Úrval - 01.12.1976, Qupperneq 118

Úrval - 01.12.1976, Qupperneq 118
116 Orval takenda greiðslna frá Almannatrygg- ingum farið þess á leit, að ávísan- irnar verði sendar til banka þeirra, og ekki hafa heldur margir launþegar farið þess á leit, að laun þeirra verði send á sama hátt. Ástæðurnar eru breytilegar. Sumt fólk hefur vantrú á bönkum eða óttast, að þegar vél- arnar hafi tekið við, hætti það að hafa raunverulegan ráðstöfunarrétt yfir inneigin sinni, eða það nýtur þess blátt áfram að hafa reiðufé á milli handanna. Aðrar ástæður eru veigameiri. Samkvæmt núverandi lögum er ávís- un, sem banki hefur samþykkt, að ekkert sé athugavert við, viðurkennd sem lögleg sönnum um, að greiðsla hafi átt sér stað. Mun færsla á bankareikning manns eða kvittun útgefin af vél hafa sama gildi? Ef vara, sem þú kaupir, er gölluð, eða þjónusta, sem þú greiðir fyrir, reynist ófullnægjandi, geturðu gefið banka þínum fyrirmæli um að innleysa ekki ávísun þína eða neita að greiða reikn- inginn, hafi úttektin verið skrifuð hjá þér. En þegar seljandinn tekur við greiðslu með hjálp rafeindavélar um leið og þú kaupir hlutinn, mun hann þá verða eins reiðubúinn til þess að skipta á hlutnum eða endurgreiða þér hann og áður? Svo er einnig um að ræða þann nagandi kvíða, að skekkjur kunni að slæðast inn í reikn- inga. En ógnunin um skerðingu leyndar um einkalíf eða viðskipti veldur mönnum samt enn meiri áhyggjum. Það þarf ekki annað en að ýta á hnapp í þessum vélum, og þá birtist þar á skermi allt um viðskipti þín og einkaástæður, kaup og sölu, tekjur þínar og skuldir, hvert þú ferðast og hvernig þú eyddir peningunum þín- um. Að vísu eru slíkar upplýsingar vel varðveittar, en sú staðreynd, að emhver í bankanum hefur aðgang að þeim og að einhver, sem á ekki að hafa aðgang að þeim, kynni að stelast til þess að afla þeirra, veldur ótta hjá mönnum um, að slíkt væri hægt að nota í fjárkúgunarskyni eða til þess að hafa peninga út úr fólki á einhvern annan hátt, til dæmis með óhófleg- um söluáróðri. Þetta eru sum þeirra vandamála, sem er nú verið að rann- saka af hinni nýskipuðu Landsnefnd um rafeindabankaviðskipt sem hefur aðsetur í Washington. En samt leikur enginn vafi á þvi, að það er þetta kerfi, sem koma skal og mun fyrr eða síðar stjórna öllum bankaviðskiptum. Hagfræðingar kalla það ,,bylgju framtíðarinnar”, ,,stórkostlegustu nýjungina síðan seðlar komu til sögunnar” eða ,,jafn óstöðvandi og sjónvarpið.” Það er jafnvíst, að tilkoma þess mun hafa í för með sér geysilegar breytingar i uppbyggingu bankakerfisins, þvi að þegar allar fjármálastofnanir hafa komið sér upp fjarþjónustuein- ingum, hverfur lögskipaður munur milli verslunarbanka og sparifjár- banka og milli sparifjár- og lánasam- taka og lánsfjársamtaka að miklu leyti, og landfræðileg staðsetning banka og annarra fjármálastofnana mun þá ekki heldur skipta miklu máli lengur. Öldungadeild Banda- ríkjaþings hefur viðurkennt þessar staðreyndir nú þegar með því að samþykkja lagafrumvarp, sem leyfir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.