Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Page 13

Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Page 13
Arsrit Torfhildar Innlendir áhrifavaldar Laxness eru helst taldir vera Þórbergur með Bréfi sínu til Láru og Fornar Ástir Sigurðar Nordal. En í Fornum Ástum ku Laxness hafa séð glitta í hverju órökvíst myndmál og brotakennd frásögn fékk komið til leiðar, og er þá sérstaklega átt við prósann Hel. Annars er það athyglisvert hversu lítið þetta umrót hreyfði við Ijóðinu. Davíð Stefánsson hélt sínu nýrómantíska striki og var, í vinsældum, poppstjarna síns tíma, Tómas Guðmundsson orti áhyggjulaust en yndislega vel. Nýir menn tóku við hefðbundna forminu eins og ekkert væri sjálfsagðara og höfðu ekki einu sinni fyrir því að reyna að hressa upp á myndmálið. Það var helst að maður nokkur nefndur Steinn Steinarr hafi tekið við að endurnýja það innan frá. Ein af ástæðunum kann að vera sú að sundruð heimsmyndin tjaslaðist að e-u leyti saman með trú (eða hatri) á kommúnismanum. Menn sáu nýja dögun rísa í austri og Sovétríkin stefndu í jarðneskt himnaríki. Meðan sú víma hélst, ásamt kreppunni, þá töldu skáldin sér skylt að berjast fyrir hugsjóninni. Og í slíkum tilvikum beinist athyglin að boðuninni en síður að listrænum gæðum (það má fullyrða með hæfilegum ofsa að það sé beinlínis hættulegt fyrir skáld að hafa hugsjón, ekki nema þá ákaflega loftkennda, sem rúmast ekki í einföldum orðum). Einnig hefur sjálfstæðisbaráttan spilað inní. Menn urðu að hylla fánann á þjóðlegan hátt; Með stuðlum-höfuðstöfum-og rími. Modemisminn hélt sig fjarri íslenskri ljóðagerð á 4. áratugnum því skáld voru heil í sinni skoðun. Það var ekki fyrr en með síðari syndafallinu, heimsstyrjöld no.2, að heimsmyndin sundraðist á ný. Og þar sem farið var að slá í íslenska ljóðlist, þá lentu skáldin í enn meiri kreppu en ella við að finna nýjar leiðir, nýtt form. 11

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.