Úrval - 01.12.1976, Qupperneq 73
AFREKIÐ ÍENTEBBE
71
stað og ef til vill ekki. (Dulnefni
þessara aðgerða var Þrumufleygur,
tekið af einni bóka Ians Fleming um
James Bond.)
ísraelir höfðu slæma aðstöðu.
Annars vegar urðu þeir að afla sér
mikilia og haldgóðra upplýsinga um
fjarlægt og fjandsamlegt land, en á
hinn bóginn urðu þeir að sannfæra
skæmliðana um að þeir væm í alvöru
að semja við þá. Skipst var á orð-
sendingum gegnum franska sendi-
ráðið til Úgandamanna og þaðan til
flugræningjanna.
En með hverri stund, sem leið,
varð æ meira freistandi að láta herinn
sjá um málin, og leitað var upplýs-
inga úr öllum mögulegum áttum.
Leitað var til ísraelska bygginga-
félagsins, sem hafði gert flugvöllinn
í Entebbe, en þar komust menn að
þvi( að hann hafði verið stækkaður
svo mjög á síðari ámm að allar gamlar
teikningar vom gagnslausar. Starfs-
menn ísraelska flugfélagsins E1 A1 í
Nairobi í Kenya vom yfirheyrðir til
þess að fræðast um mögulegar
flugleiðir, möguleika til að taka
eldsneyti og til að hafa fjarskiptasam-
band. Svörtum njósnumm var
smyglað inn í Úganda. Og upplýs-
ingarnar hrönnuðust að.
30. júní og 1. júlí slepptu flug-
ræningjarnir þeim gíslanna, sem ekki
vom gyðingar, og fækkuðu þeim þar
með niður í 106. Það var mun við-
ráðanlegri fjöldi að bjarga í leiftur-
árás. Þetta veitti ísraelum þær upp-
lýsingar, sem þá vanhagaði hvað mest
um. Gíslarnir, sem sleppt hafði
verið, lýstu staðnum þar sem gíslarnir
vom hafðir í haldi. Byggingin var
ekki varin með sprengjugildmm og
eftirlit flugræningjanna var harla
bágborið
ísraelska stjórnin lést enn vera að
semja. Hún útnefndi sérstaka
„samninganefnd,” sem átti að gera
lista yfir þá fanga, sem ísrael „myndi
faiiast á” að láta úr haldi. Heim-
urinn sá ekki betur en ísraelar yrðu að
gefast upp — og ísraelar gerðu allt
sem í þeirra valdi stóð, til að halda
mönnum í þeirri trú.
Síðan gerðist það 2. júlí, að Varn-
armáladeild Bandaríkjanna lét ísrael í
té loftkönnunar- og gervihnatta-
myndir af flugvellinum í Entebbe.
Samtímis tókst ísraelskum njósnur-
um að komast á staðinn og ná þar
mikilvægum upplýsingum, og í
þriðja lagi gaf Kenya leynilega
samþykki sitt til þess að árásarliði
ísraels yrði heimilað að lenda í
Nairobi til þess að taka bensín og fá
læknishjálp til handa særðum á
leiðinni heim aftur frá Úganda.
Úr árásarliðinu, sem Gur hershöfð-
ingi hafði valið, voru nú valdir sér-
stakir menn, sem höfðu hlotið sér-
þjálfun í árásum af þessu tagi.
Þeir urðu að æfa árásina æ ofan í æ,
og höfðu komið tímanum niður í 55
mínútna viðdvöl á jörðu. Yfirmaður
þeirra var Jonathan Netanyahu, þrí-
tugur liðsforingi, sem hafði komið
tveggja ára gamall til ísrael frá
fæðingarstað sínum, Bandaríkjunum