Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Síða 12

Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Síða 12
Arsrit Torfhildar virkaði vægast sagt hjáróma eftir að heimsmynd 19. aldarinnar hafði fallið fyrir byssukúlum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þar komu helst við sögu Gunnar Gunnarsson, Þórbergur Þórðarson og Halldór Laxness. Þessir höfundar stóðu frammi fyrir því vandamáli að þurfa að hafna aðferðum fyrirrennara sinna til þess að geta skapað lífvænlegan skáldskap. Þeir gátu ekki skrifað um pilt og stúlku upp í sveit þar sem morgunroðinn býr ásamt smáfuglunum. Ekki gátu þeir heldur haldið áfram að skrifa útfrá forsendum raunsæishöfundanna, skammast útí þjóðfélagið og bent á útgönguleiðir. Þeir sáu engar. Gunnar Gunnarsson reynir í kreppusögum sínum11 að ná utanum nútímamanninn en mistekst að hrista 19. öldina af sér þar sem hann notast við skáldskaparform einröddunar; þ.e. sannleikur sögumanns drottnar yfir frásögninni og gömul meðul eru notuð, s.s. vondi maðurinn sem er auðþekktur á óásjálegu útliti sínu. Það er ekki fyrr en með Vefaranum mikla e. Halldór Laxness sem sundurtættum nútímanum eru gerð skil. Vefarinn mikli er „ógurlegt verk“ eins og Kjarval orðaði það. Þar ægir saman öllum helstu stefnum í heimspeki og bókmenntum sem kenndar eru við modernismann. Þar æpir Steinn Elliði ýmist boðskap Nietzsche eða krýpur í rakri þögn klaustursins og þylur kaþólskar kennisetningar. Hann ætlar að standa á herðum tímans hrópandi kvæði sín eða liggja á hörðu steingólfi fjarri rödd heimsins með hugann við guð en „varir luktar luktar“. Og honum kemur ekki til hugar að að vitna í bókmenntir fyrir 1914 eða þá afneitar öllu og les biblíuna. í bókinni er engin ein rödd, engin ein stefna (sannleikur) sem ríkir yfir öðrum. Þetta er margraddað verk, eins og hjá Dostojevskí, eins og nútíminn. Eins og modemisminn sem getur ekki annað en leitað að sannleikanum því enginn einn sannleikur er til. 10

x

Ársrit Torfhildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.