Úrval - 01.12.1976, Qupperneq 70
68
I júlímánuði úðastliðnum björguðu ísraelskir
hermenn 102 gislum innan úr miðju Uganda,
og sjndu með þvt hernaðarlega nakvæmni,
hugrekki og ftfldirfsku. Þetta frabæra afrek
mun lengi í minnum haft.
AFREKIÐ í ENTEBBE
-dGiGíÉíO’f kömmu eftir hádegi
\j/
[(p sunnudaginn 27. júní
>j< o % hóf hvíta risaþotan frá
itkssl* Air France sig til flugs af
sttsíft.,. flugbraut nni á flugvell-
inum í Aþenu, smaug í gegnurr
þunna borgarmóðuna og beygði
vestur á bóginn yfir glitrandi bláan
Korintuflóann. Það logaði enn á ljós-
inu, sem gaf fyrirmæli um að hafa
sætisbeltin spennt, þegar neyðaróp
konu nísti loftið. Þá vom liðnar átta
mínútur frá flugtaki.
í fyrsta farrými flugvélarinnar
stukku karl og kona á fætur, hvort
um sig með bmgðna byssu í annarri
hendi en handsprengju í hinni.
Konan beindi byssu sinni að flug-
— Stytt og samandregið úr New York
þjóninum en karlinn hélt fram að
flugstjórnarklefanum.
Karlinn, sem síðar reyndist vera
vesturþjóðverjinn Wilfried Böse, 27
ára að aldri, mddist inn í klefann
og tók hljóðnemann, sem tengdur
Times, Newsweek og New York —
AFREKIÐ ÍENTEBBE
69
var hátalarakerfi flugvélarinnar.
,,Ég heiti Basil A1 Qubasi,” sagði
hann á ensku með áberandi þýskum
hreim. „Frelsisstofnun Palestínu,
Che Guevara hópurinn og Gaza-
herdeildin hafa tekið yfirráðin yflr
þessari flugferð. Ef þið haldið að
ykkur höndum og aðhafíst ekkert
tortryggilegt, verður engum gert
mein.” (Talið er, að dulnefnið A1
Qubasi sé komið frá skæmliða frá
Gaza, sem hét þessu nafni. Palest-
ínumenn telja hann píslarvott.)
Flugvélarránið sem hófst eins og
svo mörg önnur, var upphaf ömur-
legs tíma fyrir farþega flugvélarinnar
242 talsins og tólf manna áhöfn.
Flugvélin var á leið frá Tel Aviv til
Parísar.
Fyrst flugu ræningjarnir til Beng-
hazi í Líbíu til að taka bensín, og
síðan til Entebbe flugvallar í Úganda,
þar sem fjölda þessa fólks var haldið í
sex daga í skítugri ónotaðri flug-
hafnarbyggingu. Gíslarnir komust
síðar að því, að tilgangur flugráns-
ins var að neyða Israel og fjórar aðrar
þjóðir til að sleppa 52 palestínu-
skæmliðum og fylgismönnum þeirra
úr haldi.
Gíslarnir vom samsafn gyðinga —
ísraelsmanna og gyðinga af öðm
þjóðerni — og annarra manna, fólks
á öllum aldri. Meðal starfsheita í
þessum hópi mátti finna iyfjafræð-
ing, lækni, suðumann, lögfræðing,
kennara, bensínstöðvareiganda, líf-
fræðing, hjúkmnarkonu, skólanema
og tölvuverkfræðing, og einnig var
þar margt manna komið á eftirlaun.
Flugræningjarnir vom fjórir —
tveir arabar, rúmlega tvítugir að
aldri, eftir útliti að dæma, í sport-
skyrtum og gallabuxum, Böse, há-
vaxinn og ljóshærður og kona, sem
enn er ekki vitað gjörla hver var. Þau
höfðu komið til Aþenu klukkan 6.25
um morguninn frá Bahrain með.
flugvél frá Singapore Airlines. Far-
angur þeirra mun ekki hafa verið
skoðaður, þegar þau héldu um borð í
frönsku flugvélina í Aþenu. En þegar
þau gengu út í vélina, var eitthvað
við þau, sem ýmsum farþeganna