
greiða iðgjöld af fölsku líftryggingar-
skírteinunum. Það var aðeins hægt að
framkvæma þessi svik með hjálp
tölvukerfisins, en það var matað með
fyrirskipunum um að framkvæma
ýmsar breytingar á tryggingarskírt-
einum, breytingar .heimilisfanga,
skráningar lánveitinga gegn veði í líf-
tryggingarskírteinum, skráningar
dauðsfalla og útborgana, og var þetta
allt saman í góðu samræmi við töl-