Stjörnur - 01.06.1948, Blaðsíða 30
Kvikmyndasagan
GULLSKIPIÐ
Abalhlutver\: Signe Hasso, Gorge Raft og Hoggy Cormichael.
II.
Langdreginn ymjandi bílláðra lög-
reglunnar rauf 'þögn 'hverfisins, og
vakti Johnny Angel af þungum
svefni. Hann reisti höfuðið hægt frá
hörðum kodda steingólfsins, og áð-
ur en hann hafði að fullu áttað sig
á því, sem gerst hafði hrundi lög-
reglan upp hurðinni og nokkrir
menn — þar á meðal Sam Jewell —
þustu inn með reiddar skammbyss-
ur.
— Hvar er stúlkan, spurði Johnny
og greip í hvítan kjólboðung Sams.
•— Þú hefur auðvitað ekkert séð.
Nei. Sam halfði ekkert séð, aðeins
heyrt skothvellina og 'hlaupið út.
Þetta er þitt einkamál, Johnny, sagði
hann.
Fyrirliði lögreglumannanna yfir-
heyrði Jo'hnny. Hann ha'fði engu að
leyna og sagði hvað hann hefði séð.
En hann hugsaði með sér: Sam veit
meir um þetta, en hann vill láta uppi.
★
En það var líka annar maður, sem
vissi meir en Johnny Angel. Celestial
hafði beðið eftir Johnny. með bíl
sinn fyrir utan kaffihúsið, eins og
áður er sagt. Þegar ‘hann heyrði skot-
hvellina hafði hann ekið bílnum inn
í hliðargötu. Allt í einu sá hann
Paulette koma hlaupandi, hann opn-
aði bílhurðina og hún stökk inn.
Hann ók burt. Eitthvað . . . Hún
nefndi heldur engan ákvörðunarstað.
Hann spurði einskis. Hún var því
fegin að fá hvíld stundarkorn þar
sem hún gat verið óhult. Hún vissi
ekki hvert skyldi halda.
Caiestial ók í úthverfi borgarinn-
ar. Hann stöðvaði bílinn við hús eitt
gamallt og ekki ríkmannlegt. Hann
snéri sér við i sætinu, horfði á
Paulettte og sagði:
— Jæja, þá erum við komin. Hér
býr frændi minn, það er bezti ná-
ungi, hann hefur að vísu einu sinni
komist í smávegis klandur, en hann
er ekki verri fyrir það. Þér getið
fengið að vera hér, ef þér viljið.
Paulette mældi Celestial með aug-
unum. Var henni óhætt að treysta
honum? Gátu búið nokkur svikráð
að baki þessum sakleysislegu aug-
um. Svipur Celestials var alvörugef-
inn, en einstaklega góðmannlegur.
Hún fylgdi honum inn í húsið.
30 STJÖRNUR