Stjörnur - 01.06.1948, Blaðsíða 4
? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? -? ? ? ? ? ? ? ■? ? ? ? ? ? ? ?
? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ?'? ? ? ? ? ? ? ? ? '? ? ? ?
? ? ? ? ? ? ? ? ? ? JL?MJ||f ? ? ? ? ? ? ? ? ? ?
? ? ? ? ? ? ? ? ? ? VKkar a miiii ? ? ? ? ? ? ? ? ? ?
??’??’?'???'???'? ’??’?’?’?’?’?'?
* Meðal annarra orða. — Skömmu eftir
útkomu þriðja heftis þessa rits birti
Morgunblaðið í dálknum Meðal annara
orða hugvekju með yfirskriftinni „Leik-
aradella". Ritstjóri þessara háttvirtu dálka
tók þar Stjörnur til bæna. Ekki verður
sagt að blaðið rasi fyrir ráð fram, þegar
það gegnir menningarhlutverki sínu sem
gagnrýnir, er það hefur nú loks upp raust
sína þegar Stjörnur eru á þriðja ári. En
betra er seint en aldrei, og það og virð-
ingarvert, að ekki er dæmt fyrr en séð
er hvert horfir.
Það er hverju orði sannara, að pappírs-
skortur er mikill hér á landi sem stendur,
og bæri því að nota vel það sem til er,
en um það verða skiptar skoðanir með
hverjum hætti það verði gert. Sumir
myndu jafnvel freistast til að ætla, að
sumt af því sem ástundum er prentað í
dálki hins heiðraða ristjóra mætti
rýma fyrir öðru merkilegra. Aðrir eru
sjálfsagt á gagnstæðri skoðun — og þar
á meðal e. t. v. ritstjórinn sjálfur — og
telja þeim pappír vel varið, sem flytur
þjóðinni slíkan boðskap alla daga nema á
mánudögum.
Um það má kannski deila hvort
skemmtiefni eigi rétt á sér. Við erum
hinsvegar þeirrar skoðunar að ungt fólk,
sem sækir kvikmyndahúsin og áhuga hef-
ur fyrir leikurum, megi eins fá óskir sín-
ar uppfylltar um fræðslu og skemmtun
í ísl. riti í stað erlendra myndablaða af
líku tagi. Þó að sjálfsögðu með því skil-
yrði, að því sé flutt það á sæmilegan
hátt, að málfari og hugsun. Við leyfum
okkur líka að halda ,að við uppfyllum
þessi skilyrði, þrátt fyrir ummæli blaða-
mannsins við Morgunblaðið.
Það skal játað, að í Morgunblaðið rita
margir prýðilega ritfærir menn og sumir
þeirra eru fastir starfsmenn blaðsins, en
yfirleitt hefur það blað ekki haft forystu
um málvöndun hér á landi — og ekki
viljum við taka gagnrýnenda okkar til
fyrirmyndar um málfærslu. Hann virð-
ist hafa lesið þrjú fyrstu hefti þessa árg.
og grautar öllu saman í grein sinni,
tekur hálfar setningar, slítur úr sam-
hengi og brjálar. Um málspjöllin, sem
er alvarlegasta ákæra, nefnir hann engin
dæmi (og væri þó gaman að fá tilsögn
’hjá honum). Hitt skal viðurkennt, og
á því beðið afsökunar, að prentvillur
eru fleiri — einkum í síðasta hefti — en
vera ætti, en í því efni er víða pottur
brotinn.
Fyrir skömmu stóð þessi klausa t. d. í
Morgunblaðinu „Nýlega er látinn mað-
ur, sem lifir á því að gleypa sverð“ og
í stórri fyrirsögn nokkru síðar: „Reu-
mertshjónin í hádegisverði menntamála-
ráðherra" qg svo með smærra letri:
„Menningartengsl milli þjóðanna eflist".
Gamalt máltæki hljóðar svo: „Þeir ættu
ekki að kasta steini, sem í glerhúsi búa“.
+ Spurull í Hajnarfirði á inni hjá okkur
svar við tveimur bréfum. Hann spyr
margs í senn, og er það ekki að lasta,
Frh. á síðu 50.
4 STJÖRNUR