Stjörnur - 01.06.1948, Blaðsíða 33
ast þar undir hlífðarstriga. Leitar-
maðurinn var það langt á eftir mér,
að hann uppgötvaði ekki bragð mitt,
og gekk í gildruna, enda hafði hann
víst um ærið að hugsa. Skömmu síð-
ar heyrði ég að vél „Delfinens“ fór í
gang og að hann lagði frá. Ég vissi
að ég myndi vera ein lifandi um
borð, og mig grunaði að botnventl-
ar skipsins myndu hafa verið opn-
aðir og að 'það hlyti því að sökkva
innan skamms.
Hér tók hún sér málhvíld og ó-
sjálfrátt 'lagði Johnny Angel hönd
sína yfir hennar og strauk hana ást-
úðlega.
Svo hélt hún áfram.
— Þegar ,.Delfinen“ var kominn
kippkorn frá, hvarf ég úr felustaÖ
mínum og gægðist í áttina til báts-
ins. Ég heyrði hrópað: „Skjóttu
ekki!“ Og þrír menn réttu hendurn-
ar upp fyrir höfuð sér. Það stóð ein-
hver í skýli'sgættinni — ég sá ekki
hver það var —. Ég heyrði skotin
ríða af, hvert á eftir öðru, og alla
þrjá mennina hníga niður. Síðan
vissi ég ekki meira. Mér tókst að
loka botnventlunum og eftir tvö
dægur komuð þér um borð. Meira
hef ég ekki að segja.
H ún þagnaði. Johnny starði hugsi
út í bláinn. Þeir vita um hana. Þeir
_ skutu á hana í gær, og þeir munu
ekki gefast upp fyrr en í fulla hnef-
ana með það, að ná lífi hennar. Það
getur verið Sam, hugsaði hann. Fyr-
ir fimm milljónir dollara í gulli
væri honum trúandi til að myrða
sinn eigin bróður, hvað þá vanda-
lausa. Það eitt er víst, að ég má ekki
missa sjónar á Paulette. Hún þarfn-
ást aðstoðar minnar, og ég vil ekki
að hún verði þessum illmennum að
bráð. Mér er orðið of hlýtt til henn-
ar til þess. Kannski þykir mér jafn-
vel vænna um hana, en mér er
Ijúft að viðurkenna.
Þegar hann leit á hana og sá hve
hrærð hún var og hjálparvana, fyllt-
ist hugur hans af slíkri ástúð til
hennar, að hann vissi ekki fyrr, en
hann hafði hallað henni að sér og
kysst hana.
— Vertu óhrædd, sagði hann. —
É'g skal gæta þín. Bíddu hér hjá
Celestial og láttu engan sjá þig.
★
Johnny Angel fór nú á fund hafn-
arstjórans og bað um upplýsingar
um „Delfinen“.
— Lengd 40 fet. Diselvél. Eigend-
ur Paul og Sam Jewell. Hefur ekki
verið í höfn uppá síðkastið.
— Reynið að komast eftir því,
hvar hann er niðurkominn núna.
Má gera ráð fyrir að málað hafi verið
yfir nafn og númer.
★
Næst lá fyrir Johnny að heim-
sækja Lilah, konu Gustys. Ef hún
vissi ekki neitt, varð hann að nota
hana til að útvega nauðsynlegar upp-
lýsingar. Hún var ástfangin í Johnny
STJÖRNUR 33