Stjörnur - 01.06.1948, Blaðsíða 19
íst við borS þeirra kvenmaður, sem
augsýnilega hafði fengið heldur
mikið neðan í því. Hún starði á
■hjónin um stund: „Ert þú ekki
Lauren Bacall“, drafaði í henni um
leið og hún þreif eitthvað uppúr
handtösku sinni. „Mér líkaði ekki
við þig í síðustu myndinni þinni“,
bætti hún við, og áður en Humphrey
fengi ráðrúm til að hindra það, hellti
■hún úr fullum eldspýtustokk fram-
an í Lauren. En nú var þjónn kom-
inn og losaði ihjónin við þessa ógeðs-
legu kvensu.
Daginn eftir hringdi kunningi
heim til þeirra hjóna og spurði Bo-
gart hve mikilla skaðabóta hann ætl-
aði að krefjast af hinni drukknu
konu, sem óvirt hefði frú hans. „Ekki
eyris“, svaraði Humphrey „við ætl-
um ekki stefna henni. Það eru ó-
tryggir tímar sem stendur, við viljum
ekki efna til neinna leiðinda, vin-
sældir eru dýrmætari en allt annað“.
Þess saga og viðbrögð leikaranna
þykja einkennandi fyrir hugsunar-
háttinn og stemninguna í Holly-
Myndir á þessari opnu eru af Borgarts-
hjónum.
STJÖRNUR 19