Úrval - 01.12.1976, Síða 80
78
ÚRVAL
★ ★ ★
Er börnin voru í ómegð, hún bjó við marga þraut
— hjá börnunum í ellinni þess hún aftur naut. —
Hún kenndi þeim að lesa og kemba, prjóna og spinna;
hún kenndi þeim fyrst að tala og svo að ganga og vinna.
Er þúið var að , ,lesa’ ’, hún bar þeim kvöldverðinn
og breiddi síðan ofan á litla hópinn sinn,
á versin sín þau minnti og vermdi kalda fætur,
en vakti sjálf og prjónaði fram á miðjar nætur.
★
Hún réðst með hrífu sína ogreiddan miðdagsverð
um refilstigu grýtta, var harla skjót í ferð,
því einn var , ,pabbi’ ’ að heyja á engjateignum grænum,
frá ómegð þeirra hjóna og þernulausum bænum.
í mílu vegar fjarlægð — og mörgum sinnum stóð
í mýrinni við rakstur og föngum saman hlóð.
Að morgunverkum loknum hún mátti fara að bragði;
til mjaltanna á kvöldin um náttmál heim svo lagði.
En yngsta reifastrangann sinn út x túnið bar
— þau eldri skyldu hans gæta — er ,,pabbi” að slætti var.
I lágra þúfna skorning, í ljósi sólar hollu
þar lék hann sér að smára og fífli og biðukollu.
Og hrífu sinni brá hún og hart að ljánni gekk,
sem harla skjótt gekk saman og varð að dreifðum flekk.
En það var henni leikur í þokunni að smala
og þumalinn að prjóna — um hvíld var ekki að tala.
______________________ ★