Stjörnur - 01.06.1948, Blaðsíða 14
nokkurt skeið vegna raddbreytingar-
innar og þegar hann kom fram að
nýju söng hann tenórfhlutverkið í
Tannlhauser, og með því sló hann
í raun og veru í gegn, og hefur síð-
an verið einn af fremstu Wagner-
söngvurum, sem uppi hafa verið.
Þess má geta að á þessum árum
voru þeir vinir og söngfélagar Laur-
itz Melchior og Pétur A. Jónsson og
mun eldti hafa mátt á milli sjá
hvor þeirra var vinsælli. Þeir höfðu
báðir — og hafa — geysisterka rödd
af tenórum að vera, svo að söngur
þeirra nær ætíð yfir hin háværustu
hljóðfæri fjölmennra ‘hljómsveita.
Lauritz fór fljótlega úr þessu að
fá tilboð frá erlendum söngleika-
'húsum, fyrst í Englandi, síðar í
Þýzkalandi og loks í Bandaríkjun-
um, söng hann í öllum þessum
löndum við feikna vinsældir. 1926
söng hann fyrst sem gestur við
Metropolitanóperuna í New York,
og fólkið tó'k honum opnum örm-
um. Fáum listamönnum hefur —
eftir fyrstu byrjunarörðugleikana —
orðið brautin eins bein til viðurkenn-
ingar og frægðar, og fáir söngvarar
hafa eins lengi og hann haldið heið-
urssæti sínu, óskertu og vaxandi
vinsældum.
Lauritz Melch.ior hefur verið ham-
ingjumaður enda þótt sorgir hafi
-áótt hann heim sem flesta aðra
menn. Hann hefur átt tvær góðar
konur. Fyrri konu sína missti hann
eftir skamma en ástsæla sambúð.
Þau eignuðust tvö börn, sem nú
eru orðin fullorðin. Seinni konu
sína, sem hann getur bráðum hald-
ið silfutbrúðkaup með, fékk hann
senda ofan úr skýjunum. Þetta er
bókstaflega satt, þótt undarlegt megi
virðast.
Maria Hacker heitir seinni kona
Melchiors. Hún var kvi'kmyndaleik-
kona og lék einkum glæfrahlutverk.
I myndinni sem hún var að leika
í um þessar mundir átti hún að
varpa sér úr flugvél í falihlíf. Svo
hafði verið ráð fyrir gert að hún
kærni niður á flugvöll, en það fór
öðru vísi en ætlað var, hún hafnaði
í trjágarðinum fyrir framan hús Mel-
ohiors. I fallinu meiddi hún sig á
fæti. Lauritz kom hlaupandi út og
bar stúlkuna inn á örmum sínum.
Hann hringdi auðvitað strax eftir
lækni, en það var engin hætta á ferð-
um, aðeins smávegis meiðsl. Tveim
dögum síðar drakk stúl'kan te í
boði Melohiors og fór þegar vel á
með þeim. Tvö ár liðu þó áður en
þau giftu sig. Maria Hadher hélt
áfram á meðan að leika í kvikmynd-
um.
„En það var ekki nokkur fr.iður“,
segir hún. „Lauritz hringdi til mín
öllum stundum, og loks skildist mér
að ef ég ætti að öðlast ró og stund-
legan frið á minni skömmu ævi, þá
væri líklega ekki um annað að ræða
en gi'ftast honum“.
Og þeir, sem til þekkja skilja það
mæta vel, að Lauritz hafi sótt það
14 STJÖRNUR