Stjörnur - 01.06.1948, Blaðsíða 12
,/Eg er bara SÖngvai'í # segir Lauritz Melchior.
Hann leikur í kvikmyndum í sumarleyfum sínum.
Ekki þarf mikinn mannþekkjara
til að sjá, að þar sem Lauritz Mel-
ohior fer er góður maður og glað-
lyndur. Sjáum hann í kvikmynd, lít-
um framan í hann í prentsvertu dag-
blaðsins eða tímaritsins: Ur augum
hans og allri ásjónú skín gleðin og
góðvildin, eins og hún gerist bezt
hjá feitum Dana.
Og auðvkað er Lauritz Meldhior
danskur, en árum saman hefur hann
verið fastur starfsmaður við Metro-
politanóperuna í New York. Hann
náði á miðjum aldri því mikla tak-
marki, sem öllum söngvurum þykir
mest til koma, að vera ráðinn til
þessa mikla söngleikafeúss, er hæst
þykir bera af öllum slíkum í ver-
öldinni.
En það þarf auðvitað ekki að taka
það fram hér í þessu blaði, að Lau-
ritz Meldhior er ekki síður vinsæll
kvikmyndaleikari en söngvari í ó-
perum og útvarpi, er skemmst að
minnast myndarinnar „Sundmærin“,
er naut geysivinsælda um allar jarð-
ir, en þar lék hann eitt aðalhlutverk-
ið ásamt Van Jdhnson og Estiher
Williams. Og enda þótt þau tvö
séu allra augnayndi, og ástarsaga
þeirra væri uppistaða myndarinnar,
mun mörgum hafa . farið svo, að
hinn roskni, glaði söngvari, sem
hvarf upp í fjalla'hótelið til að megra
sig, yrði þeim eftirminnilegasta
persónan, og leyfi sér að fullyrða
að það hafi verið Lauritz Melchior,
sem bar myndina uppi og gerði hana
frábrugðna venjulegum glansmynd-
um frá Hollywood.
Næsta mynd hans þar á eftir höf-
um við ekki séð. Hún heitir „Tvær
systur frá Boston“.
En, sem sagt, Lauritz Meldhior
er fyrst og fremst óperusöngvari,
hann leikur aðeins í sumarhléum
óperunnar. Og enda þótt Lauritz
þyki gaman „að lyfta sér upp við að
leika í kvikmyndum“, eins og 'hann
kemst að orði, vill hann ekki heyra
það nefnt, að hann sé kvikmynda-
stjarna.
Lauritz Meldhior er fæddur og
uppalinn í Kaupmannaköfn, sonur
kennaraíhjóna. Hann réðist ungur
skrifstofumaður hjó tónlistarforlagi,
en eyddi öllu því fé, sem hann gat
við sig losað, til söngnáms. Hann
12 STJÖRNUR